
Til MADRID
17. maí til 20. maí 2024
Til MADRID
17. maí til 20. maí 2024
Höfuðborg Spánar er töff, hún er smart, hún er snyrtileg, og full af glamúr og elegans. Ofan á þetta bætist svo sú staðreynd að hún er ómótstæðilega skemmtileg, og með allt til alls, svo heimsókn þín verði sem eftirminnilegust.
Menningarsaga Madrid litast mikið af arfleifð konungsveldisins, en borgin var frá upphafi miðpunktur hins spænska stórveldis. Þannig prýða borgina sjálf konungshöllin, sem og stórar og miklar byggingar frá einveldistímanum, ásamt risavöxnum dómkirkjum og öðrum glæsilegum miðaldararkitektúr. Madrid er þó nú á tímum afar nútímaleg, og kapp er lagt á að fylgja nýjustu straumum í útliti og uppbyggingu, samgöngum og skemmtun.
Ólíkt mörgum stórborgum, þykir Madrid vera áberandi hrein og snyrtileg. Þetta er metnaðarmál yfirvalda, og þú munt eflaust rekast oft á borgarstarfsfólk í skærgulum vestum með kústa á lofti að hreinsa stræti og stéttir.
Næstum allir vinsælustu staðirnir fyrir ferðamenn að skoða, má finna í miðbænum. Þangað er auðvelt að komast, hvar sem þú ert í borginni, þökk sé mjög einföldum og þægilegum lestarsamgöngum. Miðbærinn er auk þess stútfullur af veitingastöðum og krám, en barir og skemmtistaðir er ansi víða. Madrid státar nefnilega af því skemmtilega meti, að hafa fleiri bari en nokkur önnur evrópsk borg, miðað við höfðatölu (við Íslendingar elskum auðvitað þann mælikvarða). Næturlífið er mjög fjörugt og stendur fram á morgun. TIlvalin leið til að kynnast heimamönnum, sem kalla sig í daglegu tali
Madrileños, eða, og þetta er ekki eins algengt, gatos, sem þýðir kettir.
Hvað er hægt að gera í Madrid
Konungshöllin er ein sú stærsta í Evrópu og af mörgum talin fallegasta bygging Madridborgar
Retiro
garðurinn er fyrrum konungsgarður en nú ætlaður okkur hinum til að ganga um og njóta
San Miguel
markaðurinn við Plaza Mayor er æði - ef ekki til að kaupa, þá bara fyrir stemminguna
Hvaða fótboltaáhuga manneskja sem er, hvort sem hún styður Real Madrid eður ei, ætti að heimsækja hinn risavaxna heimaleikvang liðsins.
Gran Vía er stærsta og fjölfarnasta breiðstræti borgarinnar. Mikið úrval alls kyns verslana
Safnaþríhyrningurinn svokallaði er hverfi með fullt af flottum söfnum
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur.
Brottför
Brottför 17.Mai klukkan 15.00 og lent klukkan 21:25
Heimför
Heimför 20.Maí klukkan 22:25 og lent klukkan 01:00
Gisting
3 nætur á 3/4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Madrid 25 - 30 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi
Ferðalottó-Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.
Hótel
***
Hotel Madrid Chamartín Managed by Meliá Hotels International er með veitingastað, útisundlaug sem er opin hluta af árinu, bar og garð í Madríd. Þetta 3-stjörnu hótel býður upp á sólarhringsmóttöku og upplýsingaborð ferðaþjónustu. Ókeypis WiFi er í boði og einkabílastæði eru í boði gegn aukagjaldi.
Morgunverðarhlaðborð er í boði á hverjum morgni á hótelinu.
Paseo de la Castellana er 2,1 km frá Hotel Madrid Chamartín og Santiago Bernabéu-leikvangurinn er 2,9 km frá gististaðnum. Næsti flugvöllur er Adolfo Suarez Madrid-Barajas-flugvöllur, 24 km frá gististaðnum.
Hótelið fær 8,0 í heildareinkun á booking.com og 8,3 fyrir staðsetningu
Verðin
129 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Hotel Santo Domingo er staðsett í hjarta Madríd, í innan við 150 metra fjarlægð frá Gran Via og Santo Domingo-neðanjarðarlestarstöðinni. Það er með sólþakverönd með sundlaug og útsýni yfir borgina. Herbergin eru sérinnréttuð og bjóða upp á ókeypis WiFi.
Eignin samanstendur af tveimur samtengdum svæðum, aðalbyggingu og viðbyggingu. Gestir geta slakað á á veröndinni okkar, sem er opin allt árið um kring, á meðan þeir njóta kokteils og töfrandi útsýnis yfir Madríd.
Hin fræga Puerta del Sol er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Hotel Santo Domingo, en Plaza Mayor-torgið og konungshöllin eru í innan við 800 metra fjarlægð frá gististaðnum. Prado-safnið, Retiro-garðurinn og Santiago Bernabeu-leikvangurinn eru allir í innan við 15 mínútna fjarlægð frá hótelinu með neðanjarðarlest.
Hótelið fær 7,4 í heildareinkun á booking.com og 9,4 fyrir staðsetningu
Verðin
139 990 kr
á mann í tvíbýli
40 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
***
Akeah Hotel Gran Vía er staðsett í Madríd og býður upp á útisundlaug, verönd, veitingastað og bar. Þetta 3 stjörnu hótel býður upp á sólarhringsmóttöku og ókeypis WiFi. Gististaðurinn er 700 metra frá Gran Via og innan við 1 km frá miðbænum.
Hótelið býður gestum upp á loftkæld herbergi með fataskáp, kaffivél, minibar, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með sturtu. Öll herbergin á Akeah Hotel Gran Vía eru með rúmföt og handklæði.
Gestir geta notið morgunverðarhlaðborðs.
Áhugaverðir staðir í nágrenni Akeah Hotel Gran Vía eru meðal annars Gran Via-neðanjarðarlestarstöðin, Plaza de España-neðanjarðarlestarstöðin og musterið Temple of Debod
Hótelið fær 8,6 í heildareinkun á booking.com og 9,5 fyrir staðsetningu
Verðin
154 990 kr
á mann í tvíbýli
70 000 kr
aukagjald í einbýli