
til Stokkhólms
27.04.-29.04 & 28.04.-30.04.2023
Er ekki kominn tími til að heilsa upp á sænsku náfrændur okkar og skoða þeirra skemm-tilegu höfuðborg. Slík heimsókn mun koma þér skemmtilega á óvart. Það er meira í Stokkhólmi en bara kjötbollur og kartöflu-mús!
Fegurð Stokkhólms er að hluta til komin frá því að hún dreifist milli 14 eyja sem eru samtengdar með myndrænum brúm, borgin er oft kölluð Feneyjar norðursins. Svíþjóð er næstum samheiti fyrir nýsköpun og hönnun (þ.e. meira en bara Ikea-vörur) og Svíar er með gott auga fyrir fegurð.
Að kanna fjölbreytileika hverfanna er einstaklega gaman. Helsta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn er Gamla Stan (gamli bærinn) sem hefur verið hjarta bæjarins frá miðöldum. Svæðið er sívinsælt og lifandi og að sjá hellulögð og mjó strætin, regnbogalituðu húsin og falleg torgin er algjörlega heimsóknarinnar virði.
Verslanir við Designtorget eru stútfullar af verkum eftir nýja hönnuði og selja skemmtilegar og flottar skandinavískar vörur á góðu verði.
Svíar eru matgæðingar og má finna fullt af skemmtilegum matarvögnum og ba karí af gamla skólanum, óhefluð kaffihús en í borginni blómstrar líka nýnorræn matargerð og Michelin-stjörnuveitingastaðir bíða eftir heimsókn. Í Stokkhólm eru einnig skórkostlegar mathallir og markaðir til að ráfa um, og einn sá besti - Saluhall - er í hinu fína Östermalm-hverfi.
Stokkhólmur er sannkallað augnayndi.
Hvað er hægt að gera í Stokkhólmi
Abba safnið er alveg þess virði að skoða ef ekki þá er Vasasafnið eitthvað sem allir ættu að skoða.
Gamla Stan, gamli miðaldarbærinn sem er einn fallegasti hluti borgarinnar. Fullur af kaffihúsum og verslunum.
Farðu í göngutúr um Stortoget torgið og skoðaðu frægustu rauðu og gulu hús borgarinnar. Hér er einnig safnið tileinkað Nóbelsverðlaunahöfunum.
Dómkirkjan Storkyrkan og þýðir frábær kirkja. Það er elsta musteri Stokkhólms frá 1279. Krýningar, konungleg brúðkaup og svo fr.....
Það er skemmtilegt að fara í bátsferð og sigla um eyjarnar, um Feneyjar norðursins!
Drottningholm konungshöllin er ótrúlega falleg og er á alheimsminjaskrá UNESCO
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Icelandair, 1 innritaðri 23 kg tösku
og handfarangur
Brottför
Hópur 1 (120 manns): Brottför fimmtudaginn 27.apríl frá Keflavík kl. 07:35, lent í Stokkhólmi kl. 12:45
Hópur 2 (150 manns): Brottför föstudaginn 28.apríl frá Keflavík kl. 07:35, lent í Stokkhólmi kl. 12:45
Heimför
Hópur 1 (120 manns):
Heimför laugardaginn 29.apríl frá Stokkhólmi kl. 13:55 lent í Keflavík kl. 15:10
Hópur 2 (150 manns): Heimför sunnudaginn 30.apríl frá Stokkhólmi kl. 22:35 lent í Keflavík kl. 23:50
Gisting
2 nætur á 4 stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Stokkhólmi
Farastjórn
Þrír skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar
Svítu-lottó
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 3 heppna einstaklinga sem fá fría uppfærslu
á herberginu sínu og gistir því í betra herbergi.(Svíta, Jr Svíta, Deluxe herbergi). Nema þið viljið að forstjórinn fái herbergið!
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Þar sem hópurinn ykkar er um 300 manns fáið þið að velja 3 skemmiatriði.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
****
Hótelið er staðsett miðsvæðis í Vasastan-hverfinu í Stokkhólmi og í 5 mínútna göngufjarlægð frá St. Eriksplan-neðanjarðarlestarstöðinni. Það býður upp á ókeypis WiFi og breskt veitingahús og krá á staðnum.
Herbergin á Elite Palace Hotel eru nútímaleg og eru öll með kapalsjónvarp, minibar, skrifborð og setusvæði.
Á staðnum er kráin Bishop´s Arms og þar er boðið upp á à la carte hádegis- og kvöldverðarmatseðil með alþjóðlegum réttum ásamt fjölbreyttu úrvali af bjór og viskí. Hið vinsæla morgunverðarhlaðborð Elite Palace er borið fram í aðskildum matsal.
Nuddmeðferðir eru í boði á staðnum. Gestum Elite Palace stendur til boða ókeypis aðgangur að líkamsræktarstöð á staðnum.
Á sunnudögum er morgunverður framreiddur til klukkan 12:00 og útritun stendur yfir til 18:00 nema á háannatíma.
Starfsfólk hótelsins getur mælt með mörgum veitingastöðum og áhugaverðum stöðum í nágrenninu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 8,1 fyrir staðsetningu á booking.com
Árshátíðarkvöldverðir, hótelið býður upp á fallega sali þar sem hægt er að vera með kvöldverði. Salirnir leigjast með/án tæknibúnaðar Hægt er að fá 3-4 rétta kvöldverði frá 9.500, léttur drykkjarpakki með kvöldverðinum frá 4.500kr (1/2 fl víni, gos, vatn og kaffi.
Verðin
109 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
****
Downtown Camper by Scandic er staðsett í miðbæ Stokkhólms, það er aðeins í 8 mínútna göngufjarlægt frá Stockholm Central Station lestarstöðinni.
Inn á öllum herbergjum má finna sjónvarp, ísskáp og frítt Wifi.
Inn á hótelinu eru veitingarstaðir og barir. Einnig má finna saunu, gym og sundlaug á hótelinu.
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com
Verðin
129 990 kr
á mann í tvíbýli
50 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin miðast við 300 manns og gengi dagsins.
Tilboðið gildir til 20.09.2022