Munchen
Fullkomin heimsókn í fjölbreytta stórborg
Munchen er ekki ósvipuð Berlín í skipulagi, þetta er stór borg með mörgum hverfum sem hvert og eitt hefur sitt eigið aðdráttarafl, sinn eigin sjarma. Hér er því úr mörgu að velja og þú getur ráðið hvernig þú vilt hafa ferðina þína.
Nafn borgarinnar er úr forn-þýsku, og þýðir "Hjá munkunum", þar sem vísað er í klaustur sem fyrr á öldum reis þar sem miðbærinn stendur nú. Munchen er þriðja stærsta borg Þýskalands, og þar búa um ein og hálf milljón manns. Lífsgæði þykja með þeim bestu í Evrópu, ef ekki heiminum öllum. Borgin er miðpunktur menningar og lista, menntunar, vísinda, tækninýjunga og viðskipta á heimsvísu. Sögulegar byggingar, stórir íþróttaviðburðir og hátíðir af ýmsu tagi, þ.á.m. hið árlega Október bjórfestival, trekkir að ferðamenn í miklum mæli, og munkaborgin verður stöðugt vinsælli áfangastaður forvitinna ferðalanga.
Það er gaman að upplifa mismunandi stemmingu borgarhverfanna. Ef rennt er lauslega yfir þau helstu, þá höfum við miðbæinn, Altstadt-Lehel, með elstu byggingunum, og flestum myndavélum á lofti. Þá höfum við Schwabing, sem er trendý og töff, með fullt af flottum kaffihúsum og börum, gallerýum og tískuverslunum. Hverfið Au-Haidhausen
er einna villtast, þar finnurðu líflega klúbba og bari sem opnir eru fram undir morgun. Ef leitað er eftir rólegheitum, göngu í fallegu umhverfi, með viðkomu til dæmis í skemmtilegri ísbúð, er gott að fara í Neuhausen-Nymphenburg og njóta dagsins þar.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með Wizzair, 1 innrituð taska 20 kg og handfarangur.
Brottför
Brottför 2. október frá Keflavík kl. 18:45, lent í Wroclaw kl. 00:35.
Heimkoma
Heimför 5. október frá Wroclaw 16:00, lent í Keflavík 18:05.
Gisting
3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Wroclaw
Farastjórn
1 frábær, skemmtilegur og óendanlega hjálpfús farastjóri.
Hvað er hægt að gera í Munchen
Odeonsplatz er virðulegt torg umkringt glæsibyggingum
New Jewish Center
er flottur og fræðandi staður um menningu og trúarlíf gyðinga
BMW safnið er frábært fyrir bíla- og tækniáhugafólk, og alla aðra reyndar líka
Barokkhöllin Nymphenburg
og hallargarðurinn í kring er dásamlegur staður
Ráðhúsbyggingin Maximilianeum
er ansi stórbrotin
Hofbräuhaus - þekktust og flottust af mörgum flottum bjórhöllum borgarinnar
Hótel
Holiday Inn Munich City Centre****
Þetta reyklausa hótel í München er í aðeins 500 metra fjarlægð frá Deutsches Museum og býður upp á hljóðeinangruð herbergi. Rosenheimer Platz City-lesarstöðin er í 50 metra fjarlægð, aðeins 2 stopp frá Marienplatz.
Holiday Inn Munich City Centre er staðsett í verslunarkjarna, aðeins 250 metrum frá gamla bænum og 50 metrum frá Rosenheimer Platz city lestarstöðinni
Veitingastaðurinn er með rétti frá Bavaría og alþjóðlega sérrétti. Boðið er upp á mismunandi kokteila á nýtískulega barnum Open Lobby Bar, Café & Restaurant Isar³.
Hótelið fær heildareinkunina 8,3 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com
?? 990 kr
á mann í tvíbili
18 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið miðast við ?? manns og gildir til ??. september 2019