
Til Riga 23. maí til 27. maí 2026
Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.
Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dypra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Ríga er mikil dekurborg, þekkt meðal annars fyrir magnaðar fegurðarmeðferðir sem finna má á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar.
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.
Hvað er hægt að gera í Riga
Art Nouveau safnið er ansi magnað
Smakkaðu Black Balsam drykkinn
Skelltu þér í andlitsbað eða nudd
Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla
Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Air Baltic þar sem innifalið er ein innrituð taska allt að 20kg og handfarangur
Flug út
Beint flug út á laugardaginn 23. maí frá Keflavík kl : 00:30 og lent í Riga 07:05.
(ath. næturflug - mætt föstudagskv. 22.05 í KEF)
Flug heim
Heimflug frá Riga á miðvikudaginn 27. maí kl 22:45 og lent í Keflavík kl 23:40
Gisting
4/5 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Riga, 15-20 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.
Hótel
****
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum.
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 10:00 - 22:00. Á 26.hæð er Skyline barinn
sem er opinn frá kl 18:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir all.
Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu.
Verðin
134 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
AC Hotel Riga er þægilega staðsett í hinu heillandi Art Nouveau-hverfi í miðbæ Riga. Gestir geta því flúið hávaða miðbæjarins á meðan þeir eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá gamla bænum í Riga og áhugaverðustu stöðum borgarinnar.
AC Hotel Riga er með 239 hótelherbergi og svítur og býður einnig upp á 4 fjölnota ráðstefnuherbergi sem eru staðsett á efri hæð hótelsins og rúma 184 gesti í stærsta fundarherbergi hótelsins.
Gististaðurinn er umkringdur veitingastöðum, kaffihúsum og sælkeraverslunum, söfnum og listagalleríum, byggingum í Art Nouveau-stíl, íþróttaaðstöðu, tónleika og viðburðavettvöngum.
Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,2 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli