til Haarlem
Haarlem er minni útgáfan af Amsterdam Þar er eitthvað fyrir alla, hvort sem þú ert í leit að menningu og sögu, hressandi djammi, eða bara indælli afslöppun í fornfrægri evrópskri borg sem er þekkt fyrir túlípana, bjór og súkkulaði.
Haarlem ótrúlega sjarmeradi borg sem er fræg fyrir blómarækt, og er miðstöð túlipanahéraðsins og hýasinta. Miðbærinn er áhugavert svæði þar sem Grote Markt skipar mikilvægan sess. Það er margt að skoða og margar fornalda byggingar, uma að gera að nýta tímann til að heimsækja helstu kennileiti eins og Kirkju St. Bavos sem er búin orgeli með 5000 pípum, einu stærsta í heimi.
Hér má finna mikið af heillandi hverfum með gömlum byggingum sem tekist hefur einstaklega vel að varðveita, og litagleðin ræður ríkjum. Síkin eru áberandi hluti af staðnum og yfir þau liggja ófáar instagramvænar brýr. Út um alla borg eru krúttleg hof, mikið um fallega liti og faldar perlur.
Ef þú vilt finna eitthvað sniðugt að sjá og gera þegar þú ert á svæðinu, þá er borgin verðlaunuð sem besta borgin til að versla í. Svo eru frábærir veitingastaðir í borginni, skemmtileg brugghús og hægt er hægt að kíkja á Circuit Park Zandvoort (kappaksturs-braut) og Zandvoort ströndina. En ströndin er einungis í 5km frjarlægð. Eða skreppa til Amsterdam sem tekur um 30 mín með lest.
Þarna búa ekki nema 155 þúsund manns, og eru íbúar borgarinnar þekktir fyrir sín vinalegheit og að vera tilbúnir að veita hjálparhönd við hvað sem er! Borgin er í raun ekki ýkja stór, öll helstu kennileiti eru í göngufæri, bara passa sig á öllu hjólandi fólki sem er í meirihluta.
Hvað er hægt að gera í Haarlem
Kíktu inn í Grote of St. Bavokerk kirkjuna, turninn er 78m hár og gnæfir yfir miðbæinn
The Golden Streets
eru 9 litlar götur í miðbænum fullar af dásamlegum búðum, veitinga- og kaffihúsum
Af fjölmörgum brugghúsum borgarinnar þá er Jopenkerk hvað vinsælast með veitingahúsi og hægt að smakka frábæra bjóra
Farðu í bátsferð á Spaarne og njóttu þess að sjá borgina frá öðru sjónarhorni
Het Dolhuys er ekki dúkkuhús, nei safn sálfræðinnar, upplifðu söguna aftur til ársins 1320
Hjól hjól hjól út um allt, líka flottir hjólavegir, leigðu þér hjól og kíktu á túlípanana og ströndina
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug með Icelandair 1 innrituð taska 23 kg og handfarangur.
Brottför
Brottför fimmtudaginn 18.nóv 2021 frá Keflavík til Amsterdam kl. 07:40 og lent kl 11:55
Heimför
Brottför sunnudaginn 21.nóvember 2021 frá Amsterdam til Keflavík kl 13:10 og lent kl. 15:25
Gisting
Þrjár nætur á 4* stjörnu hóteli, Innifalið er morgunverður, wi-fi og borgar-skatturinn
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli upp á hótel, áætlaður aksturstími er 20-25 mín
Farastjórn
Gegn vægu gjaldi 3.700kr á mann er hæg að fá óendanlegan hjálpfúsan fararstjóra frá Tripical.
Svítu-lottó
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppið par sem fær að gista í svítu (Svíta, Jr Svíta, Deluxe herbergi). Nema þið viljið að forstjórinn fái herbergið!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleiri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
****
Amrâth Grand Hotel Frans Hals er fullkomlega staðsett í miðbæ Haarlem, í göngufæri frá öllum ferðamannastöðum. Strendur Zandvoort og Bloemendaal eru báðar í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð.
Rúmgóð herbergin og svíturnar eru með sérstaklega löng rúm og flatskjá með DVD-spilara. Það er ókeypis Wi-Fi Internet.
Veglegt morgunverðarhlaðborð er í boði á hverjum degi og hótelbar er til staðar. Margir veitingastaðir og kaffihús eru í nágrenninu.
Amrâth Grand Hotel Frans Hals er staðsett nálægt dómkirkjunni St. Bavo.u.
Hótelið fær heildareinkunina 8,1 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
108 990 kr
á mann í tvíbili
36 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Carlton Square er í hjarta Haarlem. Það sameinar alþjóðlega töfra með lúxus andrúmslofti og gestrisni. Ókeypis Wi-Fi aðgangur er í boði á öllu hótelinu.
Herbergin eru fallega innréttuð með með nútímalegri aðstöðu. Öll herbergin eru með loftkælingu og te- / kaffiaðstöðu og minibar. Fyrir sumar herbergisgerðir er notkun á minibarnum innifalin í verðinu.
Fágað andrúmsloft og fjölbreyttur matseðill gera veitingastaðinn „Bar & Kitchen Zocher“ að vinsælum stað.
Hótelið er staðsett í sögulega miðbæ Haarlem í 1,8 km fjarlægð frá lestarstöðinni. Schiphol-flugvöllur og miðbær Amsterdam eru í innan við 20 mínútna akstursfjarlægð.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
111 990 kr
á mann í tvíbili
38 000 kr
aukagjald í einbýli