
Til Verona
3. október til 6. október 2024
Verona er á norðausturhluta Ítalíu og er oft kölluð litla Róm. Hver þekkir sögu Shakespeares um Rómeó og Júlíu, en Verona er sögusviðið
Verona er ein ríkasta borg Norður-Ítalíu af rómverskum fornleifum. Merkilegast af þeim er hringleikahúsið eða Arena, og er það þriðja stærsta rómverska hringleikahúsið sem varðveist hefur og er nú notað fyrir óperur og tónleikahald.
Verona er borg í Veneto-héraði með gömlum miðaldabæ sem byggður er meðfram Adige-fljótinu.
Hinn friðsæli bær var sögusviðið fyrir þrjú af leikritum Shakespeares - frægast þeirra, Rómeó og Júlía, innsiglaði varanlega orðstír Verónu sem borg ástarinnar.
Hvað er hægt að gera í Verona
Farðu í matar og vínsmakk um dásamlegu Verona.
Skoðaðu ótal mörg falleg torg og rómverska hringleikhúsið, farðu á tónleika.
Vafraðu í gegnum Centro Storico, þar er t.d að finna hús Júlíu.
Hvert sem litið er má smella mynd og safna í minningarbankann.
Kíktu á ströndina við La Garda vatnið.
Slakaðu á í sólbaði og fáðu þér einn ískaldann.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með áætlunarflugi Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10 kg handfarangur.
Flug út
Flogið er frá Keflavík fimmtudaginn 3. október kl: 14:45 og lent í Feneyjum kl: 21:05.
Flug heim
Flogið er frá Feneyjum sunnudaginn 6. október kl: 22:05 og lent í Keflavík kl: 00:40.
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Feneyjum um 1,5 klst.
Farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
Hotel San Marco Fitness Pool & Spa****
Hotel San Marco Fitness Pool & Spa er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Marcantonio Bentegodi leikvanginum. Loftkæld herbergin eru með flatskjá.
Heilsulind er í boði gegn aukagjaldi og er með fjölbreytt úrval af afslappandi meðferðum, þar á meðal Kneipp-jurtaböð, gufubað, heitan pott og innisundlaug. Ókeypis útisundlaug er opin yfir sumarmánuðina.
Rútur til sögulega miðbæjar Verona, í 4 km fjarlægð, stoppa beint fyrir framan Hotel San Marco Fitness Pool & Spa. Verona Villafranca-alþjóðaflugvöllurinn og Montichiari-flugvöllurinn eru í um 10 km fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 7,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
149 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli