
í Prag 22.-25.09.2022
Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!
Prag slapp nánast heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava
rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld.
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða.
Brottför fimmtudaginn 22.september
Flug
Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið
-
ATH á staðfestingunni ykkar stendur að það er 1 innrituð taska innifalin, en það gæti verið óljóst inni á ykkar síðum. En allir eru með eina innritaða tösku innifalda.
Sjá hér: Farangursreglur Play
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir
brottför, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að bóka sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu. ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og setja fólk saman í sæti.
ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun en hjón eru saman í bókun og saman í sætum en til að tryggja það þarf að kaupa sæti ef maður vill ekki kaupa sæti þá þarf að tékka sig in í KEF ef það gengur ekki þá biðja flugþjóna um aðstoð eða
kollega að færa sig.
Flug - 22.09.2022
Brottför frá Keflavík kl. 15:00 áætluð lending í Prag kl 20:55
Flugnúmer OG534
Um borð er sala á matvælum og drykkjum.
Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!
Grímur eru valkvæðar.
Rúta á flugvellinum
Rúta tekur á móti ykkur og skutlar á hótelið eltið Þóru en hún er með ykkur í fluginu.
Ekki þarf að vera með grímu í rútunni á hótelið.
Hótel - Tékk inn / út
Hotel Grandium Prague ***** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
Innritun ætti að ganga hratt fyrir sig þar sem við erum búin að senda vegabréfsnúmerið ykkar.
Athugði á heimferðardegi þarf að tékka sig út í stíðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar. Brottför á sunnudaginn frá hótelinu er kl 19:00.
Morgunverður 06:30-10:30 alla daga á jarðhæðinni.
COVID - Grímur
Engin grímuskylda er í Prag en ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahúsum og heilsugæslum (FFP2 grímur).
Föstudagur - 23.september - 11:30 gönguferð um miðbæinn, brottför frá móttöku. ATH leiðsögnin er á ensku
Föstudagur 23.09.
Sameiginlegur kvöldverður-1.hæð/kjallariMars/Jupiter
19:30 - 01:00
19:30
Fordrykkur
Kvöldverður hefst kl. 20:00
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.
Forréttur:
Crostini með ertupestó og laufsalati
Aðalréttur:
Marineruð kálfasteik í villtum skógarjurtum, borin fram með grænum baunum í týrólskrúða og kartöflu-ostaköku
Eftirréttur:
Brownies með hindberjum
Drykkir innifaldir 20:00-22:00
Bjór, hvítvín, rauðvín, vatn safar, gos kaffi/espresso/te
Trúbadorinn Pálmar trúbbar eins og honum einum er lagið eftir kvöldverðinn.
Skemmtið ykkur vel!
Heimför sunnudaginn 25.09.
Hittingur í Lobbý - 18:50
Rútan leggur af stað 19:00 uppá flugvöll.
Ekki þarf að nota grímu í rútunni.
Munið tékk út er í síðasta lagi kl 12 en hótelið getur geymt töskurnar ykkar fram að brottför.
Flug -Sunnudaginn 25.09.
Heimför sunnudaginn 18.09. frá Prag kl. 21:55 og lent í Keflavík 00:10
Flugnúmer OG535
Flug
Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma. Og kaupa sér ósasætin annars er hægt að innrita sig á flugvellinum til að passa upp á að hjón sitji saman.
Hvað er hægt að gera í Prag
Prag kastalinn
er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House
er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague
Strahov klaustrið
stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum
Josefov
gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús og aðrir alþjóðlegir veitingastaðir Asískir, Indverskir, Kóreskir, Ítalskir, Japanskir og fl.
ATH það er mikið um að vera þar þar sem mikið er um ferðamenn í borginni og er því gott að bóka fyrirfram.
Mælum með stöðum eins og Gran Fierro / LEVITATE
Aðrir staðir í Prag sem við mælum með:
Cerveny Jelen
- Tékkneskur, steik og microbrewery
K the Two Brothers
- besti indverski
SsSaZu
- frábær asískur, geggjuð stemmning
Veitingahús sem Michelin mælir með er að finn HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka um alla borg eins og Vapiano, McDonalds og Burger King.
Hjól og Rafskutlur
Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt. Helstu rafskutluleigurnar eru VOLT, BLINKEE og BeRider, gott að ná i öppin og kaupa sér dagpassa ef maður er svona hlaupahjóla-lingur.
Neyðarnúmer í Prag
112 er neyðarnúmerið í Tékklandi
Klúbbar & barir í nágrenninu
Prag er rík af næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Næst hótelinu er The Londoners Music Bar
- flottur klúbbur 900m frá hótelinu.
Roxy
er alltaf með vinsælustu DJ-ana.
Svo er hægt að finna rétta klúbbinn sinn HÉR
Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita sitthvað um hverfið sitt.
Samgöngur
Í Prag er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn metro eða strætó. Þar eru líka Uber og Bolt.
Metroinn og tramminn er mjög auðveldir í notkun annars er alltaf gott að fara gangandi.
Ef þið takið leigubíl, takið frá hótelinu eða notið Uber, annars passið að vita verðið fyrirfram.
Skemmtilegt að gera
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Prag, farðu þá í bjór-spa þau eru út um allt kíktu hér:
Hér eru óendanlega mikið af upplýsingum https://www.pragueexperience.com/
Tungumála frasar
Takk! – Dík
Einn bjór takk! - jedno pivo, díky
Hæ!- Ahoj! - alveg satt
Afsakið! - Promiňte
Please! - prosím
Reikninginn, takk! - Zaplatím
Talar þú ensku? - mluvíš anglicky
Góðan daginn - dobrý den
Góða kvöldið - dobrý večer
Verð hugmyndir CZK = ISK
Gengið er um 6kr = 1 CZK
Bjór 0,5l 48 CZK = 290 kr. (innlendur)
Cappuchino 61 CZK = 370kr.
Gosdrykkur 0,33l - 27 CZK = 160 kr.
Vatn 0,33l - 34 CZK = 1204 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 950 CZK = 5.700kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í September
Sumarið er ennþá hér og það er hlýtt yfir daginn en það er gott að hafa góða yfirhöfn með sér, þar sem er getur verið kalt á kvöldin.
Búast má við 19-24 gráðum yfir daginn helgina 15.-18.09.
Hótel
*****Politických vězňů 913/12, 110 00 Nové MěstoS: +420 234 100 111
Grandium Hotel Prague, sem áður hét Yasmin Hotel, er staðsett í hjarta Prag, handan við hornið frá Wenceslas-torgi. Herbergin eru stílhrein og nútímaleg, öll með loftkælingu og lúxusbaðherbergi.
Herbergin eru öll útbúin baðsloppum og inniskóm, flatskjá með gervihnattarásum, kaffivél, örygisskáp, skrifborði og minibar. Ókeypis WiFi er hvarvetna á hótelinu. Öll herbergin eru reyklaus.
Veitingastaðurinn á Grandium Hotel Prague býður upp á ljúffenga alþjóðlega sem og tékkneska matargerð. Gestir geta notið máltíða í glæsilegum borðsalnum inni eða úti í sumargarðinum þegar veðrið er gott.
Grandium Hotel Prague býður upp á móttöku sem opin er allan sólarhringinn. Þvottaaðstaða á staðnum.
Gestir geta nálgast almenningssamgöngur í nokkurra skrefa fjarlægð. Þjóðminjasafnið í Prag og Betlehem-kapellan eru í 300 til 600 metra fjarlægð. Gegn aukagjaldi er boðið upp á einkabílastæði í bílaskýli.
Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,4 fyrir staðsetningu.
Morgunverður 06:30-10:30 alla daga á jarðhæðinni
Lobby bar á jarðhæðinni er opinn til miðnættis.