til Madeira

Perlu Atlantshafsins

15. október til 22. október 2024

Þær hafa verið nefndar Perla Atlantshafsins og þótt nálægðin sé í raun meiri við Marokkó, tilheyra Madeira eyjurnar Portúgal og eru partur af Evrópu. Þar er milt og þægilegt loftslag árið um kring og þessi smávaxna paradís er dásamlegur íverustaður.

Það voru portúgalskir sæfarar sem fyrstir fundu eyjurnar snemma á 15. öld, og þær hafa verið hluti af ríki Portúgal síðan. Þessi einstaklega gróðursæli staður er í raun toppur á gömlu eldfjallasvæði og á upphaf sitt að rekja þaðan. Eins og áður sagði er loftslag þarna afar milt og gott, klasinn er staðsettur sunnarlega en umkringdur svölu Atlantshafinu, svo hér ríkir einstakt jafnvægi í veðurfari.
Madeira er mjög vinsæll ferðamanna- staður, þar er margt í boði fyrir gesti eyjunnar, bæði í stærsta bæ og höfuðstað Madeira, Funchal, sem og í stórbrotinni náttúru víðs vegar, þar sem hægt er að stunda útivist af ýmsu tagi, taka lengri og styttri göngur, og klífa fjöll ef maður vill reyna aðeins meira á taugarnar. 

Austurhluti Madeira, Ponta de São Lourenco, státar af stórbrotinni náttúrufegurð, auk þess sem útsýnið þar er ógleymanlegt. Klettar og hraun eru þar afar sérstök í útliti og þar á milli má finna sjaldgæfan gróður og jurtir. Hér má taka fram fjallgöngugræjurnar, en einnig er mikið af þægilegum stígum og öruggum gönguleiðum. Þá er vegakerfið prýðilegt á eyjunni, og vel hægt að spara sér sporin, leigja bíl og aka um, keyra upp hæðirnar og njóta útsýnis og fallega umhverfisins.
Í Funchal er hina ýmsu afþreyingu að finna, og í raun ekki nokkur leið að láta sér leiðast á þessari yndislegu paradísareyju.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Play, innrituð allt að 20kg farangurstaska og 10kg í handfarangur

Brottför

Brottför frá Keflavík þriðjudaginn 15. október kl. 09:00, lent kl. 14:55 í Madeira


Heimför

Brottför frá Madeira þriðjudaginn 22. október kl.15:55 og lent á Keflavík kl. 20:20.

Gisting

7 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi.

Hvað er hægt að gera í Madeira

Madeira vínin eru heimsþekkt, og hvar annars staðar en hér er rétti staðurinn að dreypa á slíku?
Cabo Girão er eitt af hæstu sjávarbjörgum veraldar, 590 m. þverhnýpi niður í sjó
São Vicente hraunhellarnir þykja mjög sérstakir og skemmtilegir
Hefur þig dreymt um að prófa svifflug? Madeira er frábær staður fyrir svoleiðis
Hægt er að mæla með kayak ferðum um Ponta de São Lourenço - mikið að sjá og skoða
Það er vinsælt að kafa í kringum eynna, lífríkið neðansjávar kringum eyjurnar er ansi magnað 

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

*****

Þetta vel hannaða hótel er með útsýni yfir Funchal-flóa og býður upp á lúxusgistirými í Santa Caterina-garðinum. Það er heilsulind með sundlaugum til að slaka á og spilavíti og diskótek til skemmtunar.

Öll herbergin á Pestana Casino Park Hotel & Casino eru með sérsvölum, setusvæði og LCD-gervihnattasjónvarpi. Mörg gestaherbergi bjóða upp á víðáttumikið útsýni yfir Atlantshafið.

6 matsölustaðir Pestana eru meðal annars Panoramic Restaurant með víðtæku útsýni yfir flóann og sundlaugarsvæðið. Aqua er með útsýni yfir garða hótelsins og spilavíti, en Sunset Restaurant býður upp á fjölbreyttan matseðil og kokkteilbar.
Gestir geta slakað á í inni- eða útisundlaugunum, æft í líkamsræktarstöðinni eða notið einnar af gæðameðferðunum sem í boði eru á Pestana Spa. Hótelið sér um fjölbreytta afþreyingu, þar á meðal gönguferðir og köfun.

Pestana Casino Park er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum og í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Madeira-flugvelli. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,2 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com 

 Verðin

229 990 kr

á mann í tvíbili

100 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 30 manns, 
Endanlegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest, staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com