Maiori
Í Maiori er umhverfið svo hrífandi að það minnir helst á skáldskap, enda hafa hinir ýmsu rithöfundar og kvikmyndaleikstjórar nýtt sér stemmingu og heillandi staðhætti Amalfi-strandarinnar í verkum sínum.
Amalfi-ströndin (Costiera Amalfitana) liggur við Miðjarðarhafið, suðaustur af Napólí á Ítalíu. Meðfram henni standa einstakir og vel varðveittir miðaldabæir, og einn þeirra er hinn dásamlegi staður Maiori. Bærinn hefur verið vinsæll ferðamannastaður allt frá tímum Rómverja, með sínar fögru byggingar, fínu strönd, og afslappaða andrúmslofti. Auðvelt er að komast fótgangandi hvar sem er í bænum, og við sjávarsíðuna er yndislegt göngusvæði þar sem finna má veitingastaði og kaffihús sem bjóða upp á úrvalsrétti og drykki ásamt stórbrotnu útsýni yfir blátt og tært Miðjarðarhafið.
Strendur Amalfi eru flestar hverjar stuttar og rofnar af grýttum klettum. Maiori státar hins vegar af lengstu strönd lengjunnar, og þar er sandurinn gylltur og mjúkur. Þá er mjög vinsælt að fara í bátsferð, og skoða frá hafi töfrandi umhverfið allt í kring. Maiori er frægur fyrir framleiðslu á sítrónum sem ræktaðar eru í stórum og smáum raðhúsagörðum meðfram ströndinni. Þær eru m.a. notaðar í rómaðan sítrónulíkjör (sfusato amalfitano), en hjá gestum staðarins er þó vinsælust granita, ískaldur og sítrónusætur eftirréttur, fullkominn á heitum sumardögum.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með innritaðri 20 kg tösku
og handfarangri
Hópur 1
Brottför frá Keflavík 17 september 08:00 - 14:20 eða 18:35 - 01:05
Brottför frá Alicante 20 september 10:30 - 13:10
Hópur 2
Brottför frá Keflavík 18 september 14:00 - 20:35
Brottför frá Alicante 21 september 14:10 - 16:50
Gisting
3 nætur á 4ra stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli
Farastjórn
2 skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar.
Hvað er hægt að gera í Maiori
Norman Tower
er varðturn frá 16. öld og helsta minnismerki bæjarins.
Giardini Palazzo Mezzacapo
er fallegur gosbrunnagarður þar sem stundum er boðið upp á tónleika.
Boðið er upp á klifur í fjöllum kringum bæinn, og hægt að velja bæði auðveldar og þyngri leiðir.
Sanctuary of Santa Maria a Mare
er 13. aldar bygging með athyglisverðri litríkri flísahvelfingu.
Þú getur borðað á Michelin-stjörnustað! Faro di Capo d'Orso
er geggjaður veitingastaður.
Hér er líka hægt að versla. Corso Regina
gatan hefur ýmsar verslanir og skemmtilega vöru.
Hótel
Hotel Bahía Calpe by Pierre & Vacances****
Glæsilegt 4ra stjörnu hótel í miðbæ Altea. Stutt ganga er í miðbæ Calpe og fær hótelið góða dóma fyrir staðsetningu. Ströndin er í 2 mínútna göngu frá hótelinu. Á hótelinu má finna flotta veitingarstað, innisundlaug, sauna, líkamsræktaraðstöðu og heilsulind.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
109 990 kr
á mann í tvíbili
25 000 kr
aukagjald í einbýli