
Til Riga
03.-06.05.2024 eða10.-13.05.2024
Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.
Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar.
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.
Hvað er hægt að gera í Riga
Art Nouveau safnið er ansi magnað
Smakkaðu Black Balsam drykkinn
Skelltu þér í andlitsbað eða nudd
Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla
Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Air Baltic, innrituð taska allt að 20kg og handfarangur
Flug út
Beint flug út frá Keflavík kl 12:25 og lent í Riga kl 19:05.
Flug heim
Heimflug frá Riga 03.04 kl 10:45 og lent í Keflavík kl 11:40
Gisting
3 nætur á 4 - 5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga, 15-20 mín
Farastjórn
1 óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical ef óskað er og þá gegn gjaldi
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá
Tripical í ferðinni
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns
eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Þið fáið 1 skemmtitékka.
Hótel
****
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum.
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn
sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.
Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Hótelið er sérhæft í að halda stórar og alþjóðlegar ráðstefnur, fundi og glæsilegar veislur og aðra viðburði.
Salirnir eru 16 talsins, af öllum stærðum og gerðum, vel útbúnir nýjustu tækni og einhverjir eru með dagsbirtu, .
Áætlað verð fyrir standard kvöldverð fyrir ca 80 manns er frá 11.600kr, verð fer eftir tækjabúnaði og matseðli.
Verðin
134 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hótelið er 4 stjörnu hótel staðsett Art Nouveau hverfinu í miðbænum og í göngufæri við gamla bæinn. Herebergin eru fallega innréttuð og vel búin með wifi eins og allsstaðar á hótelinu.
Veitingastaður er á hótelinu sem býður upp á drykki og tapas rétti.
Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða sem gestir hafa aðgang að, hún er staðsett á 11.hæð og er með fallegu útsýni yfir borgina.
Fundaraðstaða er til fyrirmyndar og hótelið getur boðið upp á árhátíðarkvöldverð.
Þr sem hótelið er í miðbænum þá eru margir barir, veitingastaðir og kaffihús í næsta nágrenni sem og fjölmargar verslanir.
Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótelið er fallegan sal á efstu hæðinni en því miður er bara hægt að fagna til kl 23. Kvöldverður 3 rétta með 2 ktl drykkjarpakka, verð frá 12.900kr. Einnig er hægt að fá kvöldverðarhlaðborð í morgunverðarsalnum á 6.000kr á mann með léttum drykkjarpakka.
129 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli