til Helsinki
14. maí til 17. maí &
15. maí til 18. maí 2026

Helsinki sem kölluð hefur verið dóttir Eystrasaltsins er þekkt fyrir stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim. 

Ekki skemmir að borgin er ennfremur þekkt fyrir góða veitingastaði þar sem hráefnið kemur úr nærumhverfinu, eftir árstíðum og sjálfbært. Fyrir finnum er þetta "way of life" 

Margir sem ferðast um Norðurlönd láta Helsinki fram hjá sér fara sem er bæði synd og skömm en um leið blessun þar sem þeir sem heimsækja borgina losna við troðning alltof margra ferðamanna og ná betur að njóta hennar með öllum sínum skemmtilegu skringilheitum. 
 
Finnar sem þekktir eru fyrir allt annað en að vera of málglaðir hafa ástríðu fyrir Finnskum Tango sem er ekki það sama og Argentískur Tango. Það er varla hægt að koma til Finnlands án þess að fara í saunu, svo samofin er hún lífi heimamanna, heilsusamlegt fyrir bæði líkama og sál.

Hvað er hægt að gera í Helsinki

Klettakirkjan er afar sérstök lúthersk kirkja í Helsinki og einstök listfræðileg hönnun. Kirkjan var grafin úr gegnheilum klettavegg og byggð neðanjarðar undir miklu hvolfþaki.
Uspenski dómkirkjan er mikil og reisuleg bygging sem gnæfir yfir sjónlínu Helsinki við hafnarbakkann. Ásamt auðkenndu hvítu lúthersku dómkirkju borgarinnar er Uspenski kirkjan eitt af helstu kennileitum Helsinki.
Nútímalistasafnið Kiasma í Helsinki sýnir það allra besta í finnskri nútímalist með reglulegum og síbreytilegum sýningum svo gestir koma iðulega aftur og aftur. 
Suomenlinna er mikið virki sem Svíar reistu á nokkrum eyjum rétt fyrir utan Helsinki og þýðir nafn þess finnski kastalinn. 

Í matargerð leggja Finnar áherslu á staðbundnar afurður og sjálfbærni í landbúnaði þar sem árstíðarbundnar afurðir njóta sín best.
Á hafnarsvæðinu er alltaf eitthvað gerast, bílasýningar, markaðstorg, siglingar og margt fleira. Mjög skemmtileg er að sigla til Tallin og eyða deginum þar.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair ásamt 1 innritaðri, 23 kg, tösku og 10 kg  handfarangri. 

Brottför

Brottför 1: (100 manns)
Flogið á fimmtudeginum 14. maí frá Keflavík kl. 07:30, lent í Helsinki kl. 14:00.

Brottför 2: (100 manns)
Flogið á föstudeginum 15. maí frá Keflavík kl. 07:30, lent í Helsinki kl. 14:00.

Heimför

Heimför 1: (100 manns)
Flogið á sunnudeginum 17. maí frá Helsinki kl.15:00, lent í Keflavík 15:40. 

Heimför 2: (100 manns)
Flogið á mánudeginum 18. maí frá Helsinki kl.15:00, lent í Keflavík 15:40. 

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli. 
Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Helsinki.

Farastjórn

Einn óendandlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

****

Vel staðstett fjögurra stjörnu hótel með vistvæna stefnu. Aðeins 3 mínútur frá Kamppi verslunarmiðstöðina og 500 metra frá lestastöðinni. Á hótelinu er veitingastaðurinn Bistro Manu og barinn Adjutantti. Einnig er innisundlaug og sauna. Stutt í úrval veitingastaða, söfn og bari.  

 Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

 134 990 kr

á mann í tvíbýli

35 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Þetta glæsilega hótel er við hliðina á aðallestarstöð Helsinki, í 5 mínútna göngufjarlægð frá Esplanadi-verslunargötunum. Það býður upp á þakverönd, flatskjásjónvörp á herbergjum, auk ókeypis gufubaðs og WiFi.

Upprunalega Sokos Hotel Vaakuna Helsinki var byggt fyrir Ólympíuleikana 1952 og er staðsett í byggingu sem er á minjaskrá. Hljóðeinangruðu herbergin eru með loftkælingu, minibar og nútímalegum innréttingum.

Stílhreini á la carte veitingastaðurinn býður upp á blöndu af finnskum og alþjóðlegum réttum. Eftir kvöldverð er hægt að njóta drykkja á barnum sem býður upp á stórkostlegt útsýni yfir iðandi miðbæ Helsinki.

 Vingjarnlega starfsfólkið er fús til að veita ferðamannaupplýsingar og aðra þjónustu.

Flugvallarrútan stoppar beint á móti Sokos Vaakuna Helsinki. Sokos-stórverslunin er til húsa í sömu byggingu en þar njóta gestir 10% afsláttar.

 Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

144 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Radisson Blu Royal Hotel, Helsinki er staðsett í hinu líflega Kamppi-hverfi og státar af fullkominni staðsetningu í hjarta borgarinnar. Í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá hótelinu er að finna nokkra af bestu stöðum Helsinki, frábæra verslunarmöguleika, veitingastaði og fjölbreytt menningarframboð.

Helsinki flugvöllur er í aðeins 20 kílómetra fjarlægð og þú munt finna fullt af almenningssamgöngumöguleikum í nágrenninu. Háþróuð herbergin okkar og svíturnar sýna tímalausan norrænan stíl með samræmdri litatöflu.

Við erum stolt af því að uppfylla ströngustu kröfur um gæði og öryggi og höfum hýst nokkrar VIP og háttsettar heimsóknir stjórnvalda á undanförnum árum. Við fylgjum ströngum viðmiðum til að hugsa um umhverfið og við erum Green Key vottuð.

Verðin

154 990 kr

á mann í tvíbýli

55 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 200 manns.

Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest.

Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com