
Til Verona
25-28.04.2023
Verona er á norðausturhluta Ítalíu og er oft kölluð litla Róm. Hver þekkir sögu Shakespeares um Rómeó og Júlíu, en Verona er sögusviðið
Verona er ein ríkasta borg Norður-Ítalíu af rómverskum fornleifum. Merkilegast af þeim er hringleikahúsið eða Arena, og er það þriðja stærsta rómverska hringleikahúsið sem varðveist hefur og er nú notað fyrir óperur og tónleikahald.
Verona er borg í Veneto-héraði með gömlum miðaldabæ sem byggður er meðfram Adige-fljótinu.
Hinn friðsæli bær var sögusviðið fyrir þrjú af leikritum Shakespeares - frægast þeirra, Rómeó og Júlía, innsiglaði varanlega orðstír Verónu sem borg ástarinnar.
Hvað er hægt að gera í Verona
Farðu í matar og vínsmakk um dásamlegu Verona.
Skoðaðu ótal mörg falleg torg og rómverska hringleikhúsið, farðu á tónleika.
Vafraðu í gegnum Centro Storico, þar er t.d að finna hús Júlíu.
Hvert sem litið er má smella mynd og safna í minningarbankann.
Kíktu á ströndina við La Garda vatnið.
Slakaðu á í sólbaði og fáðu þér einn ískaldann.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical, 1 innrituð taska 15 kg og 5 kg handfarangur.
Flugtími er um 4,5 klst
ATH flugverð getur breyst v heimsmarkaðsverðs á eldsneyti eins er lítið framboð af vélum og verð há
Flug út
Frá Keflavík til Verona, brottför snemma dags, flugtímar koma síðar.
Flug heim
Frá Verona til Keflavíkur, brottför seinni partinn til Keflavíkur.
Gisting
3 nætur á 4 eða 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Verona
Farastjórn
Tveir óendanlega hjálpfúsir fararstjórar frá Tripical
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 50 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
Hotel San Marco Fitness Pool & Spa****
Hotel San Marco Fitness Pool & Spa er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Marcantonio Bentegodi leikvanginum. Loftkæld herbergin eru með flatskjá.
Heilsulind er í boði gegn aukagjaldi og er með fjölbreytt úrval af afslappandi meðferðum, þar á meðal Kneipp-jurtaböð, gufubað, heitan pott og innisundlaug. Ókeypis útisundlaug er opin yfir sumarmánuðina.
Rútur til sögulega miðbæjar Verona, í 4 km fjarlægð, stoppa beint fyrir framan Hotel San Marco Fitness Pool & Spa. Verona Villafranca-alþjóðaflugvöllurinn og Montichiari-flugvöllurinn eru í um 10 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 7,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
219 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Hotel Saccardi & Spa****
Hotel Saccardi & Spa Adults Only er 4 stjörnu hótel sem er með stóra heilsulind, Salgari veitingastaðinn, bar og ráðstefnumiðstöð.
Hótelið er staðsett í 8 km fjarlægð frá sögulega miðbæ Verona og "Porta Nuova" , 6 km frá VeronaFiere og aðeins 15 km frá Gardavatni og almenningsgörðum þess.
Hótelið býður upp á ókeypis skutluþjónustu gegn pöntun til sögulega miðbæjar Veróna.
Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og 7,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
199 990 kr
á mann í tvíbýli
20 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Crowne Plaza Verona Fiera*****
Crowne Plaza Verona Fiera er í 5 mínútna akstursfjarlægð frá miðbænum. Það er með líkamsræktar- og slökunarsvæði með sundlaug.
Herbergin eru loftkæld og með te/kaffivél, Wi-Fi aðgangi og flatskjá með gervihnatta- og greiðslurásum..
Morgunverður er í hlaðborðsstíl og Plaza Restaurant framreiðir nútímalegar uppskriftir með staðbundnum mat. Bellini's Bar er með samlokur og léttar veitingar. Drykkjalistann inniheldur hágæða vín og innlendan og alþjóðlegan bjór.
Þetta Crowne Plaza er staðsett í glæsilegri byggingu með nútímalegum arkitektúr. Hönnunarinnréttingarnar eru með hlutlausum litasamsetningu.
Þetta 4 stjörnu superior hótel er í 10 mínútna göngufjarlægð frá Verona Fiere.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 7,9 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
255 990 kr
á mann í tvíbýli
34 000 kr
aukagjald í einbýli