Til The Hague

18/19. september - 20/21. september &
25/26. september - 27/28. september 2026

Hrífandi borg, skreytt gömlum heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og blómlegum almenningsgörðum. Hér er lífleg menning, skemmtun og gleði.
Gangi þér allt í Haag!  

 Í Haag er aðsetur hollenska þingsins en auk þess býr þar Willem-Alexanders Hollandskonungur. Þá er borgin þekkt sem dómstólaborg heimsins, þar starfrækja Sameinuðu þjóðirnar Alþjóðadómstólinn (ICJ) og Alþjóðaglæpadómstólinn (ICC), ásamt fjölda annarra alþjóðlegra stofnanna. Haag er þriðja stærsta borg Hollands og þar búa um 500.000 manns, en 700.000 sé héraðið allt tekið með. Þar hefur ferðamanna-iðnaðurinn sótt í sig veðrið síðustu ár, og sífellt fleiri leggja leið sína þangað, enda býr borgin yfir miklum þokka og fegurð.
Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu hollensku endurreisnarhúsa frá 17. öld, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endur-
reisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouvau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, falleg ströndin að Norðursjó.

Hvað er hægt að gera í The Hague

The Pier Skyview býður upp á útsýnisferð í risa parísarhjóli.
Ein elsta gatan í Haag er Molenstraat. Skemmtileg til göngu.
Scheweningen Beach Speedboat Tour er vægast sagt hressandi skemmtun.
Í Panorama Mesdag Museum er áhrifarík og flott sýning með risamálverki sem sýnir forna tíð. 
Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder. Bjórgerð í munkaklaustri. Mögnuð upplifun!
Planet Jump er trampólíngarður, og hann er staðsettur í kirkju. Athyglisvert!

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Amsterdam með Icelandair í áætlunarflugi innrituð 23kg  taska ásamt 10kg handfarangri. 

Brottför

Brottför 1 Icelandair 100 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 18. september kl. 07:20, lent kl. 11:35 í Amsterdam

Brottför 2 Icelandair 100 sæti:
Frá Keflavík laugardaginn 19. september kl. 07:20, lent kl. 11:35 í Amsterdam

Brottför 3 Icelandair 100 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 25. september kl. 07:20, lent kl. 11:35 í Amsterdam

Brottför 4 Icelandair 100 sæti:
Frá Keflavík laugardaginn 26. september kl. 07:20, lent kl. 11:35 í Amsterdam

Heimkoma

Heimför 1 Icelandair  100 sæti:
Frá Amsterdam sunnudaginn 20. september kl.12:55 og lent á Keflavík kl 15:25.

Heimför 2 Icelandair 100 sæti:
Frá Amsterdam mánudaginn 21. september kl.12:55 og lent á Keflavík kl 15:25.

Heimför 3 Icelandair  100 sæti:
Frá Amsterdam sunnudaginn 27. september kl.12:55 og lent á Keflavík kl 15:25.

Heimför 4 Icelandair 100 sæti:
Frá Amsterdam mánudaginn 28. september kl.12:55 og lent á Keflavík kl 15:25.

Gisting

2 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli
Rúta tekur um 1 klst

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri í hvorri ferð frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

Babylon Hotel Den Haag
****

Babylon Hotel Den Haag er 4 stjörnu hótel með útsýni yfir Haagsche Bos-garðinn, við hliðina á aðallestarstöðinni í Haag. Boðið er upp á glæsileg, hljóðeinangruð herbergi með flatskjá með kapalrásum og lúxusbaðherbergi.

Öll herbergin á Babylon Hotel Den Haag eru með ókeypis Nespresso-kaffi og teaðstöðu. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna.

Aðalverslunarsvæði borgarinnar er í 8 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Scheveningen og ströndin eru í 15 mínútna fjarlægð með sporvagni frá Den Haag Central. Mauritshuis-safnið er í 10 mínútna göngufjarlægð. Að auki býður hótelið upp á beinan aðgang að New Babylon-verslunarmiðstöðinni.

Hótelið býður upp á morgunverðarhlaðborð. Veitingastaðurinn TheLivingRoom býður upp á úrval af veitingum, þar á meðal léttar veitingar og 3 rétta sælkerakvöldverði. Kokkteilar og vín eru í boði á glæsilega barnum.

Verðin

114 990 kr + 15 000kr fyrir auka nótt

á mann í tvíbili í 2 nætur

30 000 kr+ 15 000kr fyrir auka nótt

aukagjald í einbýli í 2 nætur

Hótel

****

Voco The Hague, an IHG Hotel er með líkamsræktarstöð, garð, verönd og veitingastað í Haag. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu, sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er í 600 metra fjarlægð frá miðbænum og í 2,5 km fjarlægð frá Madurodam.

Herbergin eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar, kaffivél, sturtu, ókeypis snyrtivörum og skrifborði. Herbergin eru með öryggishólfi og sum herbergin eru með borgarútsýni. Allar einingar eru með sérbaðherbergi, hárþurrku og rúmfötum.

Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.

Paleis Huis Ten Bosch er 4,1 km frá voco Haag, an IHG Hotel, en Westfield Mall of the Netherlands er 7 km frá gististaðnum. Næsti flugvöllur er Rotterdam-Haag-flugvöllur, 19 km frá gististaðnum.

Verðin

129 990 kr + 20 000kr fyrir auka nótt

á mann í tvíbili í 2 nætur

30 000 kr + 20 000kr fyrir auka nótt

aukagjald í einbýli í 2 nætur

Verðin miðast við 400 manns í 4 brottförum á 2 helgum, en hótel hafa ekki verið tekin frá.
Einnig er verð á hótelum ekki staðfest, verð eru byggð á fyrri hópum.
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com