Bath

Rómversk böð og stórkostlegar byggingar

Bath er einn allra elsti ferðamannastaður Englands og hefur tekið á móti gestum um aldir. Baðhús borgarinnar, með sínum heitu náttúrulaugum eru mjög vinsæl, auk þess sem borgin sjálf þykir afar glæsileg.

Enska borgin Bath er einstakur staður og hinar fornu glæsibyggingar hennar, byggðar í rómönskum og gregorískum stíl, fá neðri kjálkana sannarlega til að falla. Hér er eins gott að hafa símann fullhlaðinn til myndatöku, því gönguferð um borgina er mögnuð upplifun. Eins og margir staðir, fékk Bath að kenna á sprengjum seinni heimsstyrjaldar, og þar þurfti sums staðar aðendurbyggja. 
Íbúar borgarinnar eru þó í dag mjög á móti stórvægilegum byggingaráætlunum, og vilja ekki sjá nútímalegar byggingar rísa í borginni, þannig að hinn forni glæsileiki hennar fái sem best að njóta sín. 
Bath stendur á heitum vatnsuppsprettum og er einn elsti heilsu-spa staður landsins. Upphaflega, á tímum Kelta voru uppspretturnar helgaðar gyðjunni Sulis og fólk trúði staðfastlega að þær hefðu lækningarmátt. Rómverjar yfirfærðu hinn helga stað síðar á sína gyðju. Sulis var einmitt gyðja lækninga en Mínerva hinna rómversku gyðja visku. Hvort þú verður heilbrigðari eða vitrari af baðinu skal ósagt látið, en heimsóknin er þess virði. Leyfðu þér að stíga í hin stórbrotnu rómönsku baðhús og láta dekra við þig rétt eins og þú værir Sesar eða Kleópatra. 

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og handfarangur.

Brottför

Föstudaginn 1 maí, flug Keflavík kl. 16:10 - Lent á London Heathrow kl. 20:20.                                          

Heimflug

Föstudagur 4 maí, Flug London Gatwick kl. 13:10, lent í Keflavík kl. 15:10

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í London

Fararstjórn er ekki innifalin

Hægt er að óska eftir fararstjórn gegn vægu gjaldi

Hvað er hægt að gera í Bath

Great Pulteney Street er glæsileg gata, og hefur verið tökustaður kvikmynda sem eiga að gerast á Georgíska tímanum.
Mayor of Bath Honorary Guide túrinn um georgíska hluta Bath hefur verið genginn af ferðamönnum síðan 1930. Ferðin er ókeypis. 
Kráin The Raven býður upp á mikið úrval drykkja, og mikið úrval af borðspilum sem þú hefur líklega ekki prófað áður
The Royal Crescent er tignarleg hálfmánalaga bygging frá 18. öld. 
Stonehenge er í uþb klukkutíma akstursfjarlægð frá Bath og fjöldi túra þangað, til að velja um
Po Na Na klúbburinn er einna vinsælastur fyrir þá sem vilja sletta ærlega úr klaufunum

Hótel

Apex City of Bath Hotel
****

Apex City of Bath hótelið er fjögurra stjörnu hótel staðsett í miðbæ Bath og í 5 mínútna göngu frá Thermae Bath Spa-inu. 

Veitingastaðurinn býður upp klassíska franska matargerð með bresku ívafi og einnig er hægt að fá Afternoon Tea. 

Það er bæði spa og líkamsræktaraðstaða á hótelinu. 

Hótelið fær heildareinkunina 9,2 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com 




Verðin

134 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

Hilton Bath City
****

Gististaðurinn Hilton Bath City er vel staðsettur í miðbæ Bath og er hannaður í stíl 7. áratugar síðustu aldar. Gestir geta notið útsýnis yfir borgina, Avon-ána og sveitina. Meðal annars eru Rómversku böðin og Parade garðurinn í 5 mínútna göngu frá hótelinu. 

Á hótelinu er veitingastaðurinn Atelier sem framreiðir hefðbundinn morgunverð daglega, síðdegiste og máltíðir yfir daginn sem eru misjafnar eftir árstíðum. Hilton Bath City býður einnig sveigjanlega veislusali fyrir viðburði, þar á meðal er County Suite með sérbar og dansgólfi fyrir allt að 150 manns.

Bar í móttökunni býður upp á hefðbundið umhverfi með sófum og hægindastólum og framreiðir mat, kaffi og úrval af tei, áfengum og óáfengum drykkum, þar á meðal fjölbreytt úrval af kokkteilum. Notalegi Bath-barinn er opinn allan sólarhringinn fyrir gesti. 

Hótelið fær heildareinkunina 7,7 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com 




Verðin

125 990 kr

á mann í tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið miðast við 50 manns


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá frítt með í ferðina með að ýta á hnapinn hér fyrir neðan.

Ingibjörg Björnsdóttir

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8904
Netfang:   ingibjorg@tripical.com