til München
17. október til 20. október &
18. október til 21. október 2024

 Munchen er ekki ósvipuð Berlín í skipulagi, þetta er stór borg með mörgum hverfum sem hvert og eitt hefur sitt eigið aðdráttarafl, sinn eigin sjarma. Hér er því úr mörgu að velja og þú getur ráðið hvernig þú vilt hafa ferðina þína.

Nafn borgarinnar er úr forn-þýsku, og þýðir "Hjá munkunum", þar sem vísað er í klaustur sem fyrr á öldum reis þar sem miðbærinn stendur nú. Munchen er þriðja stærsta borg Þýskalands, og þar búa um ein og hálf milljón manns. Lífsgæði þykja með þeim bestu í Evrópu, ef ekki heiminum öllum. Borgin er miðpunktur menningar og lista, menntunar, vísinda, tækninýjunga og viðskipta á heimsvísu. Sögulegar byggingar, stórir íþróttaviðburðir og hátíðir af ýmsu tagi, þ.á.m. hið árlega Október bjórfestival, trekkir að ferðamenn í miklum mæli, og munkaborgin verður stöðugt vinsælli áfangastaður forvitinna ferðalanga.    
Það er gaman að upplifa mismunandi stemmingu borgarhverfanna. Ef rennt er lauslega yfir þau helstu, þá höfum við miðbæinn, Altstadt-Lehel, með elstu byggingunum, og flestum myndavélum á lofti. Þá höfum við Schwabing, sem er trendý og töff, með fullt af flottum kaffihúsum og börum, gallerýum og tískuverslunum. Hverfið Au-Haidhausen er einna villtast, þar finnurðu líflega klúbba og bari sem opnir eru fram undir morgun. Ef leitað er eftir rólegheitum, göngu í fallegu umhverfi, með viðkomu til dæmis í skemmtilegri ísbúð, er gott að fara í Neuhausen-Nymphenburg  og njóta dagsins þar.
 

Hvað er hægt að gera í München

Odeonsplatz er virðulegt torg umkringt glæsibyggingum
New Jewish Center er flottur og fræðandi staður um menningu og trúarlíf gyðinga 
BMW safnið er frábært fyrir bíla- og tækniáhugafólk, og alla aðra reyndar líka
Barokkhöllin Nymphenburg og hallargarðurinn í kring er dásamlegur staður  
Ráðhúsbyggingin Maximilianeum er ansi stórbrotin
Hofbräuhaus -  þekktust og flottust af mörgum flottum bjórhöllum borgarinnar

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug til og frá Munchen með Icelandair í áætlunarflugi innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri.  

Flugtími er um 4 klst

Brottför

Brottför 1:
Flogið á fimmtudeginum 17. október frá Keflavík 
kl. 07:20, lent í Munchen kl. 13:05.

Brottför 2:
Flogið á föstudeginum 18. október frá Keflavík 
kl. 07:20, lent í Munchen kl. 13:05.

Heimför

Heimför 1: 
Flogið á sunnudeginum 20. október frá Munchen kl.14:05, lent í Keflavík 16:00. 

Heimför 2: 
Flogið á mánudeginum 21. október frá Munchen kl.14:05, lent í Keflavík 16:00. 

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hótel, innifalið er morgunverður, wi-fi og city tax.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli 20 - 30 mín 

Íslensk farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út
heppið par/einstakling sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótelið

****

Maritim Hotel München er staðsett miðsvæðis, í aðeins 300 metra fjarlægð frá aðallestarstöðinni í München.

Alþjóðlegur matur er framreiddur daglega á veitingastaðnum Rôtisserie á Maritim. Á kvöldin býður Píanóbarinn upp á þýskan bjór, eðalvín og lifandi tónlist.

Öll herbergin á Maritim Hotel München eru með nútímalegt baðherbergi með ókeypis snyrtivörum og gervihnattasjónvarp. WiFi er í boði hvarvetna á hótelinu án endurgjalds.

Maritim Hotel München býður upp á gufubað og líkamsrækt sem gestir geta notað gegn aukagjaldi.

Oktoberfestsvæðið Theresienwiese er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Neðanjarðar- og S-Bahn-lestir frá aðallestarstöðinni í München veita tengingar við alla hluta borgarinnar.

Hótelið fær heildareinkunn 7,8 og 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com

VERÐ

 139 990 kr

á mann í tvíbili

25 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 100 manns.

Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 



Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 663 3313

Netfang. arna@tripical.com