Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!
Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate
og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château
(þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes
er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras
en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.
Hvað er hægt að gera í Nice
Einn frægasti listamaður Frakka, Henri Mattisse, bjó í Nice til fjölda ára og þar er safn með öllum hans helstu verkum
Ertu í stuði til að gambla svolítið? Casino Barrière Le Ruhl
er glæsilegur staður fyrir þess háttar
Á Cours Saleya
er vinsæll götu-markaður (fyrst opnaður 1861) og dásamleg kaffihúsaverönd
Hôtel Negresco
er rúmlega 100 ára glamúrbygging við Promenade des Anglais, og dýrindis kokteilar á barnum
Strætókerfi svæðisins er mjög þægilegt og kvikmyndahátíðabærinn Cannes
er skammt undan. Kíktu!
Le Shapko er geggjaður djassbar með lifandi tónlist og góðum stemmara öll kvöld vikunnar
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint áætlunarflug með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska
og 10 kg. handfarangur.
Brottför
Brottför fimmtudaginn 10. október til Nice kl 16:25. Lending áætluð um kl 22:30
Flugtímar
Heimför mánudaginn 14. október til Keflavíkur kl 23:30 og áætluð lending kl 01:50.
Gisting
4 nætur á 3/4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgun-verður, wi-fi og citytax.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími 15 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi.
Ferðalóttó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Hótel
***
Ibis Styles Nice Centre Port er staðsett á gamla hafnarsvæðinu í Nice, 850 metrum frá Acropolis-ráðstefnumiðstöðinni. Það býður upp á ókeypis WiFi.
Öll herbergin á Ibis Styles Nice Centre Port eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi og streituvarnarpúðum og sængum. Herbergin eru með en-suite baðherbergi með sturtu. Öll herbergin eru aðgengileg með lyftu. Öryggishólf er í boði gegn aukagjaldi.
Morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega á hótelinu og móttakan er opin allan sólarhringinn.
Auðvelt er að komast í Ibis Styles Nice Centre Port frá A8 hraðbrautinni. Það er staðsett 8,7 km frá Nice flugvelli og 2,5 km frá Nice Ville lestarstöðinni.
Hótelið fær heildareinkunina 7,6 og 9,0 fyrir staðsetningu.
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Best Western Plus Hôtel Massena Nice er hönnunarhótel sem er staðsett í hjarta Nice, í aðeins 200 metra fjarlægð frá ströndinni. Það býður upp á loftkæld herbergi með flatskjásjónvarpi og ókeypis Wi-Fi-Internetaðgangi. Gististaðurinn er í 5 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum í Nice og Massena-sporvagnastöðinni.
Herbergin eru með minibar og te/kaffiaðbúnað. Sum herbergin eru með svalir eða verönd. Það eru baðsloppar á flestum sérbaðherbergjunum.
Amerískt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni á Hôtel Massena. Gestir geta einnig fengið sér drykk á hótelbarnum og herbergisþjónusta er í boði gegn beiðni.
Promenade du Paillon-garðurinn, sem liggur að Promenade des Anglais, er í aðeins 100 metra fjarlægð. Lestarstöðin í Nice er í 1 km fjarlægð og ókeypis einkabílastæði eru í boði á staðnum. Það er strætisvagnastöð í 8 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og þar stoppar vagn sem gengur út á Nice Côte d'Azur-flugvöllinn.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Verðin
184 990 kr
á mann í tvíbýli
105 000 kr
aukagjald í einbýli