
Til Prag
11. september til 15. september 2024
Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!
Prag slapp nánast heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava
rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld.
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða.
Hvað er hægt að gera í Prag
Prag kastalinn
er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House
er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague
Strahov klaustrið
stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum
Josefov
gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Prag með Icelandair í áætlunarflugi, innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri.
Flogið út
Flogið frá Keflavík miðvikudaginn 11. september 2024 klukkan 07:20
og lent í Prag klukkan klukkan 13:05.
Flogið heim
Flogið frá Prag sunnudaginn 15. september 2024 klukkan 14:05 og lent í Keflavík klukkan 16:00.
Gisting
4
nætur á 4-5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.
Rutur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Prag ca 25 mín
Farastjórn
Sé þess óskað - gegn gjaldi
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical
Hótel
****
Holiday Inn Prague er á rólegum stað, nokkrum skrefum frá Vysehrad-kastala og garðinum. Vysehrad-neðanjarðarlestarstöðin er í innan við 150 metra fjarlægð. Öll herbergin eru með loftkælingu.
Herbergin eru búin gervihnattasjónvarpi, litlum ísskáp og öryggishólfi. Koddar og ofnæmisprófuð teppi eru í boði.
Nuddherbergið er með austurlenskum skreytingum og er með úrval af nuddi. Það er líka lítill líkamsræktarsalur.
Nútímaleg tékknesk og alþjóðleg matargerð er framreidd á veitingastaðnum Esprit sem er með vetrargarð og verönd. Delicatesse Bistro með sumarverönd er tilvalið fyrir fljótlegan morgunverð, frábæran hádegismatseðil, ferskt salöt, samlokur eða dýrindis heimagerða eftirrétti.
Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,6 fyrir staðsetningu.
Verðin
164 990 kr
á mann í tvíbýli
60 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
*****
Grandium Hotel Prague er staðsett í hjarta Prag, rétt handan við hornið frá Wenceslas-torginu.
Herbergin eru glæsileg og nútímaleg með ókeypis WiFi, loftkælingu og te/kaffiaðbúnaði.
Veitingastaðurinn og kaffihúsið á Grandium Hotel Prague býður upp á ljúffenga alþjóðlega sem og tékkneska matargerð. Gestir geta notið máltíða í glæsilega borðsalnum eða úti í sumargarðinum þegar veðrið er gott.
Grandium Hotel Prague býður upp á móttöku sem opin er allan sólarhringinn.
Gestir geta nálgast almenningssamgöngur í nokkurra skrefa fjarlægð. Þjóðminjasafnið í Prag og Betlehem-kapellan eru í 300 til 600 metra fjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Verðin
159 990 kr
á mann í tvíbýli
70 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Radisson Blu Hotel Prague *****
Radisson Blu Hotel Prague er staðsett á milli gamla bæjarins og nýja bæjarins í Prag, 300 metrum frá Wenceslas-torgi og í 2 mínútna göngufjarlægð frá Karlovo namesti-neðanjarðarlestarstöðinni. Hótelið býður upp á veitingastað og líkamsræktarstöð. Hótelið er í 4 samliggjandi sögulegum byggingum. Hótelið hefur gengið í gegnum miklar endurbætur árið 2019 þar sem öll almenningssvæði, herbergi og svítur, veitingastaður, bar og fundarherbergi hafa verið endurnýjuð að fullu.
Rúmgóðu, loftkældu herbergin á Radisson Blu Hotel Prague eru með setusvæði, flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum, minibar, ókeypis te/kaffiaðstöðu, auk baðherbergi með ókeypis snyrtivörum og hárþurrku. 24-tíma herbergisþjónusta er einnig í boði.
Veitingastaðurinn á staðnum framreiðir alþjóðlega nútímalega matargerð með tékknesku ívafi með fersku árstíðabundnu hráefni. Gestir geta notið einkennandi kokteila og útsýni yfir líflega götu Prag frá barnum.
Hótelið fær heildareinkunn 8,6 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
179 990 kr
á mann í tvíbýli
85 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 22 manns. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir