
til Berlín28. nóvember til 1. desember 2025
Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi.
Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir.
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu.
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.
Hvað er hægt að gera í Berlín
Útvarpsturninn á Alexander Platz
Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður
Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Áætlunarflug með Icelandair, innrituð taska 23 kg og 10kg handfarangur.
Brottför
Frá Keflavík föstudaginn 28. nóvember kl. 07:35, lent kl. 13:10 í Berlín.
Heimför
Frá Berlín mánudaginn 1. desember kl.14:05 og lent á Keflavík kl 15:50.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi, gisti- og borgarskatturinn.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Berlín 25-30 mín akstur
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi, kostar 5.000kr á mann aukalega.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Hótel
Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
****
Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
Þetta 4ra stjörnu úrvalshótel státar af 3 veitingastöðum, heilsulind og herbergjum með loftkælingu og flatskjáum. Það er hæsta hótel Berlínar og er staðsett beint við Alexanderplatz-torgið.
Öll herbergin og svíturnar á Park Inn Radisson Berlin Alexanderplatz eru með marmaralögð baðherbergi með kraftsturtu og hita í gólfum. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu.
Sérréttir sem eldaðir eru eftir hefðum svæðisins eru framreiddir á veitingastaðnum Zillestube og alþjóðlegur matur á Humboldt. Máltíðir og drykkir eru í boði á Spagos Bar & Lounge og er það útbúið fyrir framan gesti í opna eldhúsinu.
Í vellíðunaraðstöðu Park Inn er að finna gufubað, líkamsræktaraðstöðu og nuddþjónustu. Gestir geta einnig slappað af á veröndinni á efstu hæðinni en þaðan er frábært útsýni yfir miðbæ Berlínar.
Park Inn by Radisson er staðsett á móti Alexanderplatz-stöðinni en þaðan eru tengingar með strætisvögnum, sporvögnum, neðanjarðarlestum og S-Bahn-lestum við alla hluta Berlínar. Safnaeyjan og hið líflega Hackescher Markt-svæði eru í 10 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 7,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbýli
45 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Þetta glæsilega 4-stjörnu hótel í Berlín er staðsett miðsvæðis við Kurfürstendamm-verslunargötuna og býður upp á hljóðeinangruð herbergi með flatskjá og ókeypis nettengingu.
Öll rúmgóðu herbergin á Lindner Hotel AM KU'DAMM Berlin eru með minibar og öryggishólfi. Ókeypis snyrtivörur eru á sérbaðherberginu.
Gestir sem dvelja á Lindner geta fengið ókeypis afnot af Clever-líkamsræktinni í nágrenninu.
Daglegt morgunverðarhlaðborð er í boði. Gestir geta einnig slappað af á verönd hótelsins.
Kurfürstendamm-neðanjarðarlestarstöðin er í 300 metra fjarlægð frá Lindner Berlin Ku'damm. Sögulega Gedächtniskirche-kirkjan er í 400 metra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Þetta 5 stjörnu hótel býður upp á stóra heilsulind á þakinu og sundlaug með stórkostlegu útsýni yfir Berlín. Það er staðsett í líflega Potsdamer Platz-hverfinu, í 300 metra fjarlægð frá Sony Center og státar einnig af glæsilegum veitingastöðum og börum.
Svíturnar og herbergin á Grand Hyatt Berlin eru glæsileg og eru með 55 tommu sjónvörp og aðstöðu til að útbúa heita drykki. Marmarabaðherbergi með flatskjá og ókeypis WiFi eru til staðar. Allir gestir fá ókeypis sódavatnsflösku.
Allir gestir á hótelinu hafa ókeypis aðgang að Club Olympus Spa & Fitness sem býður upp á frábært útsýni yfir sjóndeildarhring Berlínar. Á meðal aðstöðunnar sem boðið er upp á þar eru sundlaug, nuddlaug og nútímaleg líkamsræktaraðstaða ásamt ýmsum gufuböðum. Nudd- og snyrtimeðferðir eru í boði gegn gjaldi.
Alþjóðlegir, asískir og árstíðabundnir réttir eru framreiddir á veitingastaðnum Vox Restaurant. Á sumrin geta gestir snætt á veröndinni á Grand Hyatt.
Berlínarfílharmónían og Tiergarten eru í 5 mínútna göngufjarlægð. Brandenborgarhliðið er í innan við 15 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,8 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
179 990 kr
á mann í tvíbýli
75 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 70 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir