til Alicante
5. október til 8. október 2024

Mitt í Costa Blanca héraðsins á Spáni er borgin Alicante.  Borgin er þekkt fyrir mikla mat og vínmenningu, minjar og sögu sem spannar 7000 ár.  Strandlengjan í borginni er 7km löng og iðar af mannlífi.

Alicante býður upp á margt fleira en strandlíf og slökun. Borgin er falleg og þarna er hægt að finna fjölda áhugaverða safna, sögulegar minjar frá tímum máranna, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Mikil matar- og vínmenning er á svæðinu  sem endurspeglast í fjölda framúrskarandi veitingastaða.
Helsta kennileiti borgarinnar er kastalinn Santa Barbara frá 9.öld, hægt er að ganga upp að honum eða taka lyftuna og njóta útsýnisins.
Gott er að versla í Alicante, þar eru nokkrar stórar verslunarmiðstöðvar. Ramblan er göngugata með úrvali af verslunum og veitingastöðum með gómsætum kræsingum frá öllum heimshornum. Við  mælum sérstaklega með tapas að hætti heimamanna.
Næturlífið á Alicante er frábært, og eru fjölmargir barir, skemmtistaðir og næturklúbbar í borginni.  Gamli bærinn, El Barrio, er mjög líflegur á kvöldin sem og El Puerto þar sem skemmtistaðir eru opnir til morguns. 

Hvað er hægt að gera í Alicante

Skelltu þér í göngu upp að Santa Barbara kastalanum og njóttu úsýnisins.
Í borginni er að finna marga frábæra markaði og svo er Ramblan frábær verslunargata
Hafnarsvæðið iðar af mannlífi og þar eru hundruðir smábáta og snekkja
Það má hanga á ströndinni með einn kaldann
Fáðu þér tapas eða paella og njóttu á fallegum veitingastað en það er fullt af veitingastöðum í borginni
Lókalbjórinn heitir Altabirra, og þykir bæði afar bragðgóður og svalandi á heitum degi

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint áætlunarflug með Play þar sem 1 innrituð 20 kg taska  og 8kg  handfarangur er innifalinn. 

Brottför

Flogið er frá Keflavík kl. 14:50, laugardaginn 5. október, og lent í Alicante klukkan 21:25 að staðartíma.

Heimför

Flogið er frá Alicante kl. 22:25, þriðjudaginn 8. október, og lent í Keflavík klukkan 01:10 að staðartíma.

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og citytax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími  15  mín.

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðing frá Tripical

Hótel

****

Meliá Alicante er staðsett á milli hafnarinnar í Alicante og Postiguet-strandarinnar og býður upp á útisundlaug ásamt ókeypis WiFi hvarvetna. Öll herbergin eru með verönd og sum eru með sjávarútsýni. 
Öll herbergin á Melia Alicante eru rúmgóð og eru með loftkælingu, flatskjá með gervihnattarásum, minibar og öryggishólf. Baðherbergin eru nútímaleg og eru með snyrtivörum og hárþurrku.
Veitingastaður hótelsins, Trasluz, sérhæfir sig í hrísgrjónaréttum og ferskum fiski. Það er einnig til staðar snarlbar við sundlaugina og glæsilegur setustofubar.
Hótelið býður einnig upp á persónumiðaða The Level-þjónustu í sumum af herbergjum hótelsins. Þessi þjónusta er aðeins fyrir fullorðna og innifelur fjölbreytta úrvalsþjónustu og -aðstöðu og má þar með nefna einkamóttöku, flýtiinnritun og -útritun, aðgang að einkasundlaug með stórkostlegu sjávarútsýni, aðgang að opnum bar með ókeypis drykkjum og snarli o.s.frv.

Hótelið snýr í átt að spilavítinu í Alicante og er í aðeins 50 metra fjarlægð frá snekkjuklúbbnum og smábátahöfninni. Santa Barbara-kastalinn og fornminjasafnið eru í aðeins 800 metra fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og 9,4 fyrir staðsetningu. 

Verðin

159 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 55 manns.
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com