Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar er heillandi borgarstæði, fallegar byggingar og tignarlegur kastali. Iðandi menningarlíf með góðar verslanir og úrval veitingahúsa.
,,Auld Reekie" eins og borgin heitir á skosku (og þyðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifirðu hið einstaka skoska andrúmsloft. Á hæðinni fyrir ofan borgina stendur hinn tignarlegi Edinborgarkastali, táknmynd borgarinnar. Borgin býður upp á blöndu af miðöldum og nútíma, þar standa bókstaflega, hlið við hlið miðaldahúsaraðir og nytískulegar byggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð eftir nútíma arkitektúr.
Næturlíf borgarinnar getur verið ansi villt, Edinborg er stundum kölluð Aþena norðursins. Að ekki sé minnst á alla veitingastaðina og pöbbana.
Síðast en ekki síst, þá er Edinborg festivalaborgin, þar sem festival nefnt eftir borginni er haldið ár hvert.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda Skotar höfðingjalegir gestgjafar.
Hvað er hægt að gera í Edinborg
Útsýnið úr Edinborgarkastala er stórkostlegt
Sjónblekkingarsafnið er óvenjuleg skemmtun
Rannsaka Neðanjarðarborgina (Real Mary King´s Close)
Viskíáhugafólk er komið til himna. Prófaðu að smakka!
Minnismerki Scott er áhrifarík sjón
Tilvalið að skella sér í golf ef veður leyfir
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10 kg handfarangur.
Brottför
Frá Keflavíkurflugvelli fimmtudaginn 20. nóvember kl. 08:00 og lent í Edinborg kl. 10:20.
Heimkoma
Flogið frá Edinborg sunnudaginn 23. nóvember kl. 12:20 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 14:55.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferð frá flugvelli að hóteli
Farastjórn
Einn sérstaklega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör sem fá óvæntan glaðning frá
Tripical í ferðinni
Hótel
****
Frábært hótel í hjarta borgarinnar í miðbænum með stórkostlegu útsyni yfir kastalahæðina.
Rúmgóð og falleg herbergi sem eru með egypskum lúxusbómullarrúmfötum, koddaúrval, hárþurrku og te-/kaffiaðstöðu, stílhreint og snyrtilegt hótel.
Þessi fallega bygging sem var byggð árið 1892 er í göngufæri frá verslununum á Princes Street og líflegu næturlífi borgarinnar.
Á hótelinu er verlaunað grillhús Bread Street Brasserie og bar sem er opinn til kl 01:00
Hótelið fær heildareinkunn 8,1 og 8,9 fyrir staðsetningu.
Verðin
154 900 kr
á mann í tvíbýli
75 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Sheraton Grand Hotel & Spa er með útsýni yfir Edinborgarkastala en það er staðsett í fjármálahverfinu, við hliðina á viðskipta- og skemmtanahverfinu West End, í fimm mínútna göngufjarlægð frá Princes Street og í 500 metra fjarlægð frá Edinborgarkastala.
Lúxusherbergin eru glæsileg og eru með ókeypis WiFi, herbergisþjónustu allan sólarhringinn, gagnvirkan flatskjá með gervihnattarásum, lítil setusvæði og baðherbergi með aðskildu baðkari og sturtuklefa. Herbergin eru stór og eru með loftkælingu, fallegar innréttingar og stemningslýsingu.
Í One Spa geta gestir notað 19 metra sundlaugina, líkamsræktina og heilsustúdíóið án endurgjalds en einnig er hægt að láta dekra við sig í ýmsum snyrti- og heilsulindarmeðferðum á meðan á dvölinni stendur (nauðsynlegt að bóka fyrir komu). Einstaka og nýlega enduruppgerða varmasvítan og sundlaugarupplifunin á þakinu, sem kallast Escape at One, eru í boði á afsláttarverði.
Nútímalegur skoskur matseðill og einstök ginsmökkun er í boði á líflega staðnum One Square Bar + Brasserie.
Hótelið fær 8.6 í einkunn á booking.com og 9.4 fyrir staðsetningu.
Verðin
159 900 kr
á mann í tvíbýli
70 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 100 manns. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir