Amsterdam er höfuðborg Hollands og stærsta menningar-miðstöð landsins. Þar er eitthvað fyrir alla, hvort sem þú ert í leit að menningu og sögu, hressandi djammi, eða bara indælli afslöppun í fornfrægri evrópskri borg.
Fyrr á öldum var Amsterdam lítið fiskiþorp, sem óx og stækkaði í þá mikilvægu viðskiptaborg sem hún er í dag. Nafn borgarinnar var upphaflega Amstelredamme, en því var síðar breytt í Amsterdam. Nafnið kemur frá ánni Amstel. Þarna búa ekki nema rúmlega milljón manns, og eru íbúar borgarinnar þekktir fyrir sín vinalegheit og að vera tilbúnir að veita hjálparhönd við hvað sem er! Borgin er í raun ekki ýkja stór, öll helstu kennileiti eru í göngufæri, en við mælum eindregið með því að leigja hjól og ferðast þannig um þetta dásamlega umhverfi.
Hér má finna mikið af heillandi hverfum með gömlum byggingum sem tekist hefur einstaklega vel að varðveita, og litagleðin ræður ríkjum. Síkin eru áberandi hluti af staðnum og yfir þau liggja ófáar instagramvænar brýr. Tilvalið að stilla sér upp og taka eins og eina ÉG ER Í AMSTERDAM sjálfu. Að sigla á síkjum Amsterdam er sannkallaður draumur. Þar flýtur þú framhjá fallegum gróðri, blómstrandi trjám og sögulegum byggingum, sem virðast einhvern veginn allar vera álíka skakkar og gestir hinna svokölluðu kaffihúsa borgarinnar (sem flest hver bjóða upp á ögn meira krassandi stöff en uppáhelling)
Hvað er hægt að gera í Amsterdam
Canal hringurinn svokallaði liggur með síkjum frá 17. öld og sigling þar er æðisleg upplifun
Jordaan
hverfið er mjög skemmtilegt- fátækrahverfi fyrri ára orðið hipp og kúl verslunarsvæði
Af fjölmörgum almenningsgörðum er Vondelpark hvað vinsælastur
KattenKabinet
er merkilegt listasafn, þar eru eingöngu myndir
af köttum
Oude Kerk er kirkja frá 1300. Það er mjög vinsælt að fara upp í turn hennar
Götumarkaðir eru ótrúlega margir og hver öðrum skemmtilegri
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug með Play 1 innrituð taska 20 kg og 10 kg handfarangur.
Brottför
Brottför á föstudeginum 29. september frá Keflavík til Amsterdam kl. 06:00 og lent kl 11:15.
Heimför
Brottför á mánudeginum 1. október frá Amsterdam til Keflavík kl 12:30 og lent kl. 13:50
Gisting
2 nætur á 4 stjörnu hóteli, Innifalið er morgun-verður, wi-fi og borgar-skatturinn
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli upp á hótel, áætlaður aksturstími er 25 mín
Farastjórn
Sé þess óskað -Gegn gjaldi
Hótel
****
Room Mate Aitana er hönnunarhótel sem er staðsett í 14 mínútna göngufjarlægð frá aðaljárnbrautarstöðinni í Amsterdam.
Öll herbergin eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar og öryggishólfi. Stórir gluggar á herbergjum bjóða upp á útsýni yfir Amsterdam.
Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð til klukkan 12:00 en einnig er hægt að fá morgunverð upp á herbergi. Á hótelinu er setustofubar og veitingastaður sem innréttaður er í heimsborgarstíl.
Aðaljárnbrautarstöðin í Amsterdam er í 800 metra fjarlægð frá gististaðnum og Dam-torg er í innan við 1,7 km fjarlægð. RAI-ráðstefnumiðstöðin er í 15 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbili
50 000 kr
aukagjald í einbýli