Til Riga
01.-04.09.2023

Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar. 
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.

Hvað er hægt að gera í Riga


Art Nouveau safnið er ansi magnað

Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Slakaðu á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstakur

Skelltu þér í andlitsbað eða nudd 


Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Air Baltic,  innrituð taska allt að 20kg og handfarangur

Flug út 

Beint flug út á föstudeginum 01.09.2023 frá Keflavík 
kl : 12:25 og lent í Riga 19:05.

Flug heim

Heimflug frá Riga á mánudeginum 04.09.202, kl 10:45 og lent í Keflavík kl 11:40

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi. 

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga, 15-20 mín

Farastjórn

Sé þess óskað - Gegn gjaldi

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá 
Tripical í ferðinni


Hótel

****

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00.  Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.

Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu. 

Hótelið er sérhæft í að halda stórar og alþjóðlegar ráðstefnur, fundi og glæsilegar veislur og aðra viðburði. 

Verðin

139 990 kr

á mann í tvíbýli 

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

Radisson Blu Ridzene
****

Hótelið er 4 stjörnu hótel er með útsýni yfir Esplanade Park og er í 5 mín göngufæri frá gamla bæinn. Herbergin eru fallega innréttuð, loftkæld og vel búin með wifi eins og allsstaðar á hótelinu.

Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni í glæsilegum veitingastað hótelsins.

Veitingastaður hótelsins, Piramida, sérhæfir sig í alþjóðlegum réttum. 
Einnig geta gestir fengið sér drykki eða snarl á Ridzene Bar & Library.
  
Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða sem gestir hafa aðgang að og geta notið víðáttumikils útsýnis yfir garðinn á meðan æft er.   

Þar sem hótelið er mjög nálægt miðbænum þá er stutt í marga bari, veitingastaði og kaffihús í næsta nágrenni sem og fjölmargar verslanir.

Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com 



149 990 kr

á mann í tvíbýli 

50 000 kr

 aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 50 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com