Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!
Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate
og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château
(þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes
er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras
en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.
Hvað er hægt að gera í Nice
Einn frægasti listamaður Frakka, Henri Mattisse, bjó í Nice til fjölda ára og þar er safn með öllum hans helstu verkum
Ertu í stuði til að gambla svolítið? Casino Barrière Le Ruhl
er glæsilegur staður fyrir þess háttar
Á Cours Saleya
er vinsæll götu-markaður (fyrst opnaður 1861) og dásamleg kaffihúsaverönd
Hôtel Negresco
er rúmlega 100 ára glamúrbygging við Promenade des Anglais, og dýrindis kokteilar á barnum
Strætókerfi svæðisins er mjög þægilegt og kvikmyndahátíðabærinn Cannes
er skammt undan. Kíktu!
Le Shapko er geggjaður djassbar með lifandi tónlist og góðum stemmara öll kvöld vikunnar
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint áætlunarflug með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska
og 10 kg. handfarangur.
Brottför
Brottför fimmtudaginn 5. september til Nice kl 16:25. Lending áætluð um kl 22:30
Flugtímar
Heimför mánudaginn 9. september til Keflavíkur kl 23:30 og áætluð lending kl 01:50.
Gisting
4 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgun-verður, wi-fi og citytax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími 15 mín
Farastjórn
1 óendalega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*
*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)
Hótel
****
Hôtel Nice Azur Riviera er vel staðsett í miðbæ Nice og býður upp á loftkæld herbergi, sameiginlega setustofu, ókeypis WiFi og bar. Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á herbergisþjónustu og sólarhringsmóttöku. Gistirýmið býður upp á viðskiptamiðstöð, alhliða móttökuþjónustu og skipulagningu ferða fyrir gesti.
Herbergin á hótelinu eru með skrifborði, flatskjá, sérbaðherbergi, rúmfötum og handklæðum. Einnig bjóða herbergin gestum upp á fataskáp og ketil.
Áhugaverðir staðir nálægt Hôtel Nice Azur Riviera eru meðal annars Plage Beau Rivage, Plage du Centenaire og Plage du Ruhl. Næsti flugvöllur er Nice Côte d'Azur-flugvöllurinn, 10 km frá gististaðnum.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 8,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
159 990 kr
á mann í tvíbýli
60 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Þessi tímabilsbygging er staðsett í miðbæ Nice og er með 600 m² blómagarð. Hótelið býður upp á loftkæld herbergi með ókeypis WiFi og útsýni yfir borgina eða garðinn.
Minibar, gervihnattasjónvarp og te/kaffiaðstaða eru staðalbúnaður í hverju herbergi. Það er hárþurrka á sérbaðherbergjunum.
Morgunverðarhlaðborð er útbúið á hverjum morgni og hægt er að borða það á veröndinni í garðinum. Gestir geta fengið sér drykk á barnum á hótelinu Villa Victoria.
Í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá Villa Victoria geta gestir fundið hina frægu Promenade des Anglais, Nice-Ville lestarstöðina, gamla bæinn í Nice, spilavítið og Miðjarðarhafið. Einkabílastæði eru í boði á staðnum gegn aukagjaldi og þarf að bóka fyrirfram.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
194 990 kr
á mann í tvíbýli
90 000 kr
aukagjald í einbýli