
Til Brighton
14. maí til 17. maí &15. maí til 18. maí 2026
Brighton hefur verið kölluð mest hip og kúl borg Bretlandseyja. Hún hefur auk þess oftar en einu sinni verið kosinn hamingjuríkasti staður til að búa á í Bretaríki.
Brighton er enskur strandbær í klukkutíma fjarlægð með lest frá London, og mjög vinsæll fyrir dagsferðir frá höfuðborginni. Þar er löng strandlengja, mjög áhugaverður og fjölskylduvænn skemmtigarður á höfninni, og margar fallegar 18. aldar byggingar. Brighton er auk þess þekkt fyrir mjög fjörugt næturlíf, þar sem allir fá að njóta sín, borgin er t.d. þekkt fyrir vinalega afstöðu til samkynhneigðra og stundum kölluð höfuðborg samkynhneigðra í Englandi.
Brighton’s Lanes
er eitt fallegasta og um leið sögufrægasta hverfi borgarinnar. Þröngar götur frá þeim 18. aldar fiskibæ sem Brighton var forðum, blandast hér skemmtilega við nútímalegar smáverslanir og kaffihús. Stórgóð blanda af því gamla og nýja. Hægt er að bóka ferðir um svæðið með úrvals leiðsögn og upplifa einstakt andrúmsloft og stemmingu fyrri tíma.
Hvað er hægt að gera í Brighton
Skelltu þér á tehús og sötraðu alvöru enskt te með scones og jam
Kíktu inn í ævintýraveröldina á Brighton Toy and Model Museum
Duke of York bíóið er elsta starfandi kvikmyndahús Evrópu. Kíktu í bíó!
Hér er einn elsti sjávardýragarður heims, Sea Life Centre, og lengi hægt að gleyma sér þar
The Royal Pavilion er athyglisverð bygging
Í The Lanes verslunarhverfinu má gera góð kaup, þar eru t.d. margar flottar second hand búðir
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug með Icelandair
ásamt
Flogið út
Brottför 1(100 manns):
frá Keflavík fimmtudaginn 14. maí kl. 07:35, lent kl. 11:45 á London Gatwick.
frá Keflavík fimmtudaginn 14. maí kl. 07:35, lent kl. 11:45 á London Gatwick.
Brottför 2 (100 pax):
frá Keflavík föstudaginn 15. maí kl. 07:35, lent kl. 11:45 á London Gatwick.
frá Keflavík föstudaginn 15. maí kl. 07:35, lent kl. 11:45 á London Gatwick.
Flogið heim
Heimför 1 (100 manns):
frá London Gatwick. sunnudaginn 17. maí kl. 15:40 og lent í Keflavík kl. 17:55
frá London Gatwick. sunnudaginn 17. maí kl. 15:40 og lent í Keflavík kl. 17:55
Heimför 2 (100 manns):
frá London Gatwick mánudaginn 18. maí kl. 15:40 og lent í Keflavík kl. 17:55
frá London Gatwick mánudaginn 18. maí kl. 15:40 og lent í Keflavík kl. 17:55
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli, morgunverður, wifi og borgar-skatturinn
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli til Brighton: 30mín frá Gatwick og 1 klst og 30 mín akstur frá Heathrow.
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par eða einstakling
sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
****
Leonardo Hotel Brighton Waterfront er vel staðsett hótel með útsýni yfir sjávarsíðuna og er í aðeins 400 metra fjarlægð frá Brighton Pier og Royal Pavilion. Á hótelinu er keypis WiFi hvarvetna, veitingastaður með sjávarútsýni, sundlaug og heilsulind.
Herbergin eru með loftkælingu, Dream-rúmi, flatskjá og en-suite baðherbergi með ókeypis snyrtivörum.
Gestir hafa aðgang Health & Leisure Club án endurgjalds. Innisundlaug, eimbað, gufubað og fullbúin líkamsræktarstöð eru í boði.
Veitingastaðurinn er nútímalegur og framreiðir alþjóðlegan matseðil á kvöldin. Atrium Bar er miðdepill hótelsins en það er glæsilegur staður með risastóru glerþaki. Barinn og setustofusvæðið eru nútímaleg með þægilegum sætum þar sem gott er að slaka á.
Hótelið er nálægt Lanes-verslunarsvæðinu, á göngusvæðinu við sjávarsíðuna. Brighton-lestarstöðin er í minna en 10 mínútna göngufjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
144 990 kr
Á mann í tvíbýli
45 000 kr
Auka fyrir einbýli
Hótel
****
Leonardo Hotel Brighton er staðsett við hliðina á Brighton-lestarstöðinni í miðbænum og í 15 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Það státar af sólarhringsmóttöku, bar og veitingastað.
Í innan við 15 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu er að finna smásölumiðstöð borgarinnar og áhugaverða staði eins og Laines, Brighton Dome, Theatre Royal Brighton og Gardner Centre.
Herbergin eru glæsileg og státa af Dream-rúmi með ferskum hvítum rúmfötum, flatskjáum með Freeview-rásum og stóru vinnusvæði. Baðherbergin eru rúmgóð og bjóða upp á spa-snyrtivörur.
Hægt er að fá hádegisverð og kvöldverð á Oddsocks Bar and Kitchen en þar er boðið upp á úrval smárétta, staðgóðar máltíðir á borð við grillaðan kjúkling og vinsæla breska rétti og mikið úrval drykkja. Barinn framreiðir hádegisverð og léttar veitingar ásamt kaffi og drykkjum.
Leonardo Hotel Brighton býður einnig upp á þjónustu á borð við fatahreinsun/þvottaþjónustu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 8,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
154 990 kr
Á mann í tvíbýli
50 000 kr
Auka fyrir einbýli
Hótel
The Grand Brighton*****
Með sínum íburðarmikla endurreisnarstíl er The Grand Brighton á stórkostlegum stað við sjávarbakkann í Brighton og er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá Brighton Pier.
Herbergin á The Grand Brighton eru með hágæða húsgögnum og eru með loftkælingu, ókeypis WiFi, en-suite baðherbergi og flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum.
Stílhreini kokteilbarinn og veröndin er með ótrufluðu útsýni yfir sjávarsíðuna og býður upp á hefðbundið Sussex-cream teas. Gestir geta einnig notið frábærrar máltíðar á veitingastaðnum.
Hótelið er staðstett í hjarta hins líflega Brighton og er í 5 mínútna göngufjarlægð frá The Lanes verslunargötum og í 10 mínútna göngufjarlægð frá Royal Pavilion
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
164 990 kr
Á mann í tvíbýli
60 000 kr
Auka fyrir einbýli
Verðin miðast við 200 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir