til Nice
5. september til 9. september 2024

Í hinni dásamlegu höfuðborg Frönsku Rívíerunnar finnurðu hina fullkomnu leið til að njóta lífsins til fulls. Nice er svooo næs!

Nice var hluti af Ítalíu allt til ársins 1860 og því er auðvelt að finna bæði frönsk og ítölsk áhrif í arkitektúr, menningu og matargerð. Gamli bærinn (Vieux Nice) ber sterk ítölsk einkenni, og þar er skemmtilegt að týna sér á rölti um þröngar hlykkjóttar götur og stíga, njóta litagleðinnar í framhliðum húsanna og skoða fornar glæsibyggingar eins og Cathédrale Sainte-Réparate og 17. aldar safnið Palais Lascaris. Þar er líka mikið úrval af börum og veitingahúsum og hægt að gæða sér á ljúfum kokteil eða bjórglasi og horfa á himneskt sólarlagið. Hin víðfeðma göngugata Promenande des Anglais, eða ,,La Prom“ nær meðfram
risalangri strandlengju borgarinnar, með stórkostlegu útsýni út á hafið fyrir utan. Fyrir stórkostlegt útsýni og sjarmerandi umhverfi má líka mæla með göngu upp tröppurnar að Colline du Château (þangað gengur reyndar líka lyfta fyrir þau sem það kjósa). Strendurnar í og ​​við Nice eru auðvitað ein af meginástæðum fyrir vinsældum staðarins. Plage des Ponchettes er meðal þeirra vinsælustu, en einnig má nefna Plage Publique de Castel, og Plage de Carras en hún þykir einna best fyrir þau sem vilja meira fjör, eins og jet-ski, fallhlífasvif, brimbretti eða vindsængurrall.

Hvað er hægt að gera í Nice

Einn frægasti listamaður Frakka, Henri Mattisse, bjó í Nice til fjölda ára og þar er safn með öllum hans helstu verkum
Ertu í stuði til að gambla svolítið? Casino Barrière Le Ruhl er glæsilegur staður fyrir þess háttar
Á Cours Saleya er vinsæll götu-markaður (fyrst opnaður 1861) og dásamleg kaffihúsaverönd 
Hôtel Negresco er rúmlega 100 ára glamúrbygging við Promenade des Anglais, og dýrindis kokteilar á barnum
Strætókerfi svæðisins er mjög þægilegt og kvikmyndahátíðabærinn Cannes er skammt undan. Kíktu!
Le Shapko er geggjaður djassbar með lifandi tónlist og góðum stemmara öll kvöld vikunnar

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint áætlunarflug með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska  og 10 kg.  handfarangur. 

Brottför

Brottför fimmtudaginn 5. september til Nice kl 16:25. Lending áætluð um kl 22:45

Flugtímar

Heimför mánudaginn 9. september til Keflavíkur kl 15:45 og áætluð lending kl 18:05.

Gisting

4 nætur á 3/4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgun-verður, wi-fi og citytax.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli, aksturstími  15  mín

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

Ferðalóttó Tripical 

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Hótel

***

Ibis Styles Nice Centre Port er staðsett á gamla hafnarsvæðinu í Nice, 850 metrum frá Acropolis-ráðstefnumiðstöðinni. Það býður upp á ókeypis WiFi.

Öll herbergin á Ibis Styles Nice Centre Port eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi og streituvarnarpúðum og sængum. Herbergin eru með en-suite baðherbergi með sturtu. Öll herbergin eru aðgengileg með lyftu. Öryggishólf er í boði gegn aukagjaldi.

Morgunverðarhlaðborð er borið fram daglega á hótelinu og móttakan er opin allan sólarhringinn.

Auðvelt er að komast í Ibis Styles Nice Centre Port frá A8 hraðbrautinni. Það er staðsett 8,7 km frá Nice flugvelli og 2,5 km frá Nice Ville lestarstöðinni.

Hótelið fær heildareinkunina 7,6 og 9,0 fyrir staðsetningu. 

Verðin

164 990 kr

á mann í tvíbýli

50 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Best Western Plus Hôtel Massena Nice er hönnunarhótel sem er staðsett í hjarta Nice, í aðeins 200 metra fjarlægð frá ströndinni. Það býður upp á loftkæld herbergi með flatskjásjónvarpi og ókeypis Wi-Fi-Internetaðgangi. Gististaðurinn er í 5 mínútna göngufjarlægð frá gamla bænum í Nice og Massena-sporvagnastöðinni.

Herbergin eru með minibar og te/kaffiaðbúnað. Sum herbergin eru með svalir eða verönd. Það eru baðsloppar á flestum sérbaðherbergjunum.

Amerískt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni á Hôtel Massena. Gestir geta einnig fengið sér drykk á hótelbarnum og herbergisþjónusta er í boði gegn beiðni.

Promenade du Paillon-garðurinn, sem liggur að Promenade des Anglais, er í aðeins 100 metra fjarlægð. Lestarstöðin í Nice er í 1 km fjarlægð og ókeypis einkabílastæði eru í boði á staðnum. Það er strætisvagnastöð í 8 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu og þar stoppar vagn sem gengur út á Nice Côte d'Azur-flugvöllinn.

Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,3 fyrir staðsetningu. 

Verðin

209 990 kr

á mann í tvíbýli

100 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 20-25 manns, 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com