Varsjá
Vinsæll áfangastaður í Póllandi
Kraftmikil borg með merka sögu, heillandi mannlíf og menningu. Ekta evrópskur gimsteinn. Þú bara verður að heimsækja Varsjá!
Sjarmi höfuðborgar Póllands felst ekki síst í þeirri einstöku blöndu þess gamla og nýja sem Varsjá býður upp á. hér saman hinum ýmsu byggingarstílum, allt eftir því hvenær í sögunni húsin risu. Fyrri tíma byggingar standa sjarmerandi um alla borg, tignarlegar kirkjur og hallir, en þar á milli rísa nýstárlegir skýjakljúfar til himins. Eftir seinni heimsstyrjöld varð Pólland um árabil á vissan hátt hluti af Sovétríkjunum, og þar ríkti einræðiskenndur stalínkommúnismi allt til ársins 1989. Þetta sést vel sums staðar í Varsjá, þar sem yfirbragð er nokkuð ,,austantjaldslegt“, og minnir á þann kalda tíma sem nú er að baki. Gamli miðbærinn er vinsælasti hluti borgarinnar, en þar má sjá falleg pastellituð hús, kaffi- og veitingastaði, að ógleymdu minnismerkinu af hafmeyjunni,
sem er tákn borgarinnar. Hverfið á sinn stað á Heimsminjaskrá UNESCO. Næstum helmingur svæðis borgarinnar er grænn. Það eru allt að 95 garðar í Varsjá, þar sem Łazienki er efst á listanum. Fyrir þá sem eru að leita að orkumeiri andrúmslofti mælum við með til dæmis hverfum eins og Prag, þar sem finnur skemmtistöðum með lifandi tónlist, töff börum, líflegum klúbbum og tryggingu fyrir eftirminnilegri skemmtun. Fyrir söguáhugamenn er Warsaw Uprising Museum sannlega þess virði að heimsækja. Það er af mörgum talið eitt besta safnið í síðari heimsstyrjöldinni í Evrópu. Með grípandi sýningum sínum býður það upp á svo margt forvitnilegt og fróðlegt að maður gæti auðveldlega eytt deginum þar.
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka í leiguflugi, 1 innrituð taska 15 kg og handfarangur.
Hópur 1
Brottför 15. október frá Keflavík til Varsjá
Heimför 18. október frá Varsjá til Keflavíkur
Fyrir 189 manns
Hópur 2
Brottför 16. október frá Keflavík til Varsjá
Heimför 19. október frá Varsjá til Keflavíkur
Fyrir 189 manns
Gisting
3 nætur á 4 eða 5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Varsjá
Farastjórn
2 skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar.
Hvað er hægt að gera í Varsjá
Hjá Pólverjum er ekki sama vodki og vodki. Farðu í smakkferð og kynntu þér þessa skemmtilegu menningu
Nowy Świat
gatan er fullkominn staður til að eyða peningum, eða setjast með dýrindis kaffibolla og skoða mannlíf borgarinnar
Vertu vitni að töfrandi vatns- og ljósasýningunni í Multimedia Fountain Park, nálægt gamla bænum
Chopin safnið sýnir líf og störf hins mikla tónskálds á flottan hátt
Njóttu kyrrðar Łazienki
konungsgarðsins, þar sem þú getur rölt um fallega garða, hitt páfugla og dáðst að höllinni við vatnið
Neonsafnið býður upp á heillandi sýnishorn af neonskiltum frá kommúnistatíma borgarinnar.
Hótel
Mercure Warszawa Grand****
Mecure Warszawa Grand er fjögurra stjörnu hótel staðsett í 7 mínútna akstri frá gamla bænum. Notaleg og rúmgóð herbergi. Winstone er veitingastaður hótelsins með áherslu á international cuisine. Einnig er líkamstæktaraðstaða og sauna þar sem gestir geta notið sín og slakað á. Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 8,9 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
109 990 kr
á mann í tvíbili
20 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið miðast við 400 manns og gildir til 10. september 2019
Hótel
****
Radisson Blu Sobieski er lúxus, reyklaust hótel í miðbæ Varsjár. Það býður upp á glæsileg herbergi, framúrskarandi matargerð og afþreyingu. Ókeypis Wi-Fi er í boði. Gististaðurinn er með greiðan neðanjarðarlestaraðgang.
Hótelið býður upp á vel loftkæld herbergi með hljóðeinangrun, LCD gervihnattasjónvarpi og minibar. Sérbaðherbergið er með sturtu eða baðkari.
Á hótelinu eru 2 frábærir veitingastaðir, Marysieńka og Trylogia, sem framreiða dýrindis pólska og alþjóðlega rétti. Hótelið er þekkt fyrir "ofur" morgunverðarhlaðborðið sitt sem býður upp á úrval af brauði, ávöxtum, áleggi og heitum réttum, þar á meðal ofnæmis vænum valkostum.
Radisson Blu Sobieski Hotelið býður gestum sínum upp á algerlega nýja vellíðunarupplifun í uppfærðri og fullkomlega endurnýjuðri heilsulind og líkamsræktarstöð með svæði fyrir þolþjálfun og þyngdarþjálfun, auk einkaþjálfunar og heilsulindarmeðferða sé þess óskað.
Warszawa Centralna-lestarstöðin er staðsett í 10 mí göngufæri og gamli bærinn í 20 mín göngufæri.
Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,0 fyrir staðsetningu.
Hótel
****
NYX Hotel Warsaw by Leonardo Hotels er í Wola-hverfinu í Varsjá og býður upp á loftkæld herbergi með flatskjá og gervihnattarásum. Meðal aðstöðu á gististaðnum má nefna veitingastað, ókeypis WiFi hvarvetna og herbergisþjónustu og móttöku allan sólarhringinn. Einkabílastæði eru í boði á staðnum.
Vel útilátinn morgunverður er í boði á hótelinu. Herbergin eru nýtískuleg með útsýni og sérbaðherbergi.
Hótelið er Roof Top bar með verönd. Afþreyingarsvæðið er með billjarðborð fyrir gesti að spila.
Barinn er fallegur og líflegur, býður upp á framandi og hefðbundna drykki.
Veitingastaðurinn Clash býður upp á alþjóðlega rétti í fallegu og líflegu umhverfi.
Meðal áhugaverðra staða í nágrenni við hótelið má nefna Złote Tarasy-verslunarmiðstöðina, Zacheta-listasafnið og grafhýsi óþekkta hermannsins.
Hótelið fær heildareinkunina 9,4 og 9,6 fyrir staðsetningu.
Hótel - Maí & Júní
****
Hilton Warsaw City Hotel býður upp á frábæra gistingu í lifnadi viðskiptahverfi Varsjáborgar, í göngufæri við verslanir, söfn, veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu. Sögulegi gamli bærinn er í 30 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Rondo Ókeypis WiFi er í boði á almenningssvæðum.
Öll herbergin eru með flatskjá. Gestir geta slakað á í glæsilegum herbergjum og svítum og notið útsýnis yfir sjóndeildarhring Varsjár. Sérbaðherbergin eru bæði með baðkari og sturtu. Herbergi með aðgangi að Executive Lounge á staðnum eru með lofthæðarháum gluggum með borgarútsýni. Þessi úrvals setustofa státar af ókeypis morgunverði, veitingum og snarli.
Gestir geta notið sín á Pistaccio Lobby Bar & Lounge eða Meza Restaurant sem býður upp á alþjóðlega og pólska rétti. Á sumrin er hægt að sitja úti á Piazza veröndinni.
Nýja heilsu- og líkamsræktaraðstaðan á hótelinu heitir Holmes Place Premium Club & Spa. Með 3.500m2 rými og klúbburinn státar af 25 metra sundlaug, fullbúinni líkamsræktarstöð og heilsulind með fullri þjónustu.
Menningar- og vísindahöllin, Złote Tarasy verslunarmiðstöðin og aðallestarstöðin í Varsjá eru í innan við 20 mínútna göngufjarlægð, eins og Saski-garðurinn með gröf hins óþekkta hermanns.
Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 8,7 fyrir staðsetningu.
Hótel - Maí
*****
Lúxushótelið Sofitel Warsaw Victoria er staðsett í hjarta Varsjár, innan um sögulega og menningarlega staði höfuðborgarinnar. Það var hannað af Didier Gomez Studio.
Herbergin eru glæsileg og nútímaleg, en þau eru með þægileg Sofitel MyBed-rúm, skrifborð og ókeypis te-/kaffiaðstöðu. Vandaðar snyrtivörur frá Lanvin eru í boði á baðherberginu.
Móttakan er nútímaleg og liggur að veitingastaðnum La Brasserie Moderne, þar sem gestir geta bragðað á unaðslegri franskri og pólskri matargerð eða smakkað á víni, kampavíni og vodka frá svæðinu.
Heimalagaðar afurðir eru bornar fram á morgunverðarhlaðborðinu á Kitchen Gallery. Victoria Lounge er nýtískulegur kokteilbar sem býður upp á fjölbreytt úrval af kokteilum og sterkum drykkjum, lifandi tónlist/dj og sérstakan snarlmatseðil.
Hótelið er með upphitaða sundlaug með speglalofti, gufubað og líkamsræktaraðstöðu sem er opin allan sólarhringinn. Gestir geta einnig farið í ýmiss konar nuddmeðferðir. Ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á hótelinu.
Sofitel Warsaw Victoria er með útsýni yfir Saxon-garðinn og óperuhúsið og er staðsett 200 metrum frá hinni tilkomumiklu forsetahöll og í 400 metra fjarlægð frá konungskastalanum.
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,6 fyrir staðsetningu.
Hótel
Warsaw Marriott Hotel*****
Fimm stjörnu lúxus hótel í hjarta Varsjá með magnað útsýni yfir borgina. Staðsett 400 metra frá Złote Tarasy verslunarmiðstöðina. Á hótelinu er nokkrir barir, meðal annars sport bar og veitingastaðir. Parmizzano´s er vinsæll ítalskur veitingastaður í Varsjá. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, sauna, sundlaug, nuddstofa og spilavíti.
Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótel
Mercure Warszawa Centrum****
Fjögurra stjörnu hótel staðsett í miðbæ Varsjá aðeins örfáum skrefum frá þekktum kennileitum sem dæmi Palace of Culture and Science og Złote Tarasy verslunarmiðstöðina. það er veitingastaður og bar á hótelinu. Einnig er að finna líkamsræktaraðsstöðu, heitur pottur og sauna.
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótel
*****
Radisson Collection Hotel, Warsaw er í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá aðallestarrstöðinni í Varsjá og býður upp á sundlaug. Loftkæld herbergi með te-/kaffiaðstöðu eru í boði. Ókeypis WiFi er til staðar.
Herberginn á Radisson Collection eru rúmgóð og nútímaleg, eru með minibar, öryggishólfi og stóru skrifborði. Stórt og flott baðherbergi í þeim öllum herbergjum.
Radisson Collection Hotel, Warsaw hýsir TAGO Restaurant þar sem morgunverðarhlaðborð er borið fram og THE SPOT Restaurant and Bar. Veitingastaðurinn er opinn allt árið um kring og býður upp á nútímalega matargerð og glæsilega kokkteila. Á sumrin geta gestir snætt og slappað af á útiveröndinni.
Hótelið er staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Złote Tarasy-verslunarmiðstöðinni og Menningar- og vísindahöllinni. Chopin-flugvöllurinn í Varsjá er í einungis 20 mínútna akstursfæri.
Hótelið fær heildareinkunina 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Hótel
****
Þetta 4-stjörnu verðlaunahótel er staðsett miðsvæðis, á móti Menningar- og vísindahöllinni í Varsjá. Polonia Palace Hotel býður upp á rúmgóð, loftkæld herbergi með minibar og hita í baðherbergisgólfinu. Ókeypis WiFi er í boði.
Öll herbergin á Palace eru hljóðeinangruð og glæsilega innréttuð, með öryggishólfi og gervihnattasjónvarpi. Lúxusbaðherbergin eru með hárblásara, baðkar og ókeypis snyrtivörur.
Veitingastaður hótelsins heitir Polonia Restaurant og framreiðir evrópska og pólska matargerð. Gestir geta tekið því rólega á barnum í móttökunni en þar er hægt að fá drykki, hlusta á lifandi tónlist og horfa á íþróttaviðburði í sjónvarpi.
Starfsfólk móttökunnar er tiltækt allan sólarhringinn og getur útvegað þvotta- og strauþjónustu. Gestir eru með ókeypis aðgang að heilsuræktarstöðinni og gufubaðinu. Einnig er boðið upp á nudd.
Allt innan göngufæris frá þessu hoteli, verlunarmiðstöðin, klúbbar, kaffi og veitingahús.
Hótelið fær heildareinkunina 9,3 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Hótel
Novotel Warszawa Centrum*****
Vel staðsett fjögurra stjörnu hótel með magnað útsýni yfir borgina. Staðsett beint á móti Palace of Culture & Science NOV02 er veitingastaður hótelsins og býður uppá international matseðil með gott úrval drykkja. Einnig er að finna líkamsræktaraðstöðu og sauna. Hótelið fær heildareinkunina 8,5 og 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
114 990 kr
á mann í tvíbili
20 000 kr
aukagjald í einbýli
Tilboðið miðast við 400 manns og gildir til 10. september 2019
Hótel
Mercure Warszawa Centrum****
Fjögurra stjörnu hótel staðsett í miðbæ Varsjá aðeins örfáum skrefum frá þekktum kennileitum sem dæmi Palace of Culture and Science og Złote Tarasy verslunarmiðstöðina. það er veitingastaður og bar á hótelinu. Einnig er að finna líkamsræktaraðsstöðu, heitur pottur og sauna.
Hótelið fær heildareinkunn 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótel
Warsaw Marriott Hotel*****
Fimm stjörnu lúxus hótel í hjarta Varsjá með magnað útsýni yfir borgina. Staðsett 400 metra frá Złote Tarasy verslunarmiðstöðina. Á hótelinu er nokkrir barir, meðal annars sport bar og veitingastaðir. Parmizzano´s er vinsæll ítalskur veitingastaður í Varsjá. Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða, sauna, sundlaug, nuddstofa og casino. Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Hótel
PURO Warszawa Centrum****
Fjögurra stjörnu hótel staðsett miðsvæðis í Varsjá. Í göngugæri eru fullt af kennileitum, veitingastaðir og barir. Á hótelinu er veitingastaður og bar. Einnig er að finna líkamsrækartaðstöðu. Á hótelinu er hægt að fá lánuð hjól gjaldfrjálst.
Hótelið fær heildareinkunn 9,5 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
126 990 kr
á mann í tvíbili
26 000 kr
aukagjald í einbýli