til Boston
20. otkóber til 23. október 2024

Það má hiklaust nefna hana eina af merkilegri borgum Bandaríkjanna - saga landsins er samtvinnuð Boston á svo margan hátt. 
Falleg stórborg, full af skemmtilegum möguleikum fyrir gesti sína.  

Þessi sjarmerandi hafnarborg er staðsett við Massachusettes flóa á austurströnd Ameríku. Þar settust enskir landnemar að árið 1630, fjöldinn jókst nokkuð ört og úr varð bær, síðan fleiri bæir og svo borg. 
Þetta skýrir þann fjölda mismunandi hverfa sem mynda Boston. Þau voru mörg hver áður fyrr sjálfstæðir bæir, og enn í dag eru íbúar afar stoltir af sínu heimahverfi og nefna það alltaf fyrst, á undan nafni borgarinnar. Á milli staða má svo ferðast  með neðanjarðar-lestarkerfi sem státar af því að vera það elsta í Norður-Ameríku allri. 
Hér er svo mikið af öllu mögulegu að sjá og gera, smakka og drekka að það er erfitt að nefna eitt frekar en annað. Hér að neðan stingum við upp á nokkrum hlutum, við mælum einnig með að verða sér úti um dagblöðin Weekly Dig eða The Phoenix sem finna má ókeypis á hverju götuhorni og lista upp það markverðasta sem í boði er dag hvern. Söfnin eru óteljandi, veitingastaðirnir enn fleiri, og skemmtilegir barir út um allt. Þar á meðal einhver þekktasti bar allra tíma, sjálfur Cheers barinn úr hinni vinsælu þáttaröð. Ekki amalegt að setjast í sætið hans Norm og skella í sig einum ísköldum! 

Hvað er hægt að gera í Boston

Faneuil Hall er skemmtilegur markaður staðsettur í fallegri  byggingu með heilmikla sögu. Nóg að versla, nóg að skoða.
USS Constitution Museum er tilvalin staður fyrir áhugasama um mikilvæga atburði í sögu Norður-Ameríku. 
Dinner Detective Murder Mystery Show! Glæsimáltíð með tvisti, þú nýtur um leið leiksýningar og tekur þátt í að ráða gátuna. Mjög skemmtileg upplifun.
Boston Common and Public Garden er elsti almenningsgarður í Ameríku. Dásamlegur staður! 

Sam Adams er Boston bjórinn! Auðvitað er boðið upp á ferð um verksmiðjunar, Sam Adams Brewery Tour. Og já, frítt smakk er innifalið.
Boston er þekkt fyrir úrval af gæða fiskveitingastöðum, enda hráefnið ferskt í borg sem stendur við hafið. Union Oyster House er góður kostur, einn elsti veitingastaður borgarinnar.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Play, 1 innrituð 20 kg taska  og 8kg  handfarangur sem kemst undir sæti.

Brottför

Brottför sunnudaginn 20. október frá Keflavík kl. 15:50 og lent í Boston kl. 18:00.

Heimför

Heimför miðvikudaginn 23. október frá Boston kl. 19:15 og lent í Keflavík fimmtudaginn 24. október kl. 04:45.

Gisting

3 nætur á fjögurra stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli.

Farastjórn

Sé þess óskað - gegn gjaldi

Hótel

****

Marriot Burlington er með 2 sundlaugar og heilsuklúbb en það er með greiðan aðgang að milliríkjahraðbraut 95 og 25,3 km norðvestur af Boston. Herbergin eru með flatskjá og WiFi gegn aukagjaldi.

Boston Marriot Burlington býður upp á loftkæld herbergi og baðherbergi með rennihurð. Ókeypis Enseo-tækni er í boði í öllum herbergjum og felur í sér aðgang að Netflix, Hulu, Youtube, Pandora og Crackle.

Til afþreyingar geta gestir Marriot Burlington valið á milli líkamsræktarstöðvar og inni- og útisundlauga. Einnig er boðið upp á 14.570 fermetra viðburða- og fundarrými.

Lobby Bar Restaurant er veitingastaður sem býður upp á morgunverð og kvöldverð. Ferskt snarl er einnig í boði daglega á morgnana og á kvöldin.

Minute Man-þjóðgarðurinn er í 12 km fjarlægð frá hótelinu.

Booking gefur 8.5 fyrir staðsetningu og 7,8 í heildareinkun. 

Verðin

 149 990 kr

á mann í tvíbili

75 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

-staðfest verð til og með 20.08.2024-
****

Þetta boutique-hótel býður upp á nýmóðins líkamsrækt, verðlaunamatargerð og glæsileg herbergi með ókeypis Wi-Fi. John Hancock Tower er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.

Hvert herbergi kemur með útsýni yfir Back Bay hverfið. Boðið er upp á baðsloppa, lítinn kæli og flatskjásjónvarp. Lúxus herbergin eru búin mahóní viðarhúsgögnum og kristal lömpum.

Hótel Lenox býður upp á persónulega móttökuþjónustu og viðskiptamiðstöð með sólarhringsopnun.

Gestir geta notið írskrar matargerðar á alvöru Boston írskum pöbb. City-Table veitingastaðurinn býður upp á nútímalega ameríska rétti úr ferskasta hráefni sem völ er á. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.

Lenox er smá spöl frá frægum veitingastöðum og verslunum á Newbury Street. Fenway Park hafnarboltaleikvangurinn er tæpa 2 km frá hótelinu og Northeastern háskólinn er í 15 mínútna göngufjarlægð.

Booking gefur 9.8 fyrir staðsetningu og 9,0 í heildareinkun.

Verðin

209 990 kr

á mann í tvíbili

120 000 kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við 15 manns. Fyrirvari er um flugtímasetningu frá flugfélögum, endanlegt verð liggur fyrir til kynningar og samþykktar þegar að dagsetning ferðar hefur verið ákveðin. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com