Til Rómar
1. maí - 4. maí 2026

Róm eða borgin eilífa er eitt riasvaxið listasafn full af menningu, tísku, gómsætum mat og sögufrægu stöðum og byggingum. Hún var alla vega ekki byggð á einum degi.

Ítalía er draumastaður í hugum margra. Landið býr yfir magnaðri sögu og menningu, þar eru víða stórbrotnar byggingar, náttúrufegurðin er einstök, og svo auðvitað það mikilvægasta: Maturinn! Ofan á alla þessa kosti bætist dásamlegt veðurfar, og þjóðin sem þarna býr. Það er bara eitthvað við Ítali, sem erfitt er að útskýra. Þeir eru bara svo töff!   
Róm er svo ótrúleg, gamla borgin, borg miðaldarinnar, endurreisnartímans.  Glæsileg torg, kirkjur, þröng sund, Pantheon, Navona og Gyðingahverfið, magnað.
 
Miðborg Rómar skiptist í níu hverfi en það er nánast eingöngu miðborgin sem er dvalarstaður 99 prósenta þeirra sem þangað koma til heimsóknar. Eru enda úthverfi borgarinnar töluvert nýlegri en gamla miðborgin og engin sérstök saga eða minjar þar sem heilla ferðamenn mikið nema hræbillegar mafíublokkir þyki spennandi sýn.
En borgin er stútfull af frábærum veitingastöðum, börum, búðum og skemmtistöðum.  Það leiðist alla vega engum í Róm!

Hvað er hægt að gera í Róm

Kíktu á Hringleikhúsið, Spænsku tröppurnar, Pantheon, Trevi gosbrunninn og og og ...
Taktu Metro það er fljótlegasta farartækið til að komast á milli staða
Via Condotti  verslunargatan fyrir þá sem vilja versla hátísku og Monti fyrir ... okkur hin
Pizzeria, Trattoria, Osteria út um allt og margir staðir hafa verið með sama matseðilinn í 25 ár, Ítalir klikka ekki á matnum. Svo er hægt að fara í matarferð með leiðsögn. Buon appetito!
Vatíkanið er land inni í borginni, hvergi annarsstaðar hægt að sjá svoleiðis

Farðu í dagsferð til Napolí, Pompeii eða til Amalfi Coast

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint Flug með áætlunarflugi Icelandair, innifalin farugurstaska allt að 23kg og 10kg handfarangur

Flogið út

Brottför föstudaginn 1. maí  kl 07:50 og áætluð lending í Róm er kl 14:25

Flogið heim

Heimför mánudaginn 4. maí kl 15:25 frá Róm til Keflavík og lent um kl 18:15

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli, morgunverður innifalinn, wifi og borgarskatturinn (6€ á mann per nótt).

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli ca 35 - 50mín akstur

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn 5.000 kr. aukagjaldi á mann.

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

****

Radisson Blu GHR Rome býður upp á ókeypis WiFi, ókeypis líkamsræktarstöð og ókeypis skutluþjónustu til/frá Spænsku tröppunum, veitingastað og 2 bari. Tónlistarstaðurinn Auditorium Parco della Musica er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu.

Herbergin og svíturnar á Radisson Blu GHR Rome eru loftkæld, öll með LED-sjónvarpi, minibar og hárþurrku. Sérbaðherbergið er með snyrtivörum.

Morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega.

Villa Borghese er í 1,5 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og 8,0 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

159 990 kr

Á mann í tvíbýli

40 000 kr

auka fyrir einbýli

Verðin miðast við 70 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8900
GSM. 848 1520