til Berlín
10. október - 13. október &
11. október - 14. október 2024

Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi. 

Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir. 
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu. 
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.

Hvað er hægt að gera í Berlín


Brandenborgarhliðið - tákn borgarinnar og sameinaðs Þýskalands

Das Klo: Skrítni klósett upplifunar-barinn

Berlínarmúrinn og Check-point Charlie

Útvarpsturninn á Alexander Platz


Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður

Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair, innrituð allt að 23kg farangurstaska og 10kg í handfarangur

Flogið út

Brottför 1:
Frá Keflavík fimmtudaginn 10. október kl. 07:35, lent kl. 13:10 í Berlín.

Brottför 2:
Frá Keflavík föstudaginn 11. október kl. 07:35, lent kl. 13:10 í Berlín.

Flogið heim

Heimför 1:
Frá Berlín sunnudaginn 13. október  kl.14:05 og lent á Keflavík kl 15:50.

Heimför 2:
Frá Berlín mánudaginn 14. október kl.14:05 og lent á Keflavík kl 15:50.

Gisting

3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli.  Innifalið er morgunverður, wi-fi, gisti- og borgarskatturinn.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Berlín 25-30 mín akstur

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)

Hótel

     ****

Þetta hótel er staðsett aðeins 5 mínútur frá miðkjarna Mitte, þar má finna gallerí, fatabúðir, skemmtilega veitingastaði og lifandi bari.

Það má finna gufur, líkamsrækt og útisvæði á hótelinu sem og flottan veitingarstað.

Öll herbergin eru loftræst og hafa hlóðeinagruð gler í gluggum sem snúa út. Það má finna skrifborð á öllum herbergjum, hárblásara og baðvörur.

Naturkundemuseum lestarstöðin er aðeins í 2 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og er hægt að komast um alla Berlín þaðan. Einnig er Berlin Central Station í aðeins 15 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin 

124 990 kr. 

á mann í tvíbýli

30 000 kr. 

aukagjald í einbýli

Hótel

Park Inn by Radisson Berlin Alexanderplatz
   *****

Þetta 4ra stjörnu úrvalshótel státar af 3 veitingastöðum, heilsulind og herbergjum með loftkælingu og flatskjáum. Það er hæsta hótel Berlínar og er staðsett beint við Alexanderplatz-torgið.

Öll herbergin og svíturnar á Park Inn Radisson Berlin Alexanderplatz eru með marmaralögð baðherbergi með kraftsturtu og hita í gólfum. Ókeypis WiFi er til staðar hvarvetna á hótelinu.

Sérréttir sem eldaðir eru eftir hefðum svæðisins eru framreiddir á veitingastaðnum Zillestube og alþjóðlegur matur á Humboldt. Máltíðir og drykkir eru í boði á Spagos Bar & Lounge og er það útbúið fyrir framan gesti í opna eldhúsinu.

Í vellíðunaraðstöðu Park Inn er að finna gufubað, líkamsræktaraðstöðu og nuddþjónustu. Gestir geta einnig slappað af á veröndinni á efstu hæðinni en þaðan er frábært útsýni yfir miðbæ Berlínar.

Park Inn by Radisson er staðsett á móti Alexanderplatz-stöðinni en þaðan eru tengingar með strætisvögnum, sporvögnum, neðanjarðarlestum og S-Bahn-lestum við alla hluta Berlínar. Safnaeyjan og hið líflega Hackescher Markt-svæði eru í 10 mínútna göngufjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 7,4 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin 

139 990 kr. 

á mann í tvíbýli

45 000 kr. 

aukagjald í einbýli

Hótel

  *****

Þetta 5* hótel á hinni sögufrægu Friedrichstrasse í Berlín býður upp á heilsulind, aðlaðandi garð og einstakt anddyri með stórum stiga. Brandenborgarhliðið er í 10 mínútna göngufjarlægð.
Westin Grand, glæsileg herbergi og svítur Berlínar eru með flatskjásjónvarpi og þægilegum rúmum. Nútímaleg baðherbergin eru með baðsloppa og inniskó sem eru með hárþurrku.
Relish Restaurant & Bar býður upp á nútímalegan mat með frönskum og asískum áhrifum. Ríkulegt morgunverðarhlaðborð er í boði á veitingastaðnum Coelln á hverjum degi. Gestir geta notið drykkja á klassíska móttökubarnum sem er með víðáttumiklum gluggum.
Westin Spa & Fitnesslounge er með líkamsræktarstöð. Hægt er að bóka slakandi nudd og úrval af snyrtimeðferðum.

Französische Strasse neðanjarðarlestarstöðin er í 1 mínútu göngufjarlægð. Það eru nokkrir strætóstoppistöðvar við hina frægu Unter den Linden -breiðgötu, aðeins 100 metra frá hótelinu.

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin 

149 000 kr. 

á mann í tvíbýli

60 000 kr. 

aukagjald í einbýli

Árshátíðarkvöldið hugmynd:

🇩🇪🍻Októberfest🍻🇩🇪     

Hægt er að halda Októberfest úti í Berlín!

Hugmyndin er að vera með standandi mat, offramboð af bjór í 1 líters könnum🍻 og alvöru Októberfest þema. 

Við höfum farið með hópa af ykkar stærðargráðu til Berlínar og leigt Októberfest stal þar sem hægt er að vera með alvöru Októberfestþemaparty!

Verðin miðast við 200 manns. Endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com