Til Varsjá 
4. október til 7. október 2024

Kraftmikil borg með merka sögu, heillandi mannlíf og menningu. Ekta evrópskur gimsteinn. Þú bara verður að heimsækja Varsjá!

Sjarmi höfuðborgar Póllands felst ekki síst í þeirri einstöku blöndu þess gamla og nýja sem Varsjá býður upp á. hér saman hinum ýmsu byggingarstílum, allt eftir því hvenær í sögunni húsin risu. Fyrri tíma byggingar standa sjarmerandi um alla borg, tignarlegar kirkjur og hallir, en þar á milli rísa nýstárlegir skýjakljúfar til himins. Eftir seinni heimsstyrjöld varð Pólland um árabil á vissan hátt hluti af Sovétríkjunum, og þar ríkti einræðiskenndur stalínkommúnismi allt til ársins 1989. Þetta sést vel sums staðar í Varsjá, þar sem yfirbragð er nokkuð ,,austantjaldslegt“, og minnir á þann kalda tíma sem nú er að baki.  Gamli miðbærinn er vinsælasti hluti borgarinnar, en þar má sjá falleg pastellituð hús, kaffi- og veitingastaði, að ógleymdu minnismerkinu af hafmeyjunni,
sem er tákn borgarinnar. Hverfið á sinn stað á Heimsminjaskrá UNESCO. Næstum helmingur svæðis borgarinnar er grænn. Það eru allt að 95 garðar í Varsjá, þar sem Łazienki er efst á listanum. Fyrir þá sem eru að leita að orkumeiri andrúmslofti mælum við með til dæmis hverfum eins og Prag, þar sem finnur skemmtistöðum með lifandi tónlist, töff börum, líflegum klúbbum og tryggingu fyrir eftirminnilegri skemmtun. Fyrir söguáhugamenn er Warsaw Uprising Museum sannlega þess virði að heimsækja. Það er af mörgum talið eitt besta safnið í síðari heimsstyrjöldinni í Evrópu. Með grípandi sýningum sínum býður það upp á svo margt forvitnilegt og fróðlegt að maður gæti auðveldlega eytt deginum þar.

Hvað er hægt að gera í Varsjá

Hjá Pólverjum er ekki sama vodki og vodki. Farðu í smakkferð og kynntu þér þessa skemmtilegu menningu
Nowy Świat gatan er fullkominn staður til að eyða peningum, eða setjast með dýrindis kaffibolla og skoða mannlíf borgarinnar
Vertu vitni að töfrandi vatns- og ljósasýningunni í Multimedia Fountain Park, nálægt gamla bænum
Chopin safnið sýnir líf og störf hins mikla tónskálds á flottan hátt
Njóttu kyrrðar Łazienki 
konungsgarðsins, þar sem þú getur rölt um fallega garða, hitt páfugla og dáðst að höllinni við vatnið
Neonsafnið býður upp á heillandi sýnishorn af neonskiltum frá kommúnistatíma borgarinnar

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til Varsjá með Play, innifalið innrituð taska 20kg og handfarangur 8kg

Brottför

Brottför frá Keflavik föstudaginn 4. október 2024 kl. 14:50 og lent í Varsjá kl. 20:50.

Heimkoma

Heimför frá Varsjá er mánudaginn 7. október 2024 kl. 21:50 og lent í Keflavík kl. 00.05. 

Gisting

3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Varsjá ca 25 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út eitt heppið par eða einstakling
sem fá óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

****

Radisson Blu Sobieski er lúxus, reyklaust hótel í miðbæ Varsjár. Það býður upp á glæsileg herbergi, framúrskarandi matargerð og afþreyingu.   Ókeypis Wi-Fi er í boði. Gististaðurinn er með greiðan neðanjarðarlestaraðgang.
Hótelið býður upp á vel loftkæld herbergi með hljóðeinangrun, LCD gervihnattasjónvarpi og minibar.  Sérbaðherbergið er með sturtu eða baðkari.

Á hótelinu eru 2 frábærir veitingastaðir, Marysieńka og Trylogia, sem framreiða dýrindis pólska og alþjóðlega rétti.  Hótelið er þekkt fyrir "ofur" morgunverðarhlaðborðið sitt sem býður upp á úrval af brauði, ávöxtum, áleggi og heitum réttum, þar á meðal ofnæmis vænum valkostum.

Radisson Blu Sobieski Hotelið býður gestum sínum upp á algerlega nýja vellíðunarupplifun í uppfærðri og fullkomlega endurnýjuðri heilsulind og líkamsræktarstöð með svæði fyrir þolþjálfun og þyngdarþjálfun, auk einkaþjálfunar og heilsulindarmeðferða sé þess óskað. 

Warszawa Centralna-lestarstöðin er staðsett í 10 mí göngufæri og gamli bærinn í 20 mín göngufæri.

Hótelið fær heildareinkunina  8,5 og 9,0 fyrir staðsetningu.

Verðin

 139 990 kr

á mann í tvíbýli

30 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

*****

Radisson Collection Hotel, Warsaw er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarrstöðinni í Varsjá og býður upp á sundlaug. Loftkæld herbergi með te-/kaffiaðstöðu eru í boði. Ókeypis WiFi er til staðar.

Herberginn á Radisson Collection eru rúmgóð og nútímaleg, eru með minibar, öryggishólfi og stóru skrifborði. Stórt og flott baðherbergi í þeim öllum herbergjum.

Radisson Collection Hotel, Warsaw hýsir TAGO Restaurant þar sem morgunverðarhlaðborð er borið fram og THE SPOT Restaurant and Bar. Veitingastaðurinn er opinn allt árið um kring og býður upp á nútímalega matargerð og glæsilega kokkteila. Á sumrin geta gestir snætt og slappað af á útiveröndinni.

Hótelið er staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Złote Tarasy-verslunarmiðstöðinni og Menningar- og vísindahöllinni. Chopin-flugvöllurinn í Varsjá er í einungis 20 mínútna akstursfæri.

Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu. 

Verðin

149 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 90 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com