Svartfjallaland er hluti af hinum mjög svo fallega Balkanskaga sem liggur við Adría-hafið. Það er kannski ekki stórt, en býr yfir mikilli náttúru-fegurð. Fjallasýn þar er engu lík, strandirnar hreinar og fallegar og sjórinn kristaltær.
Fjöllin í Svartfjallalandi bjóða upp á einstakt útsýni. Þar er líka að finna hið stóra ferskvatns stöðuvatn Skadar, sem Svartfjallaland deilir með nágrönnum sínum Albönum. Margir möguleikar eru fyrir hvers kyns gönguferðir, fuglaskoðunarferðir og fleira. Þá er gaman að heimsækja vinalegt sjávarþorp við ströndina, eins og til dæmis Virpazar. Hægt er að mæla eindregið með að skoða Tara River gljúfrið, með sínum svimandi háu klettaveggjum sem rísa um 1300 metra upp með ánni. Gljúfrið er það næst stærsta í heiminum og er staðsett í Durmitor þjógarðinum, sem er þekktur fyrir önnur tignarleg gljúfur og afar fjölbreytt gróðurfar
Það er nánast ómögulegt að skoða ferðasíður, þar sem Svartfjallaland er ekki nefnt sem eitt af heitustu stöðunum þessi misserin. Og þrátt fyrir að heimsóknum hafi vissulega fjölgað, halda íbúar landsins ró sinni og koma fram við gesti sína fullir einlægri gestrisni og sjarma.
Oft er talað um að við Íslendingar séum heimsmeistarar í hinu og þessu, miðað við höfðatölu. Því hefur jafnvel verið haldið fram að við ættum heimsmet í símaeign. En það er ekki rétt. Heimsmeistarinn í farsímaeign er nefnilega Svartfjallaland! 1,6 sími á hvern íbúa þjóðarinnar.
Hvað er hægt að gera í Budva og nágrenni
Kíktu á ballerínuna, Statua Ballerina sem er niður við strönd
Í gamla bænum eru fjölmargar byggingar sem vert er að skoða að utan og innan.
Margar fallegar gönguleiðir með einstakt útsýni, eins og t.d. borgarmúrinn
Gjeggjað að skreppa í dagsferð til Dubrovnik eða Kotor
Farðu í kayak eða bátsferð
Slakaðu á í sólbaði og fáðu þér einn ískaldann á ströndinni
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur.
Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði
Flug út
Frá Keflavík til Tivat, 24.september - flugtímar koma síðar.
Flugtímar áætlaðir út snemma og heim um miðjan dag. Fluglengd um 4,5 - 5 klst
Flug heim
Frá Tivat til Keflavíkur, 27/28.september, brottför eftir hádegi
Gisting
3/4 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er glæsilegur morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Tivat, 25-30 mín
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical
Ferðalottó-Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Vinsamlega athugið að Svartfjallaland er ekki í Evrópusambandinu því eru reykingar leyfðar inni á flestum stöðum. Eins gildir ekki evrópska sjúkratryggingakortið.
Hótel
-staðfest verð-*****
Maestral Resort & Casino, sem var uppgert að fullu árið 2017, er staðsett í rómantískum klettóttum flóa, rétt við hliðina á einkasandströnd, nálægt sjávarþorpinu Pržno og gamla bænum í Budva. Nokkrar sundlaugar, heilsulindarsvæði og nútímalegt spilavíti eru hluti af samstæðunni.
Nútímalega innréttuð, öll herbergin eru loftkæld og eru með sérsvölum, minibar og LCD-gervihnattasjónvarpi. Flest herbergin eru með víðáttumiklu sjávarútsýni. Ókeypis Wi-Fi Internet er í boði ásamt ókeypis einkabílastæði.
Það eru 4 veitingastaðir á staðnum sem framreiða Miðjarðarhafs- og alþjóðlega matargerð með miklu úrvali af heimsfrægum vínum. Fjölmargir barir bjóða upp á hressandi drykki og snarl.
Gestir geta slakað á í heitum pottum, gufubaði og eimbaði. Verðlaunaheilsulindin okkar býður upp á margs konar snyrtimeðferðir og nudd, þar á meðal tælenskt nudd. Köfunarmiðstöð og tennisvellir má finna nálægt Resort & Casino Maestral.
Gestir geta heimsótt Sveti Stefan eða skoðað hið líflega næturlíf Budva með börum, veitingastöðum og útiklúbbum, sem staðsett er í 8 km fjarlægð frá gististaðnum.
Hótelið fær heildareinkunina 9,2 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
244 990 kr + 15 000 kr
fyrir auka nótt
á mann í tvíbýli í 3 nætur
40 000 kr + 15 000 kr
fyrir auka nótt
aukagjald í einbýli í 3 nætur
Hótel
****
Avala Resort & Villas er einstakur dvalarstaður á ströndinni, aðeins 50 metra frá gamla bænum í Budva, það býður upp á fyrsta flokks orlofsupplifun.
Dvalarstaðurinn býður upp á inni- og útisundlaug, stóra heilsulind, líkamsræktaraðstöðu og 2 veitingastaði.
Þú getur notið frábærs sjávar- eða fjallaútsýnisins úr herberginu þínu, sem er innréttað eftir hæstu gæðastöðlum, og er búið flatskjásjónvarpi, stafrænni símalínu og þráðlausu Interneti.
Vegna einstakrar staðsetningar er hægt að bjóða upp á hinar ýmsu ferðir og tómstundir, allt frá dæmigerðum sólar- og sjávar tómstundum upp í sérhæfða skemmtun fyrir kræfustu gestina.
Hótelið fær 8,7 í heildareinkunn og 9,7 fyrir staðsetningu. á booking.com
Verðin
229 990 kr + 10 000 kr fyrir auka nótt
á mann í tvíbýli í 3 nætur
30 000 kr + 10 000 kr fyrir auka nótt
aukagjald í einbýli í 3 nætur
Hótel
*****
Regent Porto Montenegro er staðsett í Boka-flóa, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, í lúxusþorpinu Porto Montenegro í bænum Tivat og býður upp á útisundlaug ásamt heilsulind og vellíðunaraðstöðu. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á gististaðnum.
Þetta lúxushótel er byggt í feneyskum endurreisnarstíl og býður upp á 175 herbergi sem eru annað hvort með svölum eða verönd. Aðstaðan felur í sér loftkælingu, flatskjásjónvarp með gervihnattarásum og öryggishólf. Rúmgóð baðherbergin eru með baðsloppum, inniskóm og ókeypis snyrtivörum.
Murano Restaurant býður upp á fágaða matarupplifun en Onyx Bar, Gourmet Corner og Pool Bar bjóða upp á fjölbreyttara úrval af veitingum og afþreyingu.
Regent SPA býður upp á fjölbreytt úrval meðferða eins og gufubað, tyrkneskt bað, eimbað og líkamsræktarstöð, auk innisundlaug með heitum potti, útisundlaug, sundlaugarklúbb með 2 sjóndeildarhringslaugum og 2 sundlaugum fyrir börn. Tennis- og skvassvellir auk keiluhallar eru einnig í boði í nágrenninu.
Smábátahöfn á heimsmælikvarða með 450 bátarúmum hýsir heimsklassa snekkjuklúbb og fulla siglingaaðstöðu. Það er líka heimili fjölmargra kaffihúsa og veitingastaða við vatnið og hágæða smásöluverslana sem bjóða upp á bæði staðbundin og alþjóðleg vörumerki, allt frá fínum vínum til lúxustísku.
Hótelið fær heildareinkunina 9,5 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
259 990 kr + 25 000 kr fyrir auka nótt
á mann í tvíbýli í 3 nætur
50 000 kr + 25 000 kr fyrir auka nótt
aukagjald í einbýli í 3 nætur
Tilboðið er fyrir 200 manns, flogið er í leiguflugi og er miðað við að minnst 80% sætanýting sé í flugi með leiguflugi.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir