Oddfellowstúkan BALDURTil Riga 20.09.-25.09.2023
Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nýju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.
Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dýpra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Riga er mikil dekurborg, þekkt fyrir að umvefja þá sem sækja heilsulyndir og snyrtistofur borgarinnar í slökun og andlitsböðum, nuddi og notalegheitum á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar að ógleymdri ESPA heilsulindinni á hótelinu.
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.
Brottför - miðvikudaginn 20.09.2023Vinsamlega uppfærið þessa síðu reglulega þar sem hún er lifandi og upplýsingar geta breyst.
Flug
Flug fram og til baka með Air Baltic,
1 innrituð taska 23 kg og handfarangur
Flugtímar - 20.09.2023
Brottför frá Keflavík miðvikudaginn
20. sept 2023 kl. 12:25
Áætluð lending í Riga er kl.19:05
Rúta á flugvellinum
Fararstjóri eru með ykkur í fluginu, vinsamlega fylgið þeim í rúturnar eftir töskuafhendingu.
Akstur til Riga tekur um 20-30 mínútur.
Gisting
Radisson Blu Latvija Conference & Spa **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
Morgunverður er alla daga frá kl 06:30 - 10:30 og til kl 11:00 um helgar.
Sjá neðar nánar um hótelið.
Tékk inn - tékk út
Tékk inn á hótelinu mun ganga hratt fyrir sig þar sem þið hafið útvegað okkur vegabréfsnúmerin ykkar.
Tékk út fyrir kl 7:30 á mánudeginum, vinsamlegast gerið upp herbergin ykkar fyrir brottför til að spara tíma. Best að gera kvöldinu áður.
Tíminn í RIGA + 3
ATH tímamismunur milli Íslands og Lettlands eru +3 klukkustundir, t
Farastjóri - Óli Gísli

Fararstjóri ásamt ferðanefnd
+3548228283 -
Hótelið
****s: +371 67 772 222
Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum.
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.
Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 09.00 - 01:00 en eldhúsið til 23:00.
Á 26.hæð er Skyline barinn
sem er opinn frá kl 15:00-02:00 og laugardögum frá kl 12:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar. Í kjallara Hótelsins er svo skemmtistaður sem að er opinn fram á rauða nótt. Það er einnig Casino á hótelinu, ATH að það þarf að skrá sig sérstaklega inn í Casinoið og hafa
með sér vegabréf.
Veitingastaðurinn Esplanade
sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin til 22:30. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir alla.
Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.
Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.
Gamli bærinn gönguferð - Fimmtudag kl 10:00-14:00.
Leiðsögumaðurinn okkur mun leiða okkur um götur gamla bæjar Riga þar sem við kynnumst mikilvægustu menningar og sögulegum hápuntum.
Hittumst í lobbyinu 15 mín áður.
Dagsferð út fyrir Riga og skoðum Jurmala og fleira skemmtilegt - 10:00-17:00
Leiðsögumaðurinn fer með okkur í ferðina. Hádegisverður á leiðinni.
Nánari lýsing síðar
Heimför mánudaginn 25.09.2023
Hittingur í Lobbý - 7:45
Hittingur í móttökunni og check out, rútan leggur af stað 7:45 upp á flugvöll.
Muna að tékka sig út af hótelinu tímanlega, helst gera upp reikninga, ef eitthvað hefur verið skráð á herbergið, kvöldinu áður. Best að gera það kvöldinu áður ef fólk getur.
Flug - 25.09.2023
Heimför mánudaginn 19.03 kl 10:45 og
lent í Keflavík 11:40
Flug
Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg - 55x40x23cm)
Hvað er hægt að gera í Riga
Art Nouveau safnið
er ansi magnað
Smakkaðu Black Balsam drykkinn
Skelltu þér í andlitsbað eða nudd
Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla
Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Riga er rík af frábærum veitingastöðum, ferskum og góðum mat.
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús, gatan Dzirnauvu iela er full af veitingastöðum, sem og eru eðal staðir á Antonijas iela götunni.
Mælum með Vincents / Chefs Corner / Barents / Tails
og Steiku Haoss - Einn þjóðlegur og öðruvísi Aragats og svo er líka Rivera sem er miðlungs dýr en vel þess virði, og síðast en ekki síst Japanski
COD sem er einn af okkar uppáhalds.
VIÐ MÆLUM MEÐ AÐ FÓLK PANTI SÉR BORÐ Á VEITINGASTÖÐUM ÁÐUR EN FARIÐ ER ÚT. ATH AÐ EF HÓPUR ER FLEIRI EN 10 MANNS ÞÁ ÞARF OFTAST AÐ PANTA HÓPAMATSEÐIL.
Lido staðirnir, ódýrir og nokkrir í borginni.
Michelin mælir með nokkrum sjá HÉR
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, McDonalds og Burger King.
Hjól og Rafskutlur
Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt.
Helstu rafskutluleigurnar eru BOLT, RIDE og SKOK
Skotsvæði - kemur á óvart
Hefur þig alltaf langað að prufa að skjóta úr skammbyssu eða jafnvel Ak-47 vélbyssu. Í Riga er mikið úrval af góðum skotsvæðum sem að taka á móti hópum í skemmtilegt hópefli. Mikils öryggis er gætt og þjálfaðir kennarar eru með hverjum hóp. Takmarkaður fjöldi í hverjum hóp.
https://rigashootingrange.com/index.html
Neyðarnúmer í Riga
112 er neyðarnúmerið í Lettlandi
Klúbbar & barir í nágrenninu
Daiquiri Riga - theater bar - Vieta wine bar.
Coyote Fly - First - næturklúbbarnir eru flottir
Riga er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.
Samgöngur
Í Riga er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn eða strætó. Það er ekki Uber en það er Bolt.MÆLUM MEÐ AÐ FÓLK HLAÐI NIÐUR APPINU
Hlaupahjólin eru út um allt og er ódýr ferðamáti.
Strætó-arnir eru skemmtilegir og auðveldir, annars er NÁNAST allt í göngufæri.
Skemmtilegt að gera
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Riga, kíktu á þessa síðu: https://www.latvia.travel/en/city/riga-8
Tungumála frasar
Takk! – Paldies
Einn bjór takk! - viens alus, paldies
Hæ!- Sveiki
Afsakið! - atvainojos
Please! - lūdzu
Reikninginn, takk! - Lūdzu, izsniedziet rēķinu
Talar þú ensku? - vai tu runā angliski
Verð hugmyndir € = ISK
Gengið er um 154,3 kr vs 1€
Bjór 0,5l 4€ - 617 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 460 kr.
Gosdrykkur 0,33l - 1,5€ - 230 kr.
Vatn 0,33l - 1,3 € - 190 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 40€ = 6.100 kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í sept
Haustið er að detta inn, en gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu plús gráður þá er getur verið kalt á kvöldin
Skoðið veðurspár nokkrum dögum fyrir brottför t.d. á yr.no