Glasgow er stærsta borg Skotlands og ein helsta verslunarborg Bretlands. Töfrandi arkitektúr, frábærir veitingastaðir og krár, ásamt fjörugu næturlífi, enda Skotar eitt skemmtilegasta fólk í heimi.
Tilkomumiklar byggingar Glasgow bera sögu hennar gott vitni, en sérstaklega má nefna afar fallegan arkitektúr frá Viktoríutímanum, sem er eitt stærsta aðdráttarafl borgarinnar. Glasgow var lengi vel mikil iðnaðarborg, en það tók að breytast eftir Kreppuna miklu á fyrri hluta 20. aldar. Siðan þá hefur hún þróast í að verða miðstöð menningar og verslunar, hún hefur t.d. borið titilinn Menningarborg Evrópu, og þar er að finna einn stærsta vettvang í nútímalistum á Bretlandseyjum, fyrir utan London. Ferðamenn streyma að hvaðanæva að, borgin eldist einstaklega vel og blómstrar nú sem aldrei fyrr.
Skotar eru vinaleg þjóð og glaðværir gestgjafar. Ef þú stendur áttavilltur í miðbæ borgarinnar (þekktur sem "town", en öllu heldur "the toon" hjá skotum) er mjög líklegt að hjálpsamur vegfarandi komi og bjóði þér aðstoð sína. Skotar eru bara þannig. Og ef enginn kemur af fyrra bragði er bara að spyrja næsta mann. Það ber árangur.
Glasgow hefur tvisvar hlotið titilinn "Carry Capital of Britain", en þar er mjög mikið úrval af ýmis konar veitingastöðum, hvort sem þú vilt indverskt eða eitthvað annað. Hún þarf líka að standast ákveðin gæði, borgin er nefnilega hvorki meira né minna en fæðingastaður sjónvarpskokksins alræmda Gordon Ramsey.
Hvað er hægt að gera í Glasgow
Borgarstjórnin hefur aðsetur í The City Chambers, tignarlegri 19. aldar byggingu sem hægt er að skoða
Glasgow Cathedral er glæsileg bygging, jafnt að innan sem utan
Það er indælt að setjast á Willows Tea Room, fá sér tebolla og njóta útsýnisins
Glasgow er afar græn borg, þar er fjöldi skrúðgarða að skoða, eða hanga í og slaka á
The Ubiquitous Chip
eða bara The Chip er ekta lókal staður með mat og drykk
Er ekki tilvalið að versla eins og eitt skotapils? When in Glasgow...
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð taska 23 kg og 10 kg handfarangur sem passar undir sætið.
Brottför
Brottför á föstudeginum frá Keflavík kl. 07:35 og lent í Glasgow kl. 09:50
Heimkoma
Heimför mánudaginn 3. júní frá Glasgow kl 12:40 og lent í Keflavik kl 15:00
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Glasgow
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá
Tripical í ferðinni
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
****
Maldron Hotel Glasgow City er þægilega staðsett í miðbæ Glasgow og býður upp á loftkæld herbergi, líkamsræktarstöð, ókeypis WiFi og veitingastað. Þetta 4-stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu og sólarhringsmóttöku. Gestir geta nýtt sér barinn.
Öll herbergin á hótelinu eru með skrifborð, flatskjá, sérbaðherbergi, rúmföt og handklæði. Öll herbergin eru með fataskáp og katli.
Enskur/írskur morgunverður er í boði á hverjum morgni á Maldron Hotel Glasgow City.
Meðal áhugaverðra staða í nágrenni við gistirýmið eru Glasgow Royal Concert Hall, Buchanan Galleries og Glasgow Queen Street-lestarstöðin. Næsti flugvöllur er Glasgow-flugvöllur, 13 km frá Maldron Hotel Glasgow City.
Booking.com einkunn er 8,9 og 9,1 fyrir staðsetningu.
Verðin
129 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hið 4 stjörnu Apex City of Glasgow Hotel er staðsett í hjarta tískuhöfuðborgar Skotlands. Friðsæl staðsetningin, grípandi ytra byrði og smekklegar innréttingar gera það að fullkomnum stað til að vera á. Með boutique svefnherbergjum og íburðarmiklum svítum með ókeypis Wi-Fi.
Láttu þér líða vel í rúmgóðum herbergjum sem eru með flatskjásjónvarpi, litlum ísskáp og heita drykkjarstöð til að koma til móts við allar þarfir þínar. Með þægilegu rúmi og rúmgóðu en suite, njóttu þess að fara í sturtu með Antipodes lífrænum snyrtivörum sem hjálpa þér að vera grænn á meðan þú ert hreinn. Ef þér líður sérstaklega vel skaltu hækka dvöl þína með því að bóka tvíhliða svítu sem býður upp á útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Gerðu borgina þína einfalda og vertu vel tengdur hér. Á jaðri hinnar iðandi Bath Street, finndu þig umkringdur leikhúsum, verslunum og viðburðamiðstöðvum, þar á meðal SECC og OVO Hydro. Auk þess eru aðallestarstöð Glasgow og Queen Street lestarstöðin bæði í aðeins 5 til 10 mínútna göngufjarlægð. Það er ævintýri gert auðvelt
Booking.com einkunn er 8,7 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
124 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 90 manns fyrri helgina og 50 manns þá seinni. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel. Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.