til Kraká  
25. apríl til 28. apríl 2024

Borgin Kraká er af mörgum talin ein sú fallegasta í Evrópu og situr alla jafna á toppnum yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum.  Saga, menning, matur og hagstætt verðlag einkenna borgina.

Kraká stendur við árbakka Vistulu, og sögu hennar má rekja aftur til sjöundu aldar! Fornar sagnir segja frá því hvernig borgin óx og dafnaði eftir frækilegan sigur á miklum dreka sem bjó í helli í nágrenninu og hrelldi og drap íbúa með reglulegum heimsóknum. Hvað sem hæft er í þeim lysingum, er það staðreynd að goðsagnakennt og seiðmagnað andrúmsloft svífur yfir þessari mögnuðu borg. Wawel kastalinn er eitt af stærri nafnspjöldum borgarinnar, sem og gamli bærinn með sínum aldagömlu kirkjum og áhugaverðu söfnum. Þá má ekki gleyma hinu mikla Rynek Główny, sem er hvorki meira né minna en stærsta markaðstorg Evrópu. 

Gamli bærinn í Kraká er eitt af friðarsvæðum UNESCO. Það er ekki að ástæðulausu og við mælum hiklaust með skoðunarferð þangað. Þar má finna hundruði veitingastaða og helling af börum og klúbbum. 
Íbúafjöldi er 760.000 en hafa ber í huga að um það bil 8 milljónir búa í 100km radíus í kringum borgarmörkin. 
Borgin er þekktust fyrir glæsileika sinn, stórbrotna sögu og menningu, en meiri ró er yfir næturlífi hennar. Kraká er fullkomin borg til þess að slaka á, ganga í rólegheitum um götur og hverfi og leyfa skilningarvitunum að draga þig frá hversdagslegu amstri yfir í núið.

Hvað er hægt að gera í Kraká

Röltu um og skoðaðu Kazimierz gyðingahverfið
Verksmiðja Oskars Schindler er mögnuð
Skoðaðu Saltnámurnar, ef þú þorir en þær eru neðanjarðar
Heimsæktu Wawel kastalann og stærsta markaðstorg Evrópu Rynek Glowny
Gamli bærinn er, eins og sagt er, algjört möst!
Stutt er að fara til Auschwitch-Birkenau

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug með Wizz air, 1 innrituð taska 20 kg og handfarangur 8kg

Brottför

Brottför frá Keflavík fimmtudaginn 25.04.2024 kl. 19:05. Lent í Kraká kl. 01:10 eftir miðnætti.

Heimkoma

Heimför sunnudaginn 28.04.2024 kl. 14:05 frá Kraká. Lent í Keflavík kl. 16:25.

Gisting

4 nætur á 4ra/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wifi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Kraká, ca 25 mín akstur.

Fararstjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Hótel

Hilton Garden Inn Krakow
****

Hilton Garden Inn Krakow er með útsýni yfir Wawel-kastalann í Krakow. Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi og te/kaffiaðbúnaði. Herbergin á Hilton Hotel eru með ísskáp og 32" TV 
Allir gestir Hilton Garden Inn Krakow hafa ókeypis aðgang að líkamsræktarstöð hótelsins, sem er opin allan sólarhringinn.

Hilton Garden Inn er staðsett rétt við ána Vistula, í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá aðalmarkaðstorginu. Kazimierz gyðingahverfið er í aðeins nokkurra skrefa fjarlægð.

Hilton Garden Inn Krakow er með veitingastað, Ogród Hiltona, sem framreiðir evrópska sérrétti. Pavilion Pantry búð, opin allan sólarhringinn.

Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9.0 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

139 990 kr

á mann í tvíbýli

35 000 kr 

aukagjald í einbýli

Hótel

Holiday Inn Krakow City Centre, 
an IHG Hotel
*****

Holiday Inn Kraków City Centre er staðsett í 5 mínútna göngufjarlægð frá aðalmarkaðstorginu í Kraká og í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Kazimierz-gyðingahverfinu. 
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi, loftkæling og te/kaffiaðbúnaði. Öll herbergi með minibar. Líkamsræktin er ókeypis fyrir hótelgesti. 

Gestir Holiday Inn Krakow City Center geta notið fjölbreytts morgunverðarhlaðborðs á hverjum morgni. Öll herbergi með minibar.

Kraków Główny-lestarstöðin er aðeins einni sporvagnastoppi frá.

Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9.6 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

 144 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr 

aukagjald í einbýli

Hótel

Vienna House Andel’s Cracow
****

Vienna House Andel's Cracow er nútímalegt, vel staðsett og vel búið 4 stjörnu hótel. Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni á Mavericks Restaurant en þar er hægt að fá rétti í Kaliforníustíl með asískum, mexíkóskum og evrópskum áhrifum. 
Á kvöldin geta gestir slakað á og fengið sér drykk á barnum Smok.
Herbergin á eru með flatskjá og öryggishólf fyrir fartölvu. 
Sum eru staðsett á efri hæðum og eru með víðáttumiklu útsýni yfir fallega gamla bæinn. 
Vienna House Andel's Cracow er staðsett í hjarta borgarinnar, skammt frá aðallestarstöðinni og Galeria Krakowska, aðalverslunarmiðstöðinni í Kraká. 

Hótelið fær heildareinkunina 9.1 og 9.8 fyrir staðsetningu á Booking.com

Verðin

 144 990 kr

á mann í tvíbýli

40 000 kr 

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 43 manns. Ekki hefur verið tekið frá flug og hótel.

Verðin eru viðmiðunarverð fyrir umbeðið tímabil. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin.


ATH. þar sem WIZZ air býður ekki upp á að halda sætum nema í 2 daga þá getur verð hækkað þegar bókað er.


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com