
í Berlín16.-19.09.2022
Berlín er borgin sem hefur allt, hvort sem það eru menningar-viðburðir, sýningar, tónlist, kvikmynda-hátíðir, arkitektúr, stríðsminjar, það finna allir eitthvað að sjá og gera við sitt hæfi.
Borgin er suðupottur af menningu og listum og hún státar líka af fjörugu næturlífi. Berlín er þekkt fyrir stórbrotna sögu og gamlar byggingar ásamt því að vera mjög framalega í nútíma byggingarstíl og list. Á kaldastríðsárunum var borgin tvískipt, í austur og vesturhluta. Í dag má sjá leifar af Berlínarmúrnum sem lá þvert í gegnum hana, ásamt öðrum kennileitum sem sýna hve borgarhlutarnir voru í raun ólíkir.
Berlínarborg man tímana tvenna og það er einstök upplifun að heimsækja þennan stórbrotna stað.
Kurfürstendamm eða Ku'damm er vinsæl verslunargata, af mörgum talin sú glæsilegasta í Evrópu.
Í Berlín er auk þess hægt að skoða fjöldann allann af söfnum frá seinni heimsstyrjöldinni og upplifa spennuþrungna og dramatíska sögu Þjóðverja.
Brottför föstudaginn 30. September
Flug
Beint flug í áætlun með Play, farangurstaska allt að 20kg og léttur handfarangur. Fluglengd 4,5 klst.
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir brottför, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu. ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og breyta sæti án gjalds.
ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun en þá er alltaf hægt að tékka sig inn í Keflavík.
Brottför - 30. September 2022
Brottför föstudaginn 30.09.2022 kl 15:10 frá Keflavík og lent í Lissabon kl 20:45.
Um borð í vélinni er sala á matvælum og drykkjum. Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!
Heimför
Brottför mánudaginn 03.10.2022 kl 21:45 frá Lissabon og lent í Keflavík kl 01:30+
Flug
Flug fram og til baka með Play, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið
-
ATH á staðfestingunni ykkar stendur að það er 1 innrituð taska in nifalin, en það gæti verið óljóst inni á ykkar síðum. En allir eru með eina innritaða tösku innifalda.
Sjá hér: Farangursreglur Play
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir
brottför, það á einnig við heimförina. Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu. ATH stofna þarf aðgang til að geta tékkað sig inn annars er hægt að tékka sig inn á flugvellinum og breyta sæti án gjalds.
ATH einhverjir hnökrar geta komið upp þegar þið tékkið ykkur inn á netinu þar sem bókunin er hópabókun en þá er alltaf hægt að tékka sig inn í Keflavík.
Flug - 16.09.2022
Brottför frá Keflavík kl. 05:45, áætluð lending í Berlín BER kl. 11:25
Flugnúmer OG700
Um borð er sala á matvælu og drykkjum.
Ekki er hægt að hlaða snjalltæki um borð!
Rúta á flugvellinum
1 rúta tekur á móti hópnum og skutla okkur á hótelið.
Eftir töskuband er gengið út Sunneva tekur á móti ykkur, hinkrum eftir hópnum og göngum saman að rútunni.
Ekki þarf að vera með grímu í rútunni á hótelið.
Hótel - Tékk inn
Berlin Marriott Hotel ***** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.
Tékk inn á hótelinu er kl 15:00 en áætlað er að við komum um kl 13:00 á hótelið. Ef þið viljið bruna strax í bæinn þá getur hótelið geymt farangur ykkar og þið svo tékkað ykkur inn þegar þið komið aftur uppá hótel.
COVID - Grímur
Endilega takið eina grímu með. Ekki þarf að nota grímur á hótelinu. Berlín er ennþá með einhverjar takmarkanir í einstaka tilfellum, á sjúkrahúsum, og í almennings samgöngum (lestum og strætóum).
Laugardagur -
17.09.
19:00 til 01:00
Prívat kvöldverður á Oh Panama sem er í Michelin guide bókinni. Líflegur veitingastaður á tveimur hæðum labbað er inn í fallegan húsgarð. Þjónustan hér er vinaleg og afslappandi. Hér að finna nútímalega þýska matargerð.
Veitingastaðurinn er staðsettur
Potsdamer Str. 91, 10785 Berlin
Hittingur er á staðnum og það tekur 5 mín að fara með leigubíl eða 15 mín ganga.
Ef erfitt er að finna staðinn endilega hringið í
Sunnevu - +354 868 5510
Sunneva tekur á móti ykkur og leiðbeinir ykkur hvert á að fara fyrir utan veitingastaðinn áður en haldið er inn í hofið þar sem veitingastaðurinn er.
Dagskrá
19:00 - Fordrykkur
Kvöldverður hefst kl. 19:45
Fyrir fram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.
Matseðill
Mismunandi forréttir til að deila:
Svínabörkur og kimchi
Svína croquettes
Kombu Kex
Hjartatómatar, kartöflur og lifur
Rómverskt salat með sætu brauði og gullrótum
Aðalrétturinn:
Kálfabringa með glóðsteiktum kartöflum.
Eftirréttur:
Apríkós ís með sírópi,
Kleinuhringur með sítóróu og jarðaberja fræ olíu
Drykkir:
Sekt Manufaktur Pinot Meunier 2018 - Schwarzriesling - Nahe DE Tasting: Weiße Nelken, Salzig, rote Birne, Rosengewächs - Mango
Vatn og sódavatn
Gosdrykkir
Kaffi & Te
Kokteilar:
Long drinks
Moscow Mule
Negroni
Dark & Stormy
(ef áhugi er fyrir öðrum drykkjum vinsamlegast látið þjóninn vita).
Óáfengir kokteilar:
Moscow Null
Tommy´s Margarita
Óáfengur bjór
Drykkir eru innifaldir með kvöldverðinum.
Skemmtið ykkur vel!
Heimför Mánudaginn 12.09
Hittingur í Lobbý - 08:45
Hittingur í lobby kl 08:45, rútan leggur af stað 09:00 uppá flugvöll. -Terminal 1.
Ekki þarf að nota grímu í rútunni.
Passa að það tekur tíma að tékka sig út af hótelinu og gera upp, gott er að gera það kvöldinu áður
Flug -Mánudaginn 12.09
Heimför mánudaginn 12.09. frá Berlín kl. 12:10 og lent í Keflavík 14:00
Flugnúmer OG701.
Flug
Flug fram og til baka með PLAY, 1 innrituð taska 20 kg og 10kg handfarangur sem passar undir sætið.
Hægt er að innrita sig í flugið á MyPLAY 24 klst fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Allir eru með sæti, ef maður vill breyta þá kostar það ef maður innritar sig fyrirfram en kostar ekkert á flugvellinnum ef maður innritar sig þar.
Ekki er þörf á forskráningu fyrir eða við komuna til Íslands. Þá er ekki þörf á að framvísa covid vottorði við komuna til Berlínar.
Góða ferð.
Hvað er hægt að gera í Berlín
Sjónvarpsturninn á Alexander Platz
Panoramapunkt Berlín, útsýnisstaður
Hjólatúr um Berlín með íslenskri leiðsögn
Nytsamar upplýsingar
Veitingastaðir
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, tyrkneskir, ítalskir, indverskir, japanskir, þýskir sem og góð grillhús. Alltaf gott að bóka fyrirfram.
Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og Vapiano, Starbucks, McDonalds og Burger King.
Michelin gefur sín meðmæi HÉR
Hjól og Rafskutlur
Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni og anda að sér borgarloftinu.
Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól. Einnig eru rafskutlur út um allt. Helstu rafskutluleigurnar eru Lime, Vio, Bird og Tier.
Hjólastígar eru um allt og meðfram götunum og fylgja þarf almennum umferðarreglum.
Neyðarnúmer í Berlín
112 er neyðarnúmerið í Þýskalandi.
Klúbbar & barir í nágrenninu
Bellboy á Mohrenstraße 30 og Augustine Bier Hall staðsettur á Gendarmen Markt.
Þessir eru í göngufæri annars er Berlín stútfull af næturklúbbum og skemmtilegum börum.
Uber & Taxi & U
Í Berlín er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, Uber, Bolt eða Taxi. Uber er aðeins ódýrari en Taxi og Bolt ódýrast, munið bara að hlaða niður Uber/Bolt appinu. S og U eru lestarnar frekar einfalt að nota bæði í gegnum goole maps og hægt að spyrja farastjóra.
Skemmtilegt að gera
Veistu ekki hvað þú átt að gera í Berlín og ert búin/n að sjá öll minnismerkin og búinn að fara á Check Point Charlie safnið, þá gæti þessi síða hjálpað:
Tungumála frasar
Takk! – Danke
Einn bjór takk! - Bitte ein Bier
Hæ! Hallo! eða Grüss Gott
Afsakið! - Entschuldigung
Please! -Bitte
Reikninginn, takk! Die Rechnung bitte.
Talar þú ensku? - Sprechen Sie Englisch (hér er þérað!)
Verð hugmyndir € = ISK
Gengið er um 141kr vs 1€
Bjór 0,5l 4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr.
Gosdrykkur 0,33l - 2,3€ - 300 kr.
Vatn 0,33l - 2 € - 280 kr.
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 50€ = 7.000kr (með víni)
*heimild numbeo.com
Veðurfar í September
Sumarið er enn í Berlín, allt er enn að blómstra. Meðalhiti Sepember mánaðar eru um 20-25 gráður. En gott er að hafa yfirhöfn með sér, þó það séu hlýtt þá er getur verið kalt á kvöldin.
Búast má við 20 gráðum yfir daginn helgina 16-19.09.2022
Hótel
*****
Þetta hótel í Berlín er í 10 mínútna göngufjarlægð frá Brandenborgarhliðinu og í 100 metra fjarlægð frá almenningsgarðinum Tiergarten. Það býður upp á glæsileg herbergi og líkamsræktarstöð sem er opin allan sólarhringinn.
Herbergin á Berlin Marriott Hotel eru rúmgóð og loftkæld, með fallegu húsgögnum, gervihnattasjónvarpi og öryggishólfi fyrir fartölvu. Baðsloppar og inniskór eru til staðar og herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Amerískir sérréttir eru framreiddir á Midtown Grill á Berlin Marriott en þar er opið eldhús og sumarverönd. Veitingastaðurinn The Big Dog framreiðir ljúffengar pylsur, flottar franskar og hressandi drykki. Í setustofunni í móttökunni geta gestir fengið sér fjölbreytt úrval af hressingu, drykkjum og kokteilum.
Potsdamer Platz-lestarstöðin er í 200 metra fjarlægð, en þaðan ganga U2-neðanjarðarlestir og S-Bahn-lestir.
Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com