London

Hin eina sanna drottning stórborganna

Allir þekkja London. Allir hafa skoðun á London. Hún er  umtöluð, umdeild, en umfram allt ein sögufrægasta og merkilegasta stórborg síðari alda. Og hún ætti að vera á Bucket listanum þínum.

Það er erfitt að vita hvar maður á að byrja og hvar að enda, þegar hin risavaxna London er annars vegar. Hún er hávær, orkumikil, full af lífi og ólíkum menningarstraumum sem blandast saman í einn magnaðan kokteil.
Það er gott að vera ögn undirbúinn fyrir heimsókn þangað, ákveða hvaða staðir borgarinnar verða fyrir valinu í þetta skipti, því London verður langt frá því fínkemd á stuttum tíma. Vinsælast á meðal ferðamanna er þó miðbærinn, þar sem West End, Soho hverfið, Leicester Square og Covent Garden er að finna, auk þess rennur Thames áin þar nálægt, með hinu vinsæla London Eye hjóli og fjörugri götumenningu á Suðurbakkanum.
Borgin skiptist upp í fjölmörg hverfi sem hvert og eitt er þekkt fyrir sitt eigið nafn og einkenni. Hverfin eru sum hver ansi gömul og nefnd eftir kennileitum sem nú eru hvergi sjáanleg. 
Svo rótgróin er þessi hverfaskipting að hver staður hefur sinn eigin díalekt og heimahverfi fólks þekkist oft á hreimnum í tali þeirra. Frægt dæmi um þetta eru leikarar á borð við Michael Caine sem ólst upp í fátækrahverfinu Hackney og notaði lengi vel sterkan Hackney hreim í tali sínu. Þess má geta að í dag þykir Hackney hverfið mjög hipp og kúl, þar er blómstrandi lista- og menningarlíf, og flottir barir og veitingastaðir á hverju strái.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka í leiguflugi, 1 innrituð taska 15 kg og handfarangur.

Brottför

Brottför 22. október frá Keflavík til Dubrovnik


Heimför

Heimför 26. október frá Dubrovnik til Keflavík 

Gisting

3 nætur á 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Dubrovnik

Farastjórn

2 skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar. 

Hvað er hægt að gera í London

Á West End má finna stórar og flottar leiksýningar sem gengið hafa fyrir fullu húsi í fjölmörg ár
Buckingham höllin er eitthvað sem maður þarf að skoða. Hún er opin til skoðunar á sumrin, en heimsóknarinnar virði þótt ekki sé farið inn
Þú veist að þegar þú kemur aftur heim færðu spurninguna: Fórstu í London Eye?
Hampstead Heath er risastórt grænt svæði í norðurhluta borgarinnar. Falleg náttúra og frábært útsýni yfir borgina
Piccadilly Circus er einn mest ljósmyndaði staður borgarinnar 
Tate Modern listasafnið stendur við Thames ánna og býður alltaf upp á spennandi sýningar

Hótel

Leonardo Royal London Tower Bridge
 ****

Þetta hótel er staðsett í miðbæ London, í 15 mínútna göngufjarlægð frá Tower of London,Tower Hill-neðanjarðarlestarstöðin er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.

Tower Bar and Grill-veitingastaðurinn býður upp á úrval af grillréttum, à la carte-réttum og tapasréttum. Úrval kokkteila og vína er í boði á flotta setustofubarnum.

Fenchurch Street-lestarstöðin er í minna en 10 mínútna göngufjarlægð og Tower Bridge er í 10 mínútna göngufjarlægð. London Bridge er í 10 mínútna göngufjarlægð.

Á meðal tómstundaaðstöðu á hótelinu eru 25 metra sundlaug og líkamsræktaraðstaða. Það er viðskiptamiðstöð á staðnum, og það eru vel búnar viðburðarsvítur sem gestir geta notað.

Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 8,7 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

?? 990 kr

á mann í tvíbili

?? 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið miðast við 100 manns og gildir til 3. mars 2020


Hótel

Jurys Inn London Holborn 
****

Fjögurra stjörnu hótel staðsett í Bloomsbury hverfi Lundúnborgar. Í 5 - 15 mínútna göngu er The British Museum, Holborn Underground, Kins Cross Starion, Covent Garden og Leicester torg svo eitt fátt sé nefnt. Á hótelinu er bar, innisundlaug og spa. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,0 og 9,0 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

??? 990 kr

á mann í tvíbili

?? 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið miðast við 100 manns og gildir til 3. mars 2020