Sitges

Fjölbreytileikanum fagnað í suðrænni paradís 

Aðeins í 35 km fjarlægð, suð-vestur af Barcelona, stendur hin líflega Sitges, með sínum girnilegu ströndum, eldheitu næturlífi og frábærum festivölum.  Yndislegur staður!

Í þessum dásemdar smábæ er fjölbreytileikanum fagnað með dansi og tónlist. Íbúar leggja stolt sitt og metnað í að bjóða alla hjartanlega velkomna, hvaðan úr heiminum sem fólk kemur eða hver sem kynhneigð þess er. Hér allir eru vinir og áhyggjum og leiðindum er ekki hleypt inn á svæðið.
Litlar þröngar göturnar eru fullar af litlum búðum, veitingastöðum og börum þar sem auðveldlega má finna eitthvað við sitt hæfi, milli þess sem legið er á einni af 17 ströndum sem boðið er upp á.
Sitges er stundum nefnd festivalabærinn. Allt árið um kring eru einhverjar hátíðir í gangi. Þekktast er líklega Sitges Carnival, þar sem dans, skrautlegir búningar og sjóðheit suðræn stemming taka öll völd. Hér er líka árlega haldin alþjóðleg kvikmyndahátíð, kappaksturskeppnir, stórtónleikar, leiklistarhátíðir, ásamt ýmis konar minni hátíðum og listasýningum. Næturlífið er einstaklega fjörugt og gleðin óstöðvandi allt fram undir morgun.  

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka í leiguflugi, 1 innrituð taska 15 kg og handfarangur.

Brottför

Brottför 23. apríl frá Keflavík kl. 09:00, lent í Gdansk kl. 14:30

Heimkoma

Heimför 26. apríl frá Gdansk 16:30, lent í Keflavík 18:00. 

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í GDansk

Farastjórn

1 frábær, skemmtilegur og óendanlega hjálpfús farastjóri.

Hvað er hægt að gera í Sitges

Saga bæjarins er merkileg og fullt af gönguferðum með leiðsögn í boði
17. aldar kirkja heilags Bartomeu stendur við ströndina og gaman að skoða
Vínsmökkunar hjólreiðatúr til vínbænda í næsta nágrenni
Barcelona er skammt frá og auðvelt að skella sér í dagsferð þangað með lest
Liggja og slaka og tana og njóta
Gönguferð um bæinn, borða, drekka, versla, elska

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 2 heppin pör sem fá óvæntan glaðing frá Tripical

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 50 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni. Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.  
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Skoða skemmtitékka

Hótel

ME Sitges Terramar
***** 

ME Sitges Terramar er strandhótel, staðsett á rólegu svæði í Sitges, við hliðina á Terramar-görðunum. Hótelið býður upp á einkastrandklúbb, útisundlaug með sólstofu og loftkæld herbergi með sérsvölum.

Herbergin eru með flatskjá, ókeypis WiFi og Nespresso-kaffivél. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi með baðsloppum, inniskóm, ókeypis Apivita-snyrtivörum og hárþurrku.

Ýmsir matsölustaðir eru í boði, svo sem Beso Sitges sem býður upp á matargerð frá Baskalandi og Miðjarðarhafsmatargerð og útiverönd, og Pool bites, sem býður upp á heilsusamlega matargerð og verönd með sjávarútsýni. Á hótelinu eru einnig 2 barir, Radio Rooftop Bar sem býður upp á borgarútsýni og Bermuteria Bar sem staðsettur er á ströndinni.

Á staðnum eru einnig líkamsræktar- og vellíðunaraðstaða. 

Heildareinkunn 8,7 og 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

125 990 kr

á mann í tvíbili

20 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Calipolis er staðsett miðsvæðis í Sitges og við ströndina. Það býður upp á sólarhringsmóttöku, útisundlaug, líkamsræktarstöð, herbergi sem eru með loftkælingu og ókeypis WiFi.
Herbergin á Calipolis eru glæsileg og þau státa af flatskjá og sérbaðherbergi með hárþurrku. 
Boðið er upp á ókeypis afnot af sundlaugarhandklæðum.
Veitingastaður hótelsins, Infinity Restaurant, býður upp á Miðjarðarhafsrétti við hliðina á sundlauginni. 
Það er einnig bar til staðar og sumarverönd með útsýni yfir sjóinn og göngusvæðið.
Hægt er að leigja hjól í móttökunni.

Heildareinkunn 8,4 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com 

Verðin

125 990 kr

á mann í tvíbili

20 000 kr

aukagjald í einbýli

Hótel

****

Melia Sitges er staðsett á rólegu svæði í Sitges, í aðeins 3 mínútna göngufjarlægð frá Balmins- og Aiguadolç-ströndunum. Hótelið er með stílhreinum garði, útisundlaug og veitingastað með verönd.
Meliá Sitges er í 5 mínútna göngufjarlægð frá Aiguadolç-smábátahöfninni og í 15 mínútna göngufjarlægð frá líflega miðbænum. Lestarstöðin er í 20 mínútna göngufjarlægð en hún býður upp á tengingar við miðbæinn á aðeins 40 mínútum.
Öll herbergin á Meliá eru með nútímalegum innréttingum í minimalíksum stíl og loftkælingu. Öll eru með koddaúrval og flatskjá með gervihnattarásum.
Veitingastaðurinn Saffron Bistrot framreiðir Miðjarðarhafsrétti. Það er einnig til staðar glæsilegur kokkteilbar með nútímalegum sætum í garðinum.

Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 8,2 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

119 990 kr

á mann í tvíbili

18 000 kr

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 45 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel.  


Arna Rut Kristinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 663 3313

Netfang: arna@tripical.com