Skarðshlíðarskóli til Boston23. maí 202228. maí 2022
Það má hiklaust nefna hana eina af merkilegri borgum Bandaríkjanna - saga landsins er samtvinnuð Boston á svo margan hátt. Falleg stórborg, full af skemmtilegum möguleikum fyrir gesti sína.
Þessi sjarmerandi hafnarborg er staðsett við Massachusettes flóa á austurströnd Ameríku. Þar settust enskir landnemar að árið 1630, fjöldinn jókst nokkuð ört og úr varð bær, síðan fleiri bæir og svo borg.
Þetta skýrir þann fjölda mismunandi hverfa sem mynda Boston. Þau voru mörg hver áður fyrr sjálfstæðir bæir, og enn í dag eru íbúar afar stoltir af sínu heimahverfi og nefna það alltaf fyrst, á undan nafni borgarinnar. Á milli staða má svo ferðast með neðanjarðar-lestarkerfi sem státar af því að vera það elsta í Norður-Ameríku allri.
Hér er svo mikið af öllu mögulegu að sjá og gera, smakka og drekka að það er erfitt að nefna eitt frekar en annað. Hér að neðan stingum við upp á nokkrum hlutum, við mælum einnig með að verða sér úti um dagblöðin Weekly Dig eða The Phoenix sem finna má ókeypis á hverju götuhorni og lista upp það markverðasta sem í boði er dag hvern. Söfnin eru óteljandi, veitingastaðirnir enn fleiri, og skemmtilegir barir út um allt. Þar á meðal einhver þekktasti bar allra tíma, sjálfur Cheers
barinn úr hinni vinsælu þáttaröð. Ekki amalegt að setjast í sætið hans Norm og skella í sig einum ísköldum!
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Beint flug með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska
og handfarangur
Brottför
Brottför laugardaginn 23. maí
frá Keflavík kl. 09:50
lent í Boston kl. 11:25
Heimför
Heimför laugardaginn 28. maí
frá Boston kl. 23:15
lent í Keflavík sunnudaginn
29. maí kl. 08:55
Gisting
Fimm nætur á fjögurra stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli og í skólaheimsóknir.
Farastjórn
Skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar.
Hvað er hægt að gera í Boston
Faneuil Hall
er skemmtilegur markaður staðsettur í fallegri byggingu með heilmikla sögu. Nóg að versla, nóg að skoða.
USS Constitution Museum er tilvalin staður fyrir áhugasama um mikilvæga atburði í sögu Norður-Ameríku.
Dinner Detective Murder Mystery Show!
Glæsimáltíð með tvisti, þú nýtur um leið leiksýningar og tekur þátt í að ráða gátuna. Mjög skemmtileg upplifun.
Boston Common and Public Garden
er elsti almenningsgarður í Ameríku. Dásamlegur staður!
Sam Adams er Boston bjórinn! Auðvitað er boðið upp á ferð um verksmiðjunar, Sam Adams Brewery Tour. Og já, frítt smakk er innifalið.
Boston er þekkt fyrir úrval af gæða fiskveitingastöðum, enda hráefnið ferskt í borg sem stendur við hafið. Union Oyster House
er góður kostur, einn elsti veitingastaður borgarinnar.
Hótel
Haytt Regency Boston****
Hyatt Regency Boston er staðsett í 5 mínútna göngufjarlægð frá Boston Common, einum elsta almenningsgarði í USA. Þetta nútímalega hótel er aðeins steinsnar frá miðbæ Boston.
Á herbergjunum er kaffivél, flatskjár með kapalrásum og Bluetooth hátalari með vekjaraklukku. Hótelið býður upp á ókeypis WiFi. Á baðherbergjunum eru hárþurrka og ókeypis Pharmacopia snyrtivörur.
Gestir Hyatt Regency Boston hafa aðgang að líkamsræktarstöð en hótelið býður einnig upp á herbergisþjónustu og sólarhringsmóttöku.
Veitingastaðurinn Avenue One býður upp á morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Morgunverður er ekki innifalinn í verði hér fyrir neðan.
Fenway Park, heimavöllur Boston Red Sox hafnaboltaliðsins, er í 21 mínútna akstursfjarlægð. Green rail line á Boylston lestarstöðinni er í 5 mínútna göngufjarlægð.
Booking gefur 9.2 fyrir staðsetningu og 8,5 í heildareinkun.
Verðin
255 990 kr
á mann í tvíbili
110 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Lenox Hotel Downtown Boston****
Þetta boutique-hótel býður upp á nýmóðins líkamsrækt, verðlaunamatargerð og glæsileg herbergi með ókeypis Wi-Fi. John Hancock Tower er í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð.
Hvert herbergi hefur útsýni yfir Back Bay hverfið. Boðið er upp á baðsloppa, lítinn kæli og flatskjá. Lúxus herbergin eru búin mahóní viðarhúsgögnum og kristal lömpum.
Hótel Lenox býður upp á persónulega þjónustu og miðstöð fyrir viðskiptavini sem er opin allan sólarhringinn.
Gestir geta notið þriggja veitingastaða hótelsins. City-Table, Sólás og City bar bjóða upp á nútímalega rétti úr ferskasta hráefni sem völ er á. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Ekki langt frá Lenox eru þekktir veitingastaðir og verslanir á Newbury Street. Fenway Park hafnarboltaleikvangurinn er tæpa 2 km frá hótelinu og Northeastern háskólinn er í 15 mínútna göngufjarlægð.
Booking gefur þessu hóteli virkilega góða einkunn fyrir staðsetningu eða 9,8. Í heildareinkun fær hótelið 9,2.
Verðin
279 990 kr
á mann í tvíbili
120 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Boston Marriott Copley Place****
Þetta hótel er staðsett í hinu sögufræga Back Bay hverfi í Boston og býður upp á veitingastað á staðnum auk veglegs viðburðarýmis.
Boston Marriott Copley Place er með nýstárlega líkamsræktarstöð. Eftir sundsprett í innisundlauginni geta gestir notið amerískrar matargerðar á sportbarnum og veitingastaðnum á hótelinu.
Áhugaverðir staðir eins og Trinity Church og Boston Common eru aðeins nokkrar mínútur frá Copley Place Boston Marriott. Gestir geta verslað í Copley Place verslunarmiðstöðinni í nágrenninu eða skoðað hafnaboltaleik í Fenway Park.
Booking gefur Boston Marriott Copley Place 9.3 í einkunn fyrir staðsetningu og 8,6 í heildareinkun,
Verðin
289 990 kr
á mann í tvíbili
130 000 kr
aukagjald í einbýli
Hótel
Homewood Suites By Hilton Boston at the Seaport****
Homewood Suites by Hilton Boston Seaport er staðsett í Boston, 1,6 km frá M Street Beach, og býður upp á gistirými með sameiginlegri setustofu og einkabílastæði. Gististaðurinn er 600 metra frá Boston Convention Exhibitors Center, 2,1 km frá Custom House og 2,1 km frá Freedom Trail. Hótelið er með innisundlaug, líkamsræktarstöð og móttöku allan sólahringinn.
Gestir hótelsins geta notið amerísks morgunverðar.
Gestir geta nýtt sér viðskiptamiðstöðina eða fengið sér eitthvað á snarlbarnum.
Faneuil Hall er 2,2 km frá Homewood Suites by Hilton Boston en Old State House er í 2,2 km fjarlægð. Næsti flugvöllur er Logan -flugvöllurinn, 3 km frá gististaðnum.
Booking.com gefur 8,2 í einkunn fyrir staðsetningu en 8,7 í heildareinkun.
Verðin
229 990 kr
á mann í tvíbili
100 000 kr
aukagjald í einbýli
Drög að dagskrá*
Mánudagur 23. maí 2022
Komudagur
Kl. 09:50 Brottför frá Keflavík
Kl. 11:25 Lent í Boston
Kl. 11:25 Rútur að hóteli og innritun
FRJÁLS TÍMI
Þriðjudagur 24. maí 2022
NÁMSKEIÐSDAGUR
Cast - Center For Applied Special Technology
Námskeiðið verður haldið í leigðum sal á því hóteli sem þið gistið á
Kl. 08:45 Mæting í anddyri hótels
Kl. 09:00 Námskeið á vegum Cast og þjálfun í undirstöðuatriðum, kennsluháttum, aðferðum, markmiðssetningu og skilgreininga á UDL
Kl. 12:30 HÁDEGISHLÉ
Kl. 13.30 Námskeið Cast í UDL kennsluháttum heldur áfram
Kl. 15:00 Námskeiði lýkur
FRJÁLS TÍMI
Miðvikudagur 25. maí 2022
Skólaheimsóknir
Kl. 08:15 Mæting á anddyri hótels
Kl. 08:30 Rúta frá hóteli að skóla nr. 1 yngra stig eða PRIMARY SCHOOL.
Kl. 09:00 Starfsemi, kennsluhættir UDL og aðstaða skólans kynnt.
Kl. 12:00 HÁDEGISHLÉ
Kl. 13:00 Starfsemi, kennsluhættir UDL í skóla nr. 2 eða eldra stigs MIDDLE SCHOOL kynnt.
Kl. 16:00 Rúta að hótelinu
FRJÁLS TÍMI
Fimmtudagur 26. maí 2022
uppstigningadagur
Föstudagur 27. maí 2022
Hópefli
Í vinnslu
Laugardagur 28. maí 2022
Brottfarardagur
kL. 12:00 Útritun af hóteli (hægt að geyma töskur í töskugeymslu)
FRJÁLS TÍMI
kL. 20:00 Rúta ekur frá hóteli að flugvelli
Kl. 23:40 Flug frá Boston til Keflavíkur
Sunnudagurinn 29. maí 2022
08:55 Lent í Keflavík að staðartíma.
*Með fyrirvara um breytingar

Áslaug Hersteinsdóttir-Hölttä
Fræðsluferðir
GSM. 785 9887
Netfang. aslaug@tripical.com