til Madeira

Perlu Atlantshafsins

 1. maí til 5. maí 2024

Þær hafa verið nefndar Perla Atlantshafsins og þótt nálægðin sé í raun meiri við Marokkó, tilheyra Madeira eyjurnar Portúgal og eru partur af Evrópu. Þar er milt og þægilegt loftslag árið um kring og þessi smávaxna paradís er dásamlegur íverustaður.

Það voru portúgalskir sæfarar sem fyrstir fundu eyjurnar snemma á 15. öld, og þær hafa verið hluti af ríki Portúgal síðan. Þessi einstaklega gróðursæli staður er í raun toppur á gömlu eldfjallasvæði og á upphaf sitt að rekja þaðan. Eins og áður sagði er loftslag þarna afar milt og gott, klasinn er staðsettur sunnarlega en umkringdur svölu Atlantshafinu, svo hér ríkir einstakt jafnvægi í veðurfari.
Madeira er mjög vinsæll ferðamanna- staður, þar er margt í boði fyrir gesti eyjunnar, bæði í stærsta bæ og höfuðstað Madeira, Funchal, sem og í stórbrotinni náttúru víðs vegar, þar sem hægt er að stunda útivist af ýmsu tagi, taka lengri og styttri göngur, og klífa fjöll ef maður vill reyna aðeins meira á taugarnar. 

Austurhluti Madeira, Ponta de São Lourenco, státar af stórbrotinni náttúrufegurð, auk þess sem útsýnið þar er ógleymanlegt. Klettar og hraun eru þar afar sérstök í útliti og þar á milli má finna sjaldgæfan gróður og jurtir. Hér má taka fram fjallgöngugræjurnar, en einnig er mikið af þægilegum stígum og öruggum gönguleiðum. Þá er vegakerfið prýðilegt á eyjunni, og vel hægt að spara sér sporin, leigja bíl og aka um, keyra upp hæðirnar og njóta útsýnis og fallega umhverfisins.
Í Funchal er hina ýmsu afþreyingu að finna, og í raun ekki nokkur leið að láta sér leiðast á þessari yndislegu paradísareyju.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

 Flug fram og til baka í leiguflugi, 1 innrituð taska 20 kg og handfarangur.

Brottför

Brottför að morgni 1. maí frá Keflavík til Madeira


Heimför

Heimför 5. maí frá Madeira til Keflavík 

Gisting

4 nætur á 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli

Farastjórn

2 skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar. 

Hvað er hægt að gera í Madeira

Madeira vínin eru heimsþekkt, og hvar annars staðar en hér er rétti staðurinn að dreypa á slíku?
Cabo Girão er eitt af hæstu sjávarbjörgum veraldar, 590 m. þverhnýpi niður í sjó
São Vicente hraunhellarnir þykja mjög sérstakir og skemmtilegir
Hefur þig dreymt um að prófa svifflug? Madeira er frábær staður fyrir svoleiðis
Hægt er að mæla með kayak ferðum um Ponta de São Lourenço - mikið að sjá og skoða
Það er vinsælt að kafa í kringum eynna, lífríkið neðansjávar kringum eyjurnar er ansi magnað 

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

*****

Savoy Palace - The Leading Hotels of the World - Savoy Signature er með veitingastað, bar, sameiginlega setustofu og garð í Funchal. Þetta 5 stjörnu hótel státar af herbergisþjónustu og alhliða móttökuþjónustu. Hótelið er með útisundlaug, heilsuræktarstöð, kvöldskemmtun og sólarhringsmóttöku.

Herbergin eru búin loftkælingu, flatskjá með gervihnattarásum, katli, skolskál, hárþurrku og skrifborði. Herbergin á hótelinu eru með ókeypis WiFi og sérbaðherbergi með sturtu og ókeypis snyrtivörum. Öll herbergin á Savoy Palace - The Leading Hotels eru með setusvæði.

Gestir gistirýmisins geta notið morgunverðarhlaðborðs.

Áhugaverðir staðir í nágrenni hótelsins eru meðal annars smábátahöfnin Marina do Funchal, spilavítið Casino da Madeira og breiðstrætið Avenida do Mar. Næsti flugvöllur er Cristiano Ronaldo Madeira-alþjóðaflugvöllurinn, 15 km frá Savoy Palace - The Leading Hotels og gististaðurinn býður upp á flugrútu gegn aukagjaldi.

Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

289 990 kr

á mann í tvíbili

100 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið er fyrir 250 manns, flogið er í leiguflugi og er miðað við að minnst 80% sætanýting sé í flugi með leiguflugi. 
 Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel. 


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com