til London

18. október til 20. október & 

25. október til 27. október 2024

Allir þekkja London. Allir hafa skoðun á London. Hún er  umtöluð, umdeild, en umfram allt ein sögufrægasta og merkilegasta stórborg síðari alda. Og hún ætti að vera á Bucket listanum þínum.

Það er erfitt að vita hvar maður á að byrja og hvar að enda, þegar hin risavaxna London er annars vegar. Hún er hávær, orkumikil, full af lífi og ólíkum menningarstraumum sem blandast saman í einn magnaðan kokteil.
Það er gott að vera ögn undirbúinn fyrir heimsókn þangað, ákveða hvaða staðir borgarinnar verða fyrir valinu í þetta skipti, því London verður langt frá því fínkemd á stuttum tíma. Vinsælast á meðal ferðamanna er þó miðbærinn, þar sem West End, Soho hverfið, Leicester Square og Covent Garden er að finna, auk þess rennur Thames áin þar nálægt, með hinu vinsæla London Eye hjóli og fjörugri götumenningu á Suðurbakkanum.
Borgin skiptist upp í fjölmörg hverfi sem hvert og eitt er þekkt fyrir sitt eigið nafn og einkenni. Hverfin eru sum hver ansi gömul og nefnd eftir kennileitum sem nú eru hvergi sjáanleg. 
Svo rótgróin er þessi hverfaskipting að hver staður hefur sinn eigin díalekt og heimahverfi fólks þekkist oft á hreimnum í tali þeirra. Frægt dæmi um þetta eru leikarar á borð við Michael Caine sem ólst upp í fátækrahverfinu Hackney og notaði lengi vel sterkan Hackney hreim í tali sínu. Þess má geta að í dag þykir Hackney hverfið mjög hipp og kúl, þar er blómstrandi lista- og menningarlíf, og flottir barir og veitingastaðir á hverju strái.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og handfarangur 10 kg.

Brottför

Brottför frá Keflavík kl. 07:40 og lent í London kl. 11:55

Heimför

Heimför frá London kl. 21:25 og lent í Keflavík kl. 23:40 

Gisting

2 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í London

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical

Hvað er hægt að gera í London

Á West End má finna stórar og flottar leiksýningar sem gengið hafa fyrir fullu húsi í fjölmörg ár
Buckingham höllin er eitthvað sem maður þarf að skoða. Hún er opin til skoðunar á sumrin, en heimsóknarinnar virði þótt ekki sé farið inn
Þú veist að þegar þú kemur aftur heim færðu spurninguna: Fórstu í London Eye?
Hampstead Heath er risastórt grænt svæði í norðurhluta borgarinnar. Falleg náttúra og frábært útsýni yfir borgina
Piccadilly Circus er einn mest ljósmyndaði staður borgarinnar 
Tate Modern listasafnið stendur við Thames ánna og býður alltaf upp á spennandi sýningar

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstakling sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)


Hótel

ibis London Blackfriars
 ***

Ibis London Blackfriars býður upp á ókeypis WiFi hvarvetna, sólarhringsmóttöku og matseðil með mat og drykk allan sólarhringinn. Í boði eru nútímaleg herbergi í miðbæ London. Tate Modern er í innan við 10 mínútna göngufjarlægð og Waterloo-stöðin er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.

Hvert svefnherbergi er með en-suite-baðherbergi, flatskjá og iPod-hleðsluvöggu. Öll herbergin eru með borgarútsýni og þeim fylgja straubúnaður og ókeypis snyrtivörur.

Veitingastaðurinn Charlie's Corner á Ibis London Blackfriars - Charlie er barþjónninn sem vinnur á horni hótelsins. Þar er alltaf líf og fjör og flott tónlist. Barinn er tileinkaður handverksbjór, frábæru kaffi og gómsætum réttum, þar sem tónlist og svöl stemning koma saman. Eigið góðar stundir á Charlie's Corner!

London Eye og Big Ben eru í innan við 20 mínútna göngufjarlægð og 10 mínútur með Jubilee-línunni frá Waterloo til Bond Street-neðanjarðarlestarstöðvarinnar veita aðgang að verslunum Oxford Street.

Hótelið fær heildareinkunn 7,9 og 9,1 fyrir staðsetningu.

Verðin

126 990 kr

á mann í tvíbili 

20 000 kr

aukanótt í tvíbíli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

 Leonardo Royal London Tower Bridge
 ****

Þetta hótel er staðsett í miðbæ London, í 15 mínútna göngufjarlægð frá Tower of London,Tower Hill-neðanjarðarlestarstöðin er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.

Tower Bar and Grill-veitingastaðurinn býður upp á úrval af grillréttum, à la carte-réttum og tapasréttum. Úrval kokkteila og vína er í boði á flotta setustofubarnum.

Fenchurch Street-lestarstöðin er í minna en 10 mínútna göngufjarlægð o g Tower Bridge er í 10 mínútna göngufjarlægð. London Bridge er í 10 mínútna göngufjarlægð.

Á meðal tómstundaaðstöðu á hótelinu eru 25 metra sundlaug og líkamsræktaraðstaða. Það er viðskiptamiðstöð á staðnum, og það eru vel búnar viðburðarsvítur sem gestir geta notað.

Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,7 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

 129 990 kr

á mann í tvíbili 

25 000 kr

aukanótt í tvíbíli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 90 manns aðra helgina og 50 manns þá seinni. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 
Einnig er þetta með fyrirvara um flugáætlun flugfélaganna.


Arnar Magnússon
Fyrirtækjaferðir
S. 519 8900
GSM. 848 1520
Netfang: arnar@tripical.com