
Til Dubrovnik
24. september til 27/28. september 2026
Dubrovnik er staðsett á suðurhorni Króatíu við Adríahaf og er þekkt fyrir hinn gullfallega og ævaforna miðbæ.
Gamli bærinn er fullur af börum, veitingastöðum og litlum verslunum. Ef þú vilt fara í Game of Thrones leiðangur, gjörðu svo vel!
Hér áður fyrr var Dubrovnik sjálfstætt ríki. Þess vegna er gamli bærinn umkringdur virkisveggjum, sem byggðir voru til þess að vernda landið frá árásum Rómverja og margra annara ríkja í gegnum aldirnar.
Í Júgóslavíustríðinu (sem lauk 1995) var borgin nánast eyðilögð en undanfarna áratugi hefur mikil endurbygging átt sér stað og í dag hefur hún nánast komist aftur í sitt gamla form. Byggingalist Dubrovnik er algjörlega mögnuð og ekki skemmir náttúrfegurð Króatíu og stórbrotin fegurð Adríahafsins fyrir. Það má í raun segja að umhverfið sé algjört augnakonfekt.
Hvað er hægt að gera í Dubrovnik
Farðu í Game of Thrones skoðunarferð
Í borginni eru fjölmargar byggingar sem vert er að skoða að utan og innan.
Margar fallegar gönguleiðir með einstakt útsýni, eins og t.d. borgarmúrinn, hægt að ganga hringinn
Taktu kláf upp í fjallið fyrir ofan borgina og njóttu útsýnisins
Farðu í skoðunarferð um eyjarnar og baðaðu þig í tærasta sjó Evrópu
Slakaðu á í sólbaði og fáðu þér einn ískaldann
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur.
Leiguflugsverðin miðast við gengi dagsins bæði á evrunni og eldsneytisverði
Flug út
Frá Keflavík til Dubrovnik, 14. mars 2024, flugtímar koma síðar.
Flugtímar áætlaðir út snemma og heim um miðjan dag. Fluglengd um 4,5 - 5 klst
Flug heim
Frá Dubrovnik til Keflavíkur, 17. mars 2024, brottför eftir hádegi.
Gisting
3/4 nætur á 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Dubrovnik, 10 -25 mín
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
*****
Fimm stjörnu hótel staðsett í Cavtat við ströndina. Það er auðvelt að slaka á og njóta lífsins. 2 strandir, 2 sundlaugar, heilsulind og frábært útsýni yfir Dalmation strandlengjuna. Frá hótelinu eru nokkrar skemmtilegar gönguleiðir meðfram strandlengjunni. Á hótelinu eru einnig veitingastaðir, meðal annars steikhús, hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður niður við sjó og svo snakkbar sem og nokkrir barir. Dubrovnik er í ca. 20 mínútna akstursfjarlægð og 30 mínútur með taxibát.
Hótelið hefur verið verðlaunað fyrir að halda framúrskarandi viðburði fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Fundir og árshátíðir eru þeirra sérgrein.
Hótelið fær heildareinkunina 9,0 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
259 990 kr + 20 000 kr fyrir auka nótt
á mann í tvíbýli í 3 nætur
50 000 kr + 20 000 kr fyrir auka nótt
aukagjald í einbýli í 3 nætur
Hótel
*****
Hotel Dubrovnik Palace er staðsett á Lapad-skaga í Dubrovnik. Þar er bæði strönd og köfunarmiðstöð. Öll herbergin eru hönnuð á fágaðan hátt og máluð í jarðarlitum. Þau hafa aðgang að svölum og þaðan er útsýni yfir Elaphite-eyjar.
Ókeypis WiFi, loftkæling og lúxussnyrtivörur eru staðalbúnaður í herbergjunum. Öll eru þau búin flatskjá með gervihnattarásum og minibar.
Þar eru 4 mismunandi veitingastaðir, meðal annars veitingastaður við ströndina. Drykkir og léttar veitingar eru framreiddar á sundlaugarbarnum.
Innanbæjarstrætó gengur í gamla bæinn á 20 mínútna fresti. Stoppistöðin er á móti hótelinu og ferðin tekur um 20 mínútur.
Það er innisundlaug, heitur pottur og gufubað í heilsulindinni. Þar er einnig líkamsræktarstöð og í nágrenninu er að finna fjölda skokkstíga.
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
254 990 kr + 20 000 kr fyrir auka nótt
á mann í tvíbýli í 3 nætur
50 000 kr + 20 000 kr fyrir auka nótt
aukagjald í einbýli í 3 nætur
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 200 manns í leiguflugi,
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir