til Gdansk

 

30. apríl til 3. maí 2026

Pólverjar eiga ekki bara Evrópumet í fjölda s-hljóða í tungumáli, þeir eiga líka margar af fegurstu borgum Evrópu og þar á meðal er Gdansk!

Það er ekki að ástæðulausu að Gdansk er að verða einn af vinsælli áfangastöðum ferðamanna í Evrópu. Þessi skemmtilega og fallega hafnarborg stendur eins og lítið smáríki við Eystrasaltið, þar sem áin Motlawa rennur meðfram litríkum hafnarhúsunum. 

Hvort sem þú vilt stuð og djamm, eða bara taka því rólega og njóta frísins í huggulegheitum og sjarmerandi umhverfi – þá er Gdansk kjörinn áfangastaður fyrir þig. 
Borgin stóð í miðjum upptökum seinni heimsstyrjaldarinnar og varð fyrir miklum áhrifum af því langa stríði. En þótt um sé að ræða gamla borg með stórbrotna fortíð og söguleg ör því til sönnunar, er Gdansk dagsins í dag einstaklega lífleg og sjarmerandi, með litríku menningar- og listalífi, og götur hennar og torg iðandi af fjörugu mannlífi, skemmtilegum mörkuðum og listviðburðum.

Hvað er hægt að gera í Gdansk

Heimsækja hið magnaða seinni heimstyrjaldar safn borgarinnar
Fara og skoða Oliwa Dómkirkjunna eða skoða gamlar byggingar og söfn, með viðkomu á góðu kaffihúsi eða bar
Kommúnista-túrinn, ferðastu um borgina á gömlum Trabant 
Ganga um Dlugi-Torgið og skoða markaðinn
Kvöldið bíður þín svo með spennandi stundum á veitingahúsum, klúbbum og börum borgarinnar
Göngutúr í miðbænum með íslenskri leiðsögn og vodka smökkun

 Hvað er innifalið í ferðinni

Flug 

Flogið í áætlunarflugi fram og til baka með Wizz air, 1 innrituð taska 20 kg  og taska sem að passar undir sætið fyrir framan þig (8 kg)

Flogið út

 Brottför fimmtudaginn 30. apríl frá Keflavík. Flogið út klukkan 19:25 og lent í Gdansk klukkan 01:05.

Flogið Heim 

Heimkoma sunnudaginn 3. maí frá Gdansk. Flogið heim klukkan 16:50 og lent í Keflavík klukkan 18:45.

Gisting

3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli þar sem morgunverður og wi-fi er innifalið.

Rútur

Rútuferð til og frá flugvelli í Gdansk, 20 mín

Farastjórn 

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

Novotel Gdansk Centrum
***

Hið nútímalega Novotel Gdańsk Centrum hótel í miðborg hafnarborgarinnar Gdańsk er aðeins 200 metrum frá gamla bænum. Í boði eru rúmgóð og loftkæld herbergi og ókeypis WiFi hvarvetna.

Öll nútímalegu herbergin á Novotel eru með kapalsjónvarp, minibar og skrifborð. Það er líka sérbaðherbergi í þeim öllum.

Starfsfólkið er til taks allan sólarhringinn. Við upplýsingaborð ferðaþjónustu fá gestir aðstoð við að skipuleggja dvölina í Gdańsk sem og upplýsingar um þá afþreyingu sem borgin býður upp á.

Novotel Gdańsk Centrum er með líkamsræktaraðstöðu. Gestir geta einnig leigt hjól eða slakað á í rúmgóða garðinum eða á veröndinni.

Hótelið býður upp á bar, veitingastað undir berum himni og NOVO SQUARE-setustofubar þar sem hægt er að smakka á alþjóðlegum réttum. Morgunverður er borinn fram á morgnana.

Hótelið fær 8.3 í einkunn á booking.com og 9.5 í einkunn fyrir staðsetningu

Verðin

 129 990 kr

á mann í tvíbýli

30 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

 Mercure Gdańsk Stare Miasto
****

Mercure Gdańsk Stare Miasto er hæsta bygging Gdańsk og er staðsett aðeins 400 metrum frá fallega gamla bænum í Gdańsk og 200 metrum frá Madison Shopping Gallery með yfir 100 verslunum.

Þetta reyklausa hótel býður upp á loftkæld og glæsileg herbergi með ókeypis WiFi, minibar og flatskjásjónvarpi. Öll herbergin á Mercure Gdańsk Stare Miasto bjóða upp á fallegt útsýni yfir gamla bæinn og sögulegu skipasmíðastöðina. Öll eru með te- og kaffiaðstöðu.

Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er í boði á hverjum morgni og að beiðni er hægt að bera hann fram á herbergi. Veitingastaðurinn Winestone sérhæfir sig í les planches - máltíðum framreiddar á steindiskum - og víni sem getur fylgt réttinum þínum eða keypt sem minjagrip. Það er líka nútímalegur móttökubar. Það er skammtari með ókeypis drykkjarvatni á hverri hæð.

Gestir geta æft í vel útbúinni líkamsræktarstöð og með aðstoð starfsfólks geta gestir pantað nudd og snyrtimeðferðir í Diamond Clinic í næsta húsi. Vingjarnlegt starfsfólk hótelsins er til taks allan sólarhringinn og getur útvegað þvotta- og strauþjónustu.

Mercure Gdańsk Stare Miasto býður upp á 10 ráðstefnuherbergi af ýmsum stærðum.

Það er um 1,3 km að áhugaverðum stöðum í gamla bænum eins og Artus Court, Nepture Fountain, Crane yfir Motława River og St Mary's Church. Í 5 mínútna göngufjarlægð eru Gdańsk Główny-lestarstöðin. Gdańsk-alþjóðaflugvöllurinn er í 15 km fjarlægð og hægt er að útvega flugrútu gegn aukagjaldi.

Heildareinkunn 8,6 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

 134 990 kr

á mann í tvíbýli

25 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

 Hilton Gdansk
*****

Hilton Gdansk er staðsett við Motlawa-ána í gamla bænum í Gdansk og er með loftkæld herbergi með ókeypis WiFi. Innisundlaugin á efstu hæð er með víðáttumikið útsýni yfir svæðið.
Herbergi Hilton eru með 32 tommu LCD sjónvörp með gervihnattarásum. Þau eru einnig með te/kaffiaðstöðu og minibar. Flest eru með útsýni yfir gamla bæinn eða ána.

Hótelið er staðsett aðeins 200 m frá miðaldahöfninni og um 600 m frá Dlugi Targ-stræti, hjarta gamla bæjarins. Lech Walesa-flugvöllurinn er 16 km frá hótelinu.

Gestir geta slakað á í líkamsræktinni og gufubaðinu á Hilton. Hótelið er einnig með heilsulind og vellíðunaraðstöðu sem býður upp á nudd og meðferðir.

Veitingastaðurinn Mercato framreiðir pólska og alþjóðlega rétti. High 5 Terrace Bar er með opna verönd sem er með útsýni yfir Gdansk. Gestir geta einnig fengið sér drykk á F32 barnum.

Heildareinkunn 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

154 990 kr 

á mann í  tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

*****

Þetta 5-stjörnu lúxushótel er staðsett í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk og býður upp á nútímalegar innréttingar, sláandi borgarútsýni og nýtískulega hönnuð herbergi með ókeypis Wi-Fi Interneti og hita í baðherbergisgólfinu.

Radisson Blu er staðsett í fallegu, sögulegu, gotnesku húsi og býður upp á glæsilegan veitingastað, Verres en Vers, sem sérhæfir sig í franskri matargerð og býður upp á fjölbreytt úrval af víni. Á morgnana geta gestir fengið sér af fjölbreyttu morgunverðarhlaðborði.

Öll herbergin á Radisson Blu eru með loftkælingu og flatskjásjónvarp með gervihnattarásum og gjaldrásum. Hvert herbergi er með öryggishólf fyrir fartölvu og minibar.

Gestir á Blu geta slappað af í fullbúinni afþreyingarmiðstöð með gufubaði og eimbaði. Starfsfólk móttökunnar er til taks allan sólarhringinn og getur aðstoðað við ferðir og skoðunarferðir,

Radisson Blu er staðsett á konungsgötunni í Gdansk, við hliðina á mörgum galleríum, verslunum og veitingastöðum. Lech Walesa-flugvöllurinn er í aðeins 15 km fjarlægð.

Heildareinkunn 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

149 990 kr

á mann í  tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 50 manns. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com