
Til The Hague
24. október - 27. október &25. október - 28. október 2024
Hrífandi borg, skreytt gömlum heillandi hverfum, stórbrotnum byggingum og blómlegum almenningsgörðum. Hér er lífleg menning, skemmtun og gleði.Gangi þér allt í Haag!
Í Haag er aðsetur hollenska þingsins en auk þess býr þar Willem-Alexanders Hollandskonungur. Þá er borgin þekkt sem dómstólaborg heimsins, þar starfrækja Sameinuðu þjóðirnar Alþjóðadómstólinn (ICJ) og Alþjóðaglæpadómstólinn (ICC), ásamt fjölda annarra alþjóðlegra stofnanna. Haag er þriðja stærsta borg Hollands og þar búa um 500.000 manns, en 700.000 sé héraðið allt tekið með. Þar hefur ferðamanna-iðnaðurinn sótt í sig veðrið síðustu ár, og sífellt fleiri leggja leið sína þangað, enda býr borgin yfir miklum þokka og fegurð.
Haag er í ýmsu ólík stóru systur sinni Amsterdam og öðrum hollenskum borgum. Hún er af mörgum talin sú virðulegasta í landinu. Í stað hinna dæmigerðu hollensku endurreisnarhúsa frá 17. öld, standa þar 18. aldar stórhýsi í barrok og klassískum stíl. Í hjarta borgarinnar má finna mikið af sögulegum byggingum frá miðöldum og endur-
reisnartímanum. Rétt fyrir utan miðbæinn eru svo gríðarlega falleg hverfi í art nouvau stíl. Alls staðar eru svo hugguleg kaffihús og veitingastaðir, breiðar verslunargötur og síðast en ekki síst, falleg ströndin að Norðursjó.
Hvað er hægt að gera í The Hague
The Pier Skyview
býður upp á útsýnisferð í risa parísarhjóli.
Ein elsta gatan í Haag er Molenstraat.
Skemmtileg til göngu.
Scheweningen Beach Speedboat Tour
er vægast sagt hressandi skemmtun.
Í Panorama Mesdag Museum er áhrifarík og flott sýning með risamálverki sem sýnir forna tíð.
Kloosterbrouwerij Haagsche Broeder.
Bjórgerð í munkaklaustri. Mögnuð upplifun!
Planet Jump er trampólíngarður, og hann er staðsettur í kirkju. Athyglisvert!
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Amsterdam með Play / Icelandair í áætlunarflugi innrituð 20kg / 23kg taska ásamt 8kg handfarangri.
Brottför
Brottför 1 Play 65 sæti:
Frá Keflavík fimmtudaginn 24. október kl. 06:00, lent kl. 11:15 í Amsterdam
Brottför 2 Icelandair 60 sæti:
Frá Keflavík fimmtudaginn 24. október kl. 07:40, lent kl. 12:55 í Amsterdam
Brottför 3 Play 65 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 25. október kl. 06:00, lent kl. 11:15 í Amsterdam
Brottför 4 Icelandair 60 sæti:
Frá Keflavík föstudaginn 25. október kl. 07:40, lent kl. 12:55 í Amsterdam
Heimkoma
Heimför 1 Play 65 sæti:
Frá Amsterdam sunnudaginn 27. október kl.12:00 og lent á Keflavík kl 14:25.
Heimför 2 Icelandair 60 sæti:
Frá Amsterdam sunnudaginn 27. október kl.12:30 og lent á Keflavík kl 14:55.
Heimför 3 Play 65 sæti:
Frá Amsterdam mánudaginn 28. október kl.12:00 og lent á Keflavík kl 14:25.
Heimför 4 Icelandair 60 sæti:
Frá Amsterdam mánudaginn 28. október kl.12:30 og lent á Keflavík kl 14:55.
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli
Rúta tekur um 1 klst
Farastjórn
Tveir óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical.
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
****
Best Western Plus Plaza Den Haag er þægilega staðsett í miðbæ Haag og býður upp á loftkæld herbergi, ókeypis WiFi og bar. Gististaðurinn er 4,1 km frá Madurodam, 4,3 km frá Huis Ten Bosch-höllinni og 2,2 km frá Escher-safninu. Gistirýmið er með sólarhringsmóttöku, herbergisþjónustu og farangursgeymslu fyrir gesti.
Öll herbergin á hótelinu eru með fataskáp, flatskjá og sérbaðherbergi.
Gestir á Best Western Plus Plaza Den Haag geta notið morgunverðarhlaðborðs.
Áhugaverðir staðir í nágrenni gististaðarins eru New Babylon, Binnenhof og Theater aan het Spui. Næsti flugvöllur er Rotterdam Haag-flugvöllur, 22 km frá Best Western Plus Plaza Den Haag.
Verðin
114 990 kr
á mann í tvíbili
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Babylon Hotel Den Haag****
Babylon Hotel Den Haag er 4 stjörnu hótel með útsýni yfir Haagsche Bos-garðinn, við hliðina á aðallestarstöðinni í Haag. Boðið er upp á glæsileg, hljóðeinangruð herbergi með flatskjá með kapalrásum og lúxusbaðherbergi.
Öll herbergin á Babylon Hotel Den Haag eru með ókeypis Nespresso-kaffi og teaðstöðu. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna.
Aðalverslunarsvæði borgarinnar er í 8 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Scheveningen og ströndin eru í 15 mínútna fjarlægð með sporvagni frá Den Haag Central. Mauritshuis-safnið er í 10 mínútna göngufjarlægð. Að auki býður hótelið upp á beinan aðgang að New Babylon-verslunarmiðstöðinni.
Hótelið býður upp á morgunverðarhlaðborð. Veitingastaðurinn TheLivingRoom býður upp á úrval af veitingum, þar á meðal léttar veitingar og 3 rétta sælkerakvöldverði. Kokkteilar og vín eru í boði á glæsilega barnum.
Verðin
119 990 kr
á mann í tvíbili
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Parkhotel Den Haag er staðsett í hjarta borgarinnar, við jaðar garða hallarinnar Paleis Noordeinde. Gestir geta notið 4 stjörnu hótelsins sem er með vandað Art Deco-umhverfi og smekklega innréttuð herbergi. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu.
Herbergin eru með þægilegar og fallegar innréttingar í einstökum stíl. Gestir geta notið þess að fá góðan nætursvefn á þessum friðsæla griðarstað í hjarta borgarinnar.
Flýtiútritun er í boði. Auk þess státar Parkhotel af fallegum garði þar sem gestir geta slakað á og lesið bók eða orðið sólbrúnir.
Barinn og setustofan á Parkhotel Den Haag býður upp á notalegt umhverfi fyrir gesti til að slaka á í lok dagsins. Þar geta gestir fengið sér drykk og snarl. Barinn framreiðir kokkteila og það er mikið úrval af viskí, líkjöri og koníaki í boði.
Verðin
129 990 kr
á mann í tvíbili
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Voco The Hague, an IHG Hotel er með líkamsræktarstöð, garð, verönd og veitingastað í Haag. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu, sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er í 600 metra fjarlægð frá miðbænum og í 2,5 km fjarlægð frá Madurodam.
Herbergin eru með flatskjá með gervihnattarásum, minibar, kaffivél, sturtu, ókeypis snyrtivörum og skrifborði. Herbergin eru með öryggishólfi og sum herbergin eru með borgarútsýni. Allar einingar eru með sérbaðherbergi, hárþurrku og rúmfötum.
Hjólreiðar eru vinsælar á svæðinu og það er reiðhjólaleiga á hótelinu.
Paleis Huis Ten Bosch er 4,1 km frá voco Haag, an IHG Hotel, en Westfield Mall of the Netherlands er 7 km frá gististaðnum. Næsti flugvöllur er Rotterdam-Haag-flugvöllur, 19 km frá gististaðnum.
Verðin
134 990 kr
á mann í tvíbili
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Hilton The Hague er staðsett í sögulega miðbænum og sendiráðshverfi Haag, aðeins augnabliki frá hágæða verslunarsvæðinu í miðbænum. Panorama Mesdag er staðsett í næsta húsi og Noordeinde-höllin er í 450 metra fjarlægð, en strönd Scheveningen er í innan við 15 mínútna fjarlægð með sporvagni eða hjóli. Ókeypis WiFi er til staðar á almenningssvæðum.
Hótelið býður upp á rúmgóð herbergi og svítur með skrifborði og flatskjásjónvarpi. Baðherbergið státar af baðkari, sturtu og ókeypis snyrtivörum.
Sum herbergin eru með aðgang að executive-setustofunni sem býður upp á einkainnritun/útritun, WiFi í herberginu og verönd. Gestir geta einnig notið sérstakra fjölskylduþæginda, þar á meðal barnapössun og barnamatseðil.
BlueBlood er staðurinn til að kanna nýjan heim spennandi matar og drykkja. Þetta er umhverfi þar sem fólk getur komið saman til að tengja saman yfir töfrandi rétti, ótrúlega drykki og staður til að deila raunverulegri reynslu.
Mauritshuis, Vredespaleis og hágæða verslanir á Lange Voorhout eru í innan við 1 km fjarlægð. Aðallestarstöðin í Haag er í 2 km fjarlægð.
Verðin
144 990 kr
á mann í tvíbili
60 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 250 manns en hótel hafa ekki verið tekin frá. Einnig er verð á hótelum ekki staðfest þar sem tímarammi gaf ekki tækifæri á að staðfesta verð. Verð eru byggð á fyrri hópum sem hafa ferðast með Tripical.
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir