Munchen er ekki ósvipuð Berlín í skipulagi, þetta er stór borg með mörgum hverfum sem hvert og eitt hefur sitt eigið aðdráttarafl, sinn eigin sjarma. Hér er því úr mörgu að velja og þú getur ráðið hvernig þú vilt hafa ferðina þína.
Nafn borgarinnar er úr forn-þýsku, og þýðir "Hjá munkunum", þar sem vísað er í klaustur sem fyrr á öldum reis þar sem miðbærinn stendur nú. Munchen er þriðja stærsta borg Þýskalands, og þar búa um ein og hálf milljón manns. Lífsgæði þykja með þeim bestu í Evrópu, ef ekki heiminum öllum. Borgin er miðpunktur menningar og lista, menntunar, vísinda, tækninýjunga og viðskipta á heimsvísu. Sögulegar byggingar, stórir íþróttaviðburðir og hátíðir af ýmsu tagi, þ.á.m. hið árlega Október bjórfestival, trekkir að ferðamenn í miklum mæli, og munkaborgin verður stöðugt vinsælli áfangastaður forvitinna ferðalanga.
Það er gaman að upplifa mismunandi stemmingu borgarhverfanna. Ef rennt er lauslega yfir þau helstu, þá höfum við miðbæinn, Altstadt-Lehel, með elstu byggingunum, og flestum myndavélum á lofti. Þá höfum við Schwabing, sem er trendý og töff, með fullt af flottum kaffihúsum og börum, gallerýum og tískuverslunum. Hverfið Au-Haidhausen
er einna villtast, þar finnurðu líflega klúbba og bari sem opnir eru fram undir morgun. Ef leitað er eftir rólegheitum, göngu í fallegu umhverfi, með viðkomu til dæmis í skemmtilegri ísbúð, er gott að fara í Neuhausen-Nymphenburg og njóta dagsins þar.
Hvað er hægt að gera í München
Odeonsplatz er virðulegt torg umkringt glæsibyggingum
New Jewish Center
er flottur og fræðandi staður um menningu og trúarlíf gyðinga
BMW safnið er frábært fyrir bíla- og tækniáhugafólk, og alla aðra reyndar líka
Barokkhöllin Nymphenburg
og hallargarðurinn í kring er dásamlegur staður
Ráðhúsbyggingin Maximilianeum
er ansi stórbrotin
Hofbräuhaus - þekktust og flottust af mörgum flottum bjórhöllum borgarinnar
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug til og frá Munchen með Icelandair í áætlunarflugi innrituð 23kg taska ásamt 10kg handfarangri.
Flugtími er um 4 klst
Brottför
Brottför 1:
Flogið á fimmtudeginum 17. október frá Keflavík
kl. 07:20, lent í Munchen kl. 13:05.
Brottför 2:
Flogið á föstudeginum 18. október frá Keflavík
kl. 07:20, lent í Munchen kl. 13:05.
Heimför
Heimför 1:
Flogið á sunnudeginum 20. október frá Munchen kl.14:05, lent í Keflavík 16:00.
Heimför 2:
Flogið á mánudeginum 21. október frá Munchen kl.14:05, lent í Keflavík 16:00.
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hótel, innifalið er morgunverður.
Rútur
Rútur til og frá flugvelli 20 - 30 mín
Íslensk farastjórn
Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.
Ferðalottó Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út
heppið par/einstakling sem fá óvæntan glaðing frá Tripical
Hótelið
****
Maritim Hotel München er staðsett miðsvæðis, í aðeins 300 metra fjarlægð frá aðallestarstöðinni í München.
Alþjóðlegur matur er framreiddur daglega á veitingastaðnum Rôtisserie á Maritim. Á kvöldin býður Píanóbarinn upp á þýskan bjór, eðalvín og lifandi tónlist.
Öll herbergin á Maritim Hotel München eru með nútímalegt baðherbergi með ókeypis snyrtivörum og gervihnattasjónvarp. WiFi er í boði hvarvetna á hótelinu án endurgjalds.
Maritim Hotel München býður upp á gufubað og líkamsrækt sem gestir geta notað gegn aukagjaldi.
Oktoberfestsvæðið Theresienwiese er í 10 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Neðanjarðar- og S-Bahn-lestir frá aðallestarstöðinni í München veita tengingar við alla hluta borgarinnar.
Hótelið fær heildareinkunn 7,8 og 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir