Sjóvá til Altea

Á milli tveggja mjög vinsælla strandstaða, Benedorm og Calpe á Spáni, stend ur afar aðlaðandi bær, Altea. Hann býður upp á meiri ró og minna stress en hjá nágrönnunum. Í Altea færðu að upplifa hið fullkomna frí.  

Gamli bærinn í Altea (El Fornet)  
einkennist af skemmtilegum þröngum götum og stígum, með kalkhvíta húsveggi á báðar hliðar. Hér og þar glittir svo í fagurbláan hafflötin fyrir neðan bæinn, og allir liggja stígarnir þangað á endanum, að hinni fallegu Casa Blanca strönd. Í gamla bænum er margt að sjá og skoða, og ber fyrst að nefna stolt staðarins, La Mare de Déu del Consol, sem er aldagömul kirkja, auðþekkjanleg á bláu og hvítu skrautþakinu. 
Strendurnar við Altea eru malarstrendur, en þótt sandurinn sé ekki sallandi fínn eru þetta afar þægilegir sólbaðsstaðir, auk þess sem sjórinn er tandurhreinn og lokkandi. Hér er ólíkt minni traffík og áreiti en á hinum hefðbundnari sólarströndum. Það helsta sem þarf að varast er að sofna ekki sólarvarnarlaus! 
Spölkorn frá gamla miðbænum, og ofar í hlíðinni er annað hverfi sem vert er að benda á, Altea la Vella. Íbúar þar, flestir bornir og barnfæddir á staðnum, þykja einstaklega vinalegir og bjóða upp á sanna Altea rétti og drykki.

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með innritaðri 20 kg tösku og handfarangri

Hópur 1 

Brottför frá Keflavík 17 september  08:00 - 14:20 eða 18:35 - 01:05
Brottför frá Alicante 20 september 10:30 - 13:10

Hópur 2

Brottför frá Keflavík 18 september 14:00 - 20:35
Brottför frá Alicante 21 september 14:10 - 16:50

Gisting

3 nætur á 4ra eða 5 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Altea

Farastjórn

2 skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar. 

Hvað er hægt að gera í Altea

Í Altea la Vella hverfinu er önnur afar falleg kirkja, Kirkja hinnar heilögu Önu (Santa Ana)
Á þriðjudögum opna tveir spennandi götumarkaðir í Altea með alls kyns góðgæti og skemmtilegu glingri 
Ef gengið er upp hlíðarnar fyrir ofan bæinn, fær maður það  launað með frábæru útsýni um næstu héruð og nágrenni
Skelltu þér í siglingu meðfram ströndum Altea, syntu í svalandi sjónum og njóttu frábærra veitinga um borð

Jeppaferð að hinum einstöku fossum Fonts de l'Algar, er ógleymanleg upplifun
Passeo Marítimo er stórskemmtileg gönguleið með fram sjónum

Hótel

 SH Villa Gadea
*****

Fimm stjörnu hótel staðsett við ströndina með öllum þeim þægindum sem fimm stjörnu hótel bjóða upp á.  Á hótelinu eru 4 veitingastaðir og barir sem bjóða upp á fjölbreytta matseld frá öllum hornum heimsinns. Einnig er flott spa, líkamsræktaraðstaða, stórar útisundlaugar og fallegt svæði sem hægt er að ganga um. Hótelið fær mjög góða dóma fyrir fagmannlega þjónustu, stór herbergi og góða aðstöðu. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,9 og 8,6 fyrir staðsetningu á booking.com 


Verðin

116 990 kr

á mann í tvíbýli

25 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið miðast við 190 manns og gildir til 1. nóvember 2019


Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá frítt með í ferðina með að ýta á hnapinn hér fyrir neðan.

Kristi Jo Kristinsson 

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8900
GSM. 899-6263