Kraká
??
Borgin Kraká er af mörgum talin ein sú fallegasta í Evrópu og situr alla jafna á toppnum yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum.
Kraká stendur við árbakka Vistulu, og sögu hennar má rekja aftur til sjöundu aldar! Fornar sagnir segja frá því hvernig borgin óx og dafnaði eftir frækilegan sigur á miklum dreka sem bjó í helli í nágrenninu og hrelldi og drap íbúa með reglulegum heimsóknum. Hvað sem hæft er í þeim lysingum, er það staðreynd að goðsagnakennt og seiðmagnað andrúmsloft svífur yfir þessari mögnuðu borg. Wawel kastalinn er eitt af stærri nafnspjöldum borgarinnar, sem og gamli bærinn með sínum aldagömlu kirkjum og áhugaverðu söfnum. Þá má ekki gleyma hinu mikla Rynek GÅ‚ówny, sem er hvorki meira né minna en stærsta markaðstorg Evrópu.
Gamli bærinn í Kraká er eitt af friðarsvæðum UNESCO. Það er ekki að ástæðulausu og við mælum hiklaust með skoðunarferð þangað. Þar má finna hundruði veitingastaða og helling af börum og klúbbum.
Íbúafjöldi er 760.000 en hafa ber í huga að um það bil 8 milljónir búa í 100km radíus í kringum borgarmörkin.
Borgin er þekktust fyrir glæsileika sinn, stórbrotna sögu og menningu, en meiri ró er yfir næturlífi hennar. Kraká er fullkomin borg til þess að slaka á, ganga í rólegheitum um götur og hverfi og leyfa skilningarvitunum að draga þig frá hversdagslegu amstri yfir í núið.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug með Wizz air, 1 innrituð taska (20 kg)
og handfarangur (40x30x 20 cm)
Brottför
Brottför frá Keflavík föstudaginn 24. apríl 2020 kl. 18:05. Lent í Kraká kl. 00:15
Heimkoma
Heimför mánudaginn 27. apríl 2020 kl. 14:50 frá Kraká. Lent í Keflavík kl. 17:00
Gisting
3 nætur á 4ra stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rutur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Kraká
Farastjórn
Ef óskað er eftir (gegn vægu gjaldi)
Hvað er hægt að gera í Kraká
Röltu um og skoðaðu Kazimierz gyðingahverfið
Verksmiðja Oskars Schindler er mögnuð
??
Heimsæktu St. Benedikts virkið
Gamli bærinn er, eins og sagt er, algjört möst!
??
Hótel
****
Hið 4 stjörnu Hilton Garden Inn Krakow er með útsýni yfir Wawel-kastalann í Kraká og býður upp á loftkæld herbergi með gervihnattasjónvarpi og te/kaffiaðstöðu. Ókeypis Wi-Fi Internet er á öllu hótelinu.
Allir gestir Hilton Garden Inn Krakow hafa ókeypis aðgang að líkamsræktarstöð hótelsins sem er opin allan sólarhringinn.
Hilton Garden Inn er staðsett rétt við Vistula -ána, í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá aðaltorginu. Kazimierz gyðingahverfið er í göngufæri.
Herbergin á Hilton hótelinu eru mjög rúmgóð, með ísskáp og 32 ”LCD sjónvarpi.
Á hótelinu er veitingastaðurinn Ogród Hiltona, sem framreiðir evrópska sérrétti. Pantry búðin Pavilion, opin allan sólarhringinn, býður upp á mikið úrval drykkja og tilbúna rétti. Ríkulegur morgunverður er borinn fram alla morgna.
Hótelið fær heildareinkunina 8.9 og 8.8 fyrir staðsetningu á Booking.com
Hótelið eru með stóran sal með dagsbirtu þar sem hægt er að hafa árshátíðarkvöld fyrir hópinn, verðin eru frá 11.900kr á mann fyrir fordrykk, 3 rétta kvöldverð og opinn bar.
Hótel
****
Vienna House Andel's Cracow er nútímalegt, vel staðsett og vel búið 4 stjörnu hótel.
Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni á Mavericks Restaurant en þar er hægt að fá rétti í Kaliforníustíl með asískum, mexíkóskum og evrópskum áhrifum. Á kvöldin geta gestir slakað á og fengið sér drykk á barnum Smok.
Herbergin á eru með flatskjá og öryggishólf fyrir fartölvu. Sum eru staðsett á efri hæðum og eru með víðáttumiklu útsýni yfir fallega gamla bæinn.
Vienna House Andel's Cracow er staðsett í hjarta borgarinnar, skammt frá aðallestarstöðinni og Galeria Krakowska, aðalverslunarmiðstöðinni í Kraká.
Hótelið fær heildareinkunina 9.4 og 9.7 fyrir staðsetningu á Booking.com
Hótelið eru með stóran sal með dagsbirtu þar sem hægt er að hafa árshátíðarkvöld fyrir hópinn, verðin eru frá 9.900kr á mann fyrir fordrykk, 4 rétta kvöldverð og opinn bar.
Hótel
****
PURO Krakow Kazimierz er staðsett í hinu líflega hverfi í miðbæ Kraká og býður upp á líkamsræktarstöð og verönd. Þú getur leigt hjól án endurgjalds (þegar veður er gott) og kannað borgina.
Öll herbergin á PURO Krakow Kazimierz eru með skrifborði, sérbaðherbergi með ókeypis snyrtivörum, flatskjásjónvarpi og loftkælingu og sum herbergin bjóða einnig upp á setusvæði. Herbergin eru með ísskáp.
Morgunverðurinn er snæddur á MAK sem er einskonar bakarí þar sem allt er bakað á staðnum. Veitingastaðurinn Halicka er vinsæll, frábær alþjóðlegur matseðill og úrval kokteila.
Hótelið býður upp á gufubað, verönd og garðsvæði.
Verksmiðjusafn Schindlers er 900 metra frá PURO Kraków Kazimierz en Wawel -konunglegi kastalinn er 1,1 km frá gististaðnum.
Hótelið fær heildareinkunina 9.3 og 9.0 fyrir staðsetningu á Booking.com
Hótelið er með fallegan sal sem hentar árshátíðum, verðin eru frá 10.900kr á mann fyrir fordrykk, 4 rétta kvöldverð og opinn bar.
Verðin
125 990 kr
á mann í tvíbili
140 990 kr
á mann í einstaklingsherbergi