Til Lake Como
06.-09. september 2024

Það hefur ávallt fylgt Como vatni á Norður-Ítalíu viss glæsileiki, elegans og smekkleg-heit. Töfrandi staður með glæsta sögu sem nær allt til tíma Rómarveldisins.  

Como er þriðja stærsta vatn Ítalíu, og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Vatnið hefur allt frá tímum Rómverja verið vinsæll dvalarstaður ríkra auðmanna. Á endurreisnartímanum risu þar miklar glæsi-byggingar sem sumar hverjar standa enn og eru opnar almenningi til að skoða, dást að og njóta. Umhverfis vatnið eru lítil þorp og bæir sem allir eiga sína sögu og sjarma, og þar á bak við stíga tignarleg fjöll til himins og sveipa umhverfið ævintýralegum blæ. Sjálft vatnið kristaltært er sjónarspil út af fyrir sig, og æðisleg umgjörð fyrir hina fullkomnu siglingu. Þannig geta gestir t.a.m. tekið ferju 
milli þorpanna, og sem dæmi skoðað bæinn Bellagio (oft kallaður ,,perlan“), gengið þar þrönga stíga og skoðað blómlega garða. Glæsihúsin eru mörg, en til dæmis hægt að mæla með heimsókn í Villa Carlotta sem er einstök bygging frá 17.öld sem nú hýsir safn af sígildum og sögufrægum listaverkum. Þá eru stórkostlegar kirkjur ófáar við vatnið, sem dæmi má nefna hina mögnuðu barokk kirkju heilags Jakobs. Svo má líka gleyma sér í verslunarferðum eða taka góða slökun á ströndinni. Como vatn dekstrar þig á þann hátt sem þú hefur ekki upplifað áður.

Hvað er hægt að gera við Como-vatn?

Viltu góða gönguferð? Sentiero del Viandante er merkt gönguleið meðfram vatninu. 
Viltu létta fjallgöngu? Í fjöllunum kringum vatnið er mikill fjöldi gönguleiða, og útsýnið engu líkt!
Viltu versla? Í bænum Como er úrval verslana og veitingastaða.
Viltu kyrrð og ró? Farðu í smábæinn Pianello del Lario og baðaðu þig í fegurð og ró.
Færðu ekki nóg af glæsileikanum? Kíktu í Villa Melzi sem er staðsett í perlunni Bellagio. 
Viltu almennilegt sólbað? Strendurnar í kringum vatnið eru allar æði. Við mælum með sundspretti í vatninu.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint Flug með Icelandair, innifalin taska allt að 20kg og 10kg handfarangur

Flogið út

Brottför föstudaginn 06. september  kl 08:35 og áætluð lending í Milano er kl 14:45

Flogið heim

Heimför mánudaginn 09. september kl 15:45 frá Milano til Keflavík og lent um kl 18:00

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli, morgunverður innifalinn, wifi og borgarskatturinn (6€ á mann per nótt).

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli ca 45 mín akstur

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi. 

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær óvæntan glaðning frá 
Tripical í ferðinni

Hótel

****

Sheraton Lake Como Hotel er í stórum garði við strönd Como-vatnsins og býður upp á upphitaða útisundlaug sem er opin hluta af árinu, ókeypis líkamsræktarstöð sem er opin allan sólarhringinn og vellíðunarsvæði með heitum potti. Cernobbio er í 1,5 km fjarlægð.

Glæsileg, loftkæld herbergin eru rúmgóð og innréttuð með ítölskum húsgögnum. Öll eru þau með minibar og 48 tommu LED-sjónvarp með gervihnattarásum. Sum herbergin eru með marmarabaðherbergi og parketgólfi.

Morgunverðurinn á þessu 4-stjörnu hóteli er sætt og bragðmikið hlaðborð sem samanstendur af nýbökuðu brauði og kökum, ásamt úrvali af lífrænum mat.

Gestir geta valið á milli 3 veitingastaða á gististaðnum: óformlega veitingahússins Kincho sem er opið allan daginn og þar sem vinsælt er að fá sér fordrykki á kvöldin, ítalska veitingstaðarins Gusto og fína veitingastaðarins Kitchen sem hefur hlotið Michelin-stjörnu.

Hótelið er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá bæði Lago Di Como-afreininni á A9-hraðbrautinni og svissnesku landamærunum.

Hótelið fær heildareinkunn 7,9 og 7,7 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

 194 990 kr

Á mann í tvíbýli

75 000 kr

auka fyrir einbýli

Hótel

NH Lecco Pontevecchio
****

NH Lecco Pontevecchio býður upp á útsýni yfir Como-vatn, sem er 100 metra í burtu. Gististaðurinn er í 5 mínútna göngufjarlægð frá sögulegum miðbæ Lecco, og í 10 mínútna göngufjarlægð frá lestarstöðinni. Boðið er upp á herbergi með klassískum innréttingum, ókeypis WiFi, gervihnattasjónvarpi og minibar.

Herbergin eru skreytt með hlutlausum litum. Þau eru með loftkælingu og sérbaðherbergi með hárþurrku.

Á Pontevecchio er veitingastaður sem framreiðir svæðisbundna og þjóðlega matargerð. Morgunverðarhlaðborð er borið fram í glæsilegu herbergi með viðargólfum.

Á hótelinu er einnig hægt að leiga rafmagnsreiðhjól og þar er einnig reiðhjólaherbergi sem er með aukaaðstöðu á borð við reiðhjólapumpu og verkfærum fyrir reiðhjólaviðgerðir.

Hótelið er 11 km frá Lecco-golfklúbbnum, en aðalhöfnin er 5 km frá hótelinu. Svæðið er tilvalið fyrir gönguferðir og hjólreiðar.

Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og 8,7 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

169 990 kr

Á mann í tvíbýli

50 000 kr

auka fyrir einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 80 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com