í Berlín
12.-16.05.2022

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

Brottför fimmtudaginn 12.maí

Flug

Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið

ATH á staðfestingunni ykkar stendur að það er 1 innrituð taska in nifalin, en það gæti verið óljóst inni á ykkar síðum.  En allir eru með eina innritaða tösku innifalda.

Sjá hér:  Farangursreglur Play

Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir brottför, það á einnig við heimförina.  Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.  ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og breyta sæti án gjalds.

ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun

Flug - 12.05.2022

Brottför frá Keflavík kl. 05:45, áætluð lending í Berlín BER kl. 11:25
Flugnúmer OG700

Um borð er sala á matvælu og drykkjum.

ATH það er grímuskylda um borð á leiðinni til Þýskalands (getur breyst) sjá nánar HÉR  þetta eru reglur sem bæði Play og Icelandair þurfa að framfylgja.

Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!

**********

11 manns með Icelandair - kl 07:40 - lent í Berlín kl 13:30 

Grímuskylda er um borð (getur breyst)sjá nánar HÉR

Rúta á flugvellinum

2 rútur taka á móti hópnum og skutla okkur á hótelið.

Eftir töskuband er gengið út og þar er Sunneva með Rarik skilti, hinkrum eftir hópnum og göngum saman að rútunum.   

Ekki þarf að vera með grímu í rútunni á hótelið.

11 manns - Icelandair
Eftir töskubeltið er gengið í áttina að lestunum eða Fernbusparkplats, niður á næstu hæð með rúllustiga, farið út úr byggingunni og gengið ca 300m  eða 5 mín að rútubílastæðinu.  Rúturnar eru hægra megin.

Bíllinn ykkar:  Skráningarnúmer B-PZ 4300.  Bílstjórinn Joachim Simon s +49179 6049171

Hótel - Tékk inn

Sana Berlin **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Tékk inn á hótelinu er kl 15:00 og áætlað er að við komum um kl 13 á hótelið.    Ef þið viljið bruna strax í bæinn þá getur hótelið geymt farangur ykkar og þið svo  tékkað ykkur  inn þegar þið komið aftur uppá hótel.  

Fararstjórn - Lobbý Þjónusta

Fararstjórar eru:
Ásta (Ásthildur Ólafsdóttir) Sími: +354 8208991
Flýgur með hópnum út.
Sunneva (Sunneva Guðjónsdóttir)  Sími +49 17682277249

Verðum í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00

COVID - Grímur

Endilega takið eina grímu með.  Ekki þarf að nota grímur á hótelinu.   Berlín er ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahús um, og í  almennings samgöngum  (leigubílar og lestar) og einstaka söfn.  
Til að komast inn í næturklúbba, bari, veitingastaði gæti þurft að sýna vottorð eða CovPass.

Nánar sjá HÉR

Laugardagur 14.05.

Sameiginlegur kvöldverður

19:30 - 00:00
Í aðal veislusal hótelsins LISBOA, staðsettur á jarðhæð, inng. hægra megin við barinn, baka til þar sem fundarsalirnir eru.

Opinn bar kl 20:00 - 22:30
Innifaldir drykkir: Vatn, gos, bjór, hvít og rautt, kaffi og te

19:30
Fordrykkur á útipallinum fyrir framan veitingastaðinn 

Kvöldverður hefst kl. 20:00
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.   
Grænmetis og veganréttir fyrir þá sem áttu það pantað.

Ferskt salat með nýjum aspas og appelsínudressingu
Sellerí og eplasúpa með Granny Smith froðu
Hægelduð kálfasteik, grænn aspas og kartöflumús
Jarðaberja trifli

Nokkur skemmtiatriði verða yfir borðhaldinu. 

Drykkir eru innifaldir til kl 22:30 eftir það eru þeir til sölu frami á barnum.

Skemmtið ykkur vel!


 Heimför Mánudaginn 16.05.

Hittingur í Lobbý - 09:00

Hittingur & tékk út, rútan leggur af stað 09:15 uppá flugvöll.  -Terminal 1

Ekki þarf að nota grímu í rútunni.

Passa að það tekur tíma að tékka sig út af hótelinu og gera upp, gott er að gera það kvöldinu áður.


Fyrir seinna flugið (Icelandair) fer rútan kl 11:45.

Flug -Mánudaginn 16.05.

Heimför mánudaginn 16.05. frá Berlín kl. 12:10 og lent í Keflavík 14:00 
Flugnúmer OG701


11 manns með Icelandair 16.05. kl 14:15 og lent í Keflavík kl 15:50 - FI 529

Grímunotkun um borð er valkævð (gæti breyst)

Flug 

Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.

Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.

Allir eru með sæti, ef maður vill breyta þá kostar það ef maður innritar sig fyrirfram en kostar ekkert á flugvelinnum ef maður innritar sig þar.

Ekki er þörf á forskráningu fyrir eða við komuna til Íslands. Þá er ekki þörf á að framvísa vottorði við byrðingu eða við komuna.
Góða ferð.


Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz, hæsti í Evrópu sem hægt er að heimsækja


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

 Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, tyrkneskir, ítalskir, indverskir, japanskir, þýskir sem og góð grillhús.  Alltaf gott að bóka fyrirfram.

500m frá hótelinu er gatan Meinekestraße þar eru fjölmargir góðir veitingastaðir, t.d. frábær Japanskur est.
Fyrir þá sem vija bara það besta klikkið HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, Starbucks, McDonalds og Burger King.

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni og anda að sér borgarloftinu.
Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt.  Helstu rafskutluleigurnar eru Lime, Vio, Bird, Tier og Circ.

Hjólastígar eru um allt og meðfram götunum og fylgja þarf almennum umferðarreglum.

Neyðarnúmer í Berlín

112 er neyðarnúmerið í Þýskalandi.

Klúbbar & barir í nágrenninu

Þessir eru nýopnir og í göngufæri annars er Berlín stútfull af næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Uber & Taxi & U

Í Berlín er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, Uber, Bolt eða Taxi. Uber er aðeins ódýrari, munið bara að hlaða niður Uber eða Bolt appinu áður.
S og U neðanjarðarlestarkerfið, frekar einfalt að nota
Mælum líka með lestarappinu BVG Tickets fyrir lestarkerfið, þar er hægt að kaupa miða í símanum.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Berlín og ert búin/n að sjá öll minnismerkin og búinn að fara á Check Point Charlie safnið, þá gæti þessi síða hjálpað: 

Tungumála frasar

Takk! – Danke
Einn bjór takk! - Bitte ein Bier
Hæ! Hallo! eða Grüss Gott
Afsakið! - Entschuldigung
Please! -Bitte
Reikninginn, takk! Die Rechnung bitte.
Talar þú ensku? - Sprechen Sie Englisch (hér er þérað!)

Verð hugmyndir € = ISK

 Gengið er um 140kr vs 1€

Bjór 0,5l  4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 2,3€ - 300 kr. 
Vatn 0,33l - 2 €  - 280 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 50€ = 7.000kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í Maí

Vorið er komið í Berlín, allt er byrjað að blómstra.  Meðalhiti Maí mánaðar eru um 15 gráður þó svo að hitinn geti farið alveg upp í 25 gráður.   En gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu hlýtt þá er getur verið kalt vegna rakans á kvöldin.
Búast má við 18-25 gráðum yfir daginn helgina 12.-16.05.


Hótelið

****
Nürnberger Straße 33/34,  10777 Berlín
s:  +49 30 20051510


Þetta glæsilega hótel er aðeins 700 metra frá KaDeWe -verslunarmiðstöðinni við Kurfürstendamm í Berlín og býður upp  glæsileg, nútímaleg og hljóðeinangruð herbergi.  Viðargólf, myrkvunargardínur og öryggishólf.
Fallega setustofu  og bar þar sem boðið er upp á snarl og léttar máltíðir allan daginn.
Gestir hafa frían aðgang að líkamsræktarstöð SANA sem er með hvíldaraðstöðu og lítilli sundlaug.. Sundlaugin er lokuð í Maí vegna viðgerða.
F8-barinn og móttökubarinn bjóða upp á snarl og drykki. Í heitu veðri geta gestir notið drykkja á rúmgóðu veröndinni með sófa.

Kudamm miðbærinn er fullur af verslunum, 400m frá hótelinu.

Dýragarðurinn í Berlín og Kaiser Wilhelm-minningarkirkjan eru í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótleinu. 

Augsburger Straße neðanjarðarlestarstöðin er í 2 mínútna göngufjarlægð. 

Hótelið býður einnig upp á reiðhjól og bíla til leigu.

Morgunverður á virkum dögum er frá 6:30 - 10:30 og um helgar kl 07:00-12:00

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com