Til MADRID
 17. maí til 20. maí 2024

Höfuðborg Spánar er töff, hún er smart, hún er snyrtileg, og full af glamúr og elegans. Ofan á þetta bætist svo sú staðreynd að hún er ómótstæðilega skemmtileg, og með  allt til alls, svo heimsókn þín verði sem eftirminnilegust. 

 Menningarsaga Madrid litast mikið af arfleifð konungsveldisins, en borgin var frá upphafi miðpunktur hins spænska stórveldis. Þannig prýða borgina sjálf konungshöllin, sem og stórar og miklar byggingar frá einveldistímanum, ásamt risavöxnum dómkirkjum og öðrum glæsilegum miðaldararkitektúr. Madrid er þó nú á tímum afar nútímaleg, og kapp er lagt á að fylgja nýjustu straumum í útliti og uppbyggingu, samgöngum og skemmtun.
Ólíkt mörgum stórborgum, þykir Madrid vera áberandi hrein og snyrtileg. Þetta er metnaðarmál yfirvalda, og þú munt eflaust rekast oft á borgarstarfsfólk í skærgulum vestum með kústa á lofti að hreinsa stræti og stéttir.

Næstum allir vinsælustu staðirnir fyrir ferðamenn að skoða, má finna í miðbænum. Þangað er auðvelt að komast, hvar sem þú ert í borginni, þökk sé mjög einföldum og þægilegum lestarsamgöngum. Miðbærinn er auk þess stútfullur af veitingastöðum og krám, en barir og skemmtistaðir er ansi víða. Madrid státar nefnilega af því skemmtilega meti, að hafa fleiri bari en nokkur önnur evrópsk borg, miðað við höfðatölu (við Íslendingar elskum auðvitað þann mælikvarða). Næturlífið er mjög fjörugt og stendur fram á morgun. TIlvalin leið til að kynnast heimamönnum, sem kalla sig í daglegu tali 
Madrileños, eða, og þetta er ekki eins algengt, gatos, sem þýðir kettir.  

Hvað er hægt að gera í Madrid

Konungshöllin er ein sú stærsta í Evrópu og af mörgum talin fallegasta bygging Madridborgar
Retiro garðurinn er fyrrum konungsgarður en nú ætlaður okkur hinum til að ganga um og njóta
San Miguel markaðurinn við Plaza Mayor er æði - ef ekki til að kaupa, þá bara fyrir stemminguna 
Hvaða fótboltaáhuga manneskja sem er, hvort sem hún styður Real Madrid eður ei, ætti að heimsækja hinn risavaxna heimaleikvang liðsins.
Gran Vía er stærsta og fjölfarnasta breiðstræti borgarinnar. Mikið úrval alls kyns verslana
Safnaþríhyrningurinn svokallaði er hverfi með fullt af flottum söfnum 

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur.

Brottför

Brottför 17.Mai klukkan 15.00 og lent klukkan 21:25

Heimför

Heimför 20.Maí klukkan 22:25 og lent klukkan 01:00

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Madrid 25 - 30 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur farastjóri frá Tripical.

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstakling sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)


Hótel

****

Meliá Castilla býður upp á þægileg gistirými, aðeins metra frá Paseo de la Castellana. Hótelið státar af klassískum innréttingum og er með árstíðabundna útisundlaug, líkamsrækt og Caroli Wellness Centre.

Veitingastaðurinn L'Albufera býður upp á úrval af ljúffengum hrísgrjónum og paella. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð með miklu úrvali af ferskum vörum.

Herbergin eru rúmgóð og eru með sérbaðherbergi og loftkælingu. Fjölbreytt úrval fjölskylduherbergja er í boði, fullkomið fyrir fjölskyldugátt í Madríd.

Sundlaugin er aðeins opin yfir sumartímann (vinsamlegast athugaðu opnunartíma og daga hjá hótelinu).

Cuzco-neðanjarðarlestarstöðin er í 200 metra fjarlægð frá hótelinu. Nálægar hraðbrautir bjóða upp á greiðan aðgang að IFEMA, Palacio Municipal de Congresos og Adolfo Suarez Madrid-Barajas flugvellinum. Santiago Bernabeu leikvangurinn í Real Madrid er í 10 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær 8,9 í heildareinkun á booking.com og 8,7 fyrir staðsetningu

Verðin

  149 990 kr

á mann í tvíbýli

40 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 100 einstaklinga, hótel og flug hafa ekki verið tekin frá og mun endanlegt verð liggja fyrir þegar búið er að velja dagsetningu og hægt er að bóka hópinn.


Arnar Magnússon

 Fyrirtækjaferðir
S. 519-8900
GSM. 848 1520