TORONTO - RT773
25.-28.apríl 2024

Toronto er hlýleg fjölmenningar stór-borg, þar sem vinalegt kanadískt viðmót mætir þér á hverju götuhorni. Hér upplifirðu hressandi ys og þys, en einnig ró og heillandi náttúrufegurð.

Toronto er fjölmennasta borg Kanada og héraðshöfuðborg Ontario, staðsett á norðvesturströnd Ontario-vatns. Íbúatala er rúmlega 6 milljónir. Toronto er ljúfur fjölmenningarkokteill, þar sem lögð er áhersla á fjölbreytilegt mannlíf og ólíkir menningarstraumar fá að njóta sín. Yfir öllu svífur svo hið þekkta hlýlega og vinalega kanadíska andrúmsloft. Hér líður fólki vel hvaðan sem það kemur. Loonies and toonies! eins og þau segja þarna í Kanada, þegar allt er frábært. Lista- og skemmtanalíf borgarinnar er margrómað, hér er ein af stærstu kvikmyndahátíðum heims haldin árlega, fjöldinn allur af leikhúsum og tónleikastöðum stórum og smáum, og eins og borg af þessari stærðargráðu sæmir er næturlífið ansi fjölskrúðugt og fullt af stuði. Í Toronto má
þó líka finna rólegheit, og fallega áningastaði sem bjóða þér að njótu náttúru og kyrrðar. Til dæmis má mæla með göngu í High Park garðinum, sem er víðfeðm borgarvin með blómstrandi kirsuberjatrjám og annarri gróðursæld. Þá tekur aðeins um 15 mín að sigla með ferju úr miðbænum til Toronto Island þar sem þú getur farið á ströndina, tekið góðan hjólreiðatúr, eða gengið um og notið víðáttumikils útsýnis yfir borgina. Fyrir söguþyrsta má benda á Fort York National Historic Site sem er mögnuð heimild um bardagann í York (1812) þegar heimamenn vörðust árásar Bandaríkjamanna,  og Royal Ontario Museum sem lýsir vel sögu borgarinnar, allt frá frumbyggjum hennar, landnámi hvíta mannsins og þróun í áranna rás.

Hvað er hægt að gera í Toronto

Casa Loma kastalinn er einstök bygging og ein af vinsælli áningastöðum ferðafólks
CN turninn er auðvitað eitt þekktasta kennileitið og ekki úr vegi að kíkja þangað
Glow in the Dark mini golf er ansi vinsælt í Toronto. Getur t.d. upplifað svoleiðis á Putting Edge 
St. Lawrence markaðurinn er einn sá elsti í norðanverðri Ameríku. Mikil upplifun að heimsækja
Distillery District var eitt sinn gríðarstórt viskí-framleiðslu hverfi. Fallegar gamlar byggingar, skemmtilegir veitingastaðir og gallerý  
Barinn Civil Liberties var nýverið kosinn besti barinn í Toronto, annað árið í röð!

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur.

Brottför

Brottför fimmtudaginn 25.apríl klukkan 15.10 og lent klukkan 17:30

Heimför

Heimför sunnudaginn 28.apríl klukkan 18:50 og lent mánudaginn 29.apríl klukkan 04:35

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Madrid 25 - 30 mín

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical

Ferðalottó-Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical 

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótel

One King West Hotel and Residence
****

Þetta 4 stjörnu hótel í miðbæ Toronto var byggt árið 1914 og blandar saman sögulegum sjarma og glæsileika við nútímaþægindi. St. Lawrence Market og Hockey Hall of Fame eru í innan við 10 mínútna göngufjarlægð.

Gistirýmin á þessu svítuhóteli eru innréttuð með ýmsum huggulegum þægindum, þar á meðal örbylgjuofnum, ísskápum og kaffivélum. Þau eru einnig með aðskilin svefn-, borð- og vinnusvæði.

One King West Hotel and Residence er með líkamsræktarstöð á staðnum ásamt veitingastað og bar. Hótelið er einnig í 750 metra fjarlægð frá Roy Thomson Hall.

Hótelið fær heildareinkunina 8,4 á Booking.com og 9,4 í einkunn fyrir staðsetningu.

Verðin

  (vantar útreikninga) kr

á mann í tvíbýli

(vantar útreikninga) kr

aukagjald í einbýli

Hótel

The Novotel Toronto Centre
****

Þetta 4 stjörnu hótel er með innisundlaug, heitum potti og heilsulind og er staðsett í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá Toronto Union Station og Air Canada Centre. Gestir geta notið veitingastaðarins á staðnum og ókeypis WiFi er í boði hvarvetna á gististaðnum.

Stórir gluggar, sjónvarp og minibar eru í öllum herbergjum The Novotel Toronto Centre. Kaffivél, skrifborð og strauaðstaða eru einnig til staðar.

Café Nicole framreiðir alþjóðlegar máltíðir í innilegu umhverfi. Hægt er að njóta kokteila á Stage Door Lounge og herbergisþjónusta er í boði allan tímann.

Líkamsræktarstöð er opin öllum gestum Toronto Novotel. Sjálfsalar og þvottaaðstaða eru einnig í boði.

Hótelið er í 4 mínútna göngufjarlægð frá Hockey Hall of Fame. CN Tower er síðan í innan við 1,5 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,1 á Booking.com og 9,3 í einkunn fyrir staðsetningu.

Verðin

  (vantar útreikninga) kr

á mann í tvíbýli

(vantar útreikninga) kr

aukagjald í einbýli

Hótel

The Westin Harbour Castle, Toronto
****

Þetta 4 stjörnu hótel býður upp á vel útbúin, lúxus gistirými með völdum herbergjum sem státa af útsýni yfir Lake Ontario og stórbrotinn sjóndeildarhring Toronto. Á hótelinu er innisundlaug, tennisvöllur á þakinu og líkamsræktarstöð.

Rúmgóðu, þægilegu herbergin á Westin Harbour Castle Toronto eru með hið einstaka Westin Heavenly rúm og fjölda glæsilegra nútímaþæginda og aðstöðu sem veitir hámark lúxus. Hótelið býður upp á ókeypis Wi-Fi Internet á almenningssvæðum gististaðarins.

Westin Harbour Castle Toronto er í innan við 7 mínútna göngufjarlægð frá Harbourfront Centre og Scotiabank Arena. Hið líflega Toronto Eaton Centre, fullt af verslunum, er í 1,6 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 7,8 á Booking.com og 9,2 í einkunn fyrir staðsetningu.

Verðin

  (vantar útreikninga) kr

á mann í tvíbýli

(vantar útreikninga) kr

aukagjald í einbýli

Verðin miðast við minnst 140 manns, hótel og flug hafa ekki verið tekin frá og mun endanlegt verð liggja fyrir þegar búið er að velja dagsetningu og hægt er að bóka hópinn.


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8900
GSM. 633 3313